Peningamál - 01.02.2003, Síða 96

Peningamál - 01.02.2003, Síða 96
PENINGAMÁL 2003/1 95 Peningastefnan og stjórntæki hennar Markmið peningastefnunnar Markmið stefnunnar í peningamálum er stöðugt verð- lag. Hinn 27. mars sl. var tekið upp formlegt verðbólgu- markmið sem hér segir: • Seðlabankinn stefnir að því að árleg verðbólga, reiknuð sem árleg hækkun vísitölu neysluverðs á 12 mánuðum, verði að jafnaði sem næst 2½%. • Víki verðbólga meira en ±1½% frá settu marki ber bankanum að gera ríkisstjórninni grein fyrir ástæðu fráviksins, hvernig bankinn hyggst bregðast við og hvenær hann telur að verðbólgumarkmiðinu verði náð að nýju. Greinargerðin verður birt opinberlega. • Seðlabankinn skal stefna að því að ná markmiðinu um 2½% verðbólgu ekki síðar en í árslok 2003. • Til ársloka 2003 gilda rýmri efri mörk sem hér seg- ir: Árið 2001 má verðbólga í mesta lagi verða 3½% umfram verðbólgumarkmiðið og 2% á árinu 2002. • Ársfjórðungslega birtir Seðlabankinn verðbólguspá tvö ár fram í tímann og gerir grein fyrir henni í Peningamálum. Með peningastefnunni er miðað að því að halda verð- lagi stöðugu og því verður henni ekki beitt til þess að ná öðrum efnahagslegum markmiðum, svo sem jöfnuði í viðskiptum við útlönd eða mikilli atvinnu, nema að því marki sem slíkt samrýmist verðbólgumarkmiði bankans. Helstu stjórntæki peningastefnunnar Seðlabankinn framfylgir peningastefnunni einkum með því að stýra vöxtum á peningamarkaði, fyrst og fremst með ákvörðun ávöxtunar í endurhverfum viðskiptum sínum við lánastofnanir. Ávöxtun á peningamarkaði hefur sterk áhrif á gjaldeyrisstrauma og þar með á gengi krónunnar og til lengdar innlenda eftirspurn. Viðskipt- um við lánastofnanir má í grófum dráttum skipta í föst viðskiptaform annars vegar og markaðsaðgerðir hins vegar. Föst viðskiptaform: • Viðskiptareikningar geyma óráðstafað fé lánastofn- ana. Þeir eru uppgjörsreikningar vegna greiðslujöfn- unar milli innlánsstofnana og millibankaviðskipta, þar á meðal viðskipta við Seðlabankann. Vextir þess- ara reikninga mynda gólf fyrir daglánavexti á milli- bankamarkaði. • Daglán eru veitt að ósk lánastofnana og tryggð með sömu verðbréfum og hæf eru í endurhverfum við- skiptum (sjá síðar). Vextir daglána mynda þak yfir daglánavexti á millibankamarkaði. • Innstæðubréf eru veitt til 90 daga, að ósk lánastofn- ana. Þau eru ekki skráð en þó hæf í endurhverfum viðskiptum. Hlutverk þeirra er að setja gólf undir ávöxtun þriggja mánaða vaxta á peningamarkaði. • Bindiskylda er lögð á lánastofnanir sem ekki eru háð- ar fjárlögum í rekstri sínum. Hún miðast við bindi- grunn sem er niðurstöðutala efnahags að frádregnu eigin fé og millibankaskuldum í lok fyrri mánaðar. Bindihlutföll eru 1,5% fyrir þann hluta bindigrunns sem bundinn er til eins árs eða lengur, en 4% fyrir þann hluta sem bundinn er til skemmri tíma. Bindi- tímabil miðast við 21. dag hvers mánaðar til 20. dags næsta mánaðar og skal innstæða á bindireikningi ná tilskildu hlutfalli að meðaltali á binditímabilinu. Markaðsaðgerðir: • Endurhverf viðskipti eru helsta stjórntæki Seðla- bankans. Vikulega eru haldin uppboð á 14 daga samningum. Lánastofnanir þurfa að leggja fram hæf verðbréf, þ.e.a.s. ríkistryggð bréf með virkri við- skiptavakt á Verðbréfaþingi Íslands. Uppboðin geta verið ýmist fastverðsuppboð eða uppboð þar sem heildarfjárhæð framboðinna samninga er tilkynnt. Fastverðsuppboð hafa verið reglan til þessa. • Viðskipti á verðbréfamarkaði takmarkast við ríkis- tryggð verðbréf. • Inngripum á gjaldeyrismarkaði er einungis beitt telji Seðlabankinn það nauðsynlegt til þess að stuðla að verðbólgumarkmiði sínu eða ef hann telur að gengis- sveiflur geti ógnað stöðugleika fjármálakerfisins. Yfirlit vaxta Seðlabankans Breyting Vextir Viðskiptaform Vextir Síðast (prósentu- fyrir 31. janúar 2003 nú (%) breytt stig) ári (%) Viðskiptareikningar ..... Daglán ......................... Innstæðubréf................ Bindiskylda.................. Endurhverf viðskipti.... 3,3 21/12 ’02 -0,5 6,7 8,2 21/12 ’02 -0,5 12,0 5,3 21/12 ’02 -0,5 9,6 4,6 21/12 ’02 -0,5 8,7 5,8 17/12 ’02 -0,5 10,1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.