Peningamál - 01.02.2003, Page 73

Peningamál - 01.02.2003, Page 73
72 PENINGAMÁL 2003/1 I Inngangur Árin 1998-2001 einkenndust af ójafnvægi í íslensk- um þjóðarbúskap. Ójafnvægið birtist ekki síst í mikl- um viðskiptahalla, sem nam tíunda hluta landsfram- leiðslunnar þegar hann náði hámarki árið 2000. Myndun hallans á árunum 1998-2000 olli verulegum áhyggjum. Margir óttuðust að eftirköstin gætu orðið harkalegur samdráttur og jafnvel fjármálakreppa. Það jók enn á áhyggjurnar að fjármögnun hallans átti sér stað með gríðarlegu innstreymi lánsfjár, sem á árinu 2000 nam því sem næst tvöföldum viðskipta- hallanum, því að á sama tíma streymdi fé úr landi vegna umfangsmikilla kaupa innlendra aðila á er- lendum verðbréfum og öðrum erlendum eignum. Áhyggjur manna reyndust ekki með öllu ástæðu- lausar. Meðal eftirkasta má telja u.þ.b. 30% lækkun á gengi krónunnar frá vormánuðum 2000 til nóvember 2001, aukna verðbólgu, sem varð mest 9,4% í árs- byrjun 2002, og samdrátt þjóðarútgjalda um líklega u.þ.b. 6-7% á árunum 2001-2002. Slíkar hamfarir myndu tæpast nokkurs staðar meðal þróaðra ríkja teljast „mjúk lending“, nema e.t.v. á Íslandi. Aðlög- unin var þó að sumu leyti mýkri en gera mátti ráð fyrir, enda voru ytri skilyrði þjóðarbúskaparins afar hagstæð. Hjöðnun hallans gekk jafnframt hraðar fyrir sig en flesta hafði órað fyrir. Hin hraða myndun og síðan hjöðnun viðskipta- hallans er áhugaverð af ýmsum ástæðum, ekki síst í ljósi þess að eðli og afleiðingar viðskiptahalla hafa verið mjög til umræðu á alþjóðlegum vettvangi. Meðal hagfræðinga hafa verið uppi ólíkar skoðanir á þessu efni og hafa þær tekið töluverðum breytingum í áranna rás. Það sem eftir er greinarinnar skiptist í fimm hluta. Fyrst er fjallað um mismunandi viðhorf sem uppi hafa verið meðal hagfræðinga um eðli viðskiptahalla og nýlegar rannsóknir á afleiðingum hans. Næst er reynt að greina myndun viðskiptahall- ans á árunum 1998-2000. Þar er lagt mat á hvort hafi átt ríkari þátt í myndun hallans: fjárfesting eða einka- neysla, opinberi geirinn eða einkageirinn og loks breyting þjóðhagslegs sparnaðar eða fjármunamynd- unar. Því næst er fjallað um hvaða öfl knúðu fram hjöðnun hallans árin 2001 og 2002, hvers vegna hún Arnór Sighvatsson1 Myndun og hjöðnun viðskiptahalla árin 1998-20022 Í þessari grein er fjallað um myndun mikils viðskiptahalla á árunum 1998-2000 og hraða hjöðnun hans árin 2001 og 2002. Reynt er að grafast fyrir um eðli og orsakir hallans, lagt mat á sjálfbærni hans í ljósi ólíkra hagfræðilegra viðhorfa og fjallað um hvers vegna hallinn hjaðnaði örar en flesta óraði fyrir. 1. Höfundur er deildarstjóri á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands og stað- gengill aðalhagfræðings. 2. Frumdrög að hluta þessarar greinar urðu til sem þáttur í starfi sam- ráðshóps hagfræðinga frá Fjármálaráðuneytinu, Seðlabankanum og Þjóðhagsstofnun á árinu 2001. Hugmyndin var að hópurinn sendi frá sér skýrslu um þann vanda sem steðjaði að þjóðarbúskapnum vegna viðskiptahallans. Áður en hópurinn lauk störfum var Þjóðhagsstofnun lögð niður og þrír af fimm nefndarmönnum skiptu um starfsvettvang. Á þeim tíma sem liðinn er frá því að hópurinn kom síðast saman hefur staða efnahagsmála gjörbreyst. Þar á meðal hefur viðskiptahallinn sem var tilefni starfs hans horfið. Greinin varð því óhjákvæmilega nokkuð öðruvísi en gert var ráð fyrir upphaflega. Hópinn mynduðu auk höf- undar Bolli Þór Bollason og Björn Rúnar Guðmundsson frá fjár- málaráðuneytinu, Katrín Ólafsdóttir og Þórður Friðjónsson frá Þjóð- hagsstofnun og Már Guðmundsson frá Seðlabankanum. Höfundur þakkar þessu fólki góðar ábendingar, hugmyndir og aðstoð, en er einn ábyrgur fyrir öllum göllum sem eftir standa. Höfundur þakkar einnig Þórarni G. Péturssyni aðstoð og ritnefndarmönnum og fleirum ýmsar ábendingar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.