Peningamál - 01.02.2003, Side 99
98 PENINGAMÁL 2003/1
Hinn 16. apríl tilkynnti matsfyrirtækið Moodys In-
vestors Service að minnkandi þjóðhagslegt ójafn-
vægi styddi óbreytt mat á horfum fyrir lánshæfis-
einkunn íslenska ríkisins. Helstu ástæður fyrir
óbreyttum horfum á lánshæfiseinkunnum Íslands,
sem eru Aa3 á lánum í erlendri mynt og Aaa á
skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs í íslenskum krónum, eru
þróað hagkerfi, háar og jafnar þjóðartekjur á mann
og stöðugt stjórnmálaástand. Skipulagsumbætur
liðins áratugar juku fjölbreytni í efnahagslífinu,
leiddu til mikils hagvaxtar, verðstöðugleika og veru-
lega minni skulda hins opinbera.
Hinn 30. apríl tilkynnti Seðlabanki Íslands lækkun
stýrivaxta og annarra vaxta sinna um 0,3 prósentur
frá 1. maí 2002.
Maí 2002
Hinn 8. maí var tilkynnt að fjármálaráðherra hefði
falið Lánasýslu ríkisins að gefa út nýjan flokk
óverðtryggðra ríkisbréfa. Ríkisbréfaflokkurinn er til
11 ára með lokagjalddaga í maí árið 2013 og verður
lengsti óverðtryggði flokkurinn á íslenskum fjár-
málamarkaði til þessa.
Hinn 21. maí lækkaði bankastjórn Seðlabanka
Íslands ávöxtun í endurhverfum viðskiptum bankans
við lánastofnanir um 0,5 prósentur. Daglánavextir
bankans voru lækkaðir um 0,5 prósentur en vextir á
innstæðum á viðskiptareikningum lánastofnana í
bankanum lækkaðir um 0,2 prósentur.
Hinn 28. maí ákvað ríkisstjórn Íslands að halda
almennt útboð á hlutabréfum í Landsbanka Íslands
hf. Áformað var að selja 20% heildarhlutafjár í bank-
anum í þessum áfanga og lækka þannig eignarhlut
ríkissjóðs úr rúmum 68% í rúmlega 48%. Salan fór
fram í júní og gengu áformin að fullu eftir.
Júní 2002
Hinn 18. júní var tilkynnt að bankastjórn Seðlabanka
Íslands hefði ákveðið að lækka vexti bankans í
endurhverfum viðskiptum við lánastofnanir um 0,3
prósentur í 8,5% frá 25. júní. Aðrir vextir bankans
lækkuðu einnig um 0,3 prósentur frá 21. júní ef frá
eru taldir vextir á innstæðum á viðskiptareikningum
lánastofnana í Seðlabankanum sem haldið var
óbreyttum.
Júlí 2002
Hinn 5. júlí tók gildi ný gengisskráningarvog.
Gengisskráningarvog er endurskoðuð árlega í ljósi
samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Taflan hér
fyrir ofan sýnir nýju gengisskráningarvogina og
breytingar frá árinu áður.
Hinn 10. júlí óskaði framkvæmdanefnd um einka-
væðingu, fyrir hönd viðskiptaráðherra, eftir tilkynn-
ingum frá áhugasömum fjárfestum um kaup á a.m.k.
25% hlut í Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka
Íslands hf. Leitað var eftir fjárfesti, innlendum eða
erlendum, með það að markmiði að efla bankann og
samkeppni á íslenskum fjármálamarkaði. Tekið var
fram að framangreindur hlutur yrði einungis seldur í
öðrum bankanum ef viðunandi verð fengist og
viðræður leiddu til sölu. Stefnt væri að því að hlutur
í hinum bankanum yrði seldur síðar á árinu.
Hinn 19. júlí var tilkynnt að Íbúðalánasjóður og
Lánasýsla ríkisins hefðu undirritað samning um að
Lánasýslan taki að sér eftirlit með framkvæmd samn-
ings Íbúðalánasjóðs við viðskiptavaka hús- og hús-
næðisbréfa á eftirmarkaði fyrir tímabilið 1. júlí 2002
til 30. júní 2003. Mun formlegt eftirlit Lánasýslunnar
með framkvæmdinni hefjast mánudaginn 22. júlí.
Ný gengisskráningarvog 2002 (%)
Byggt á viðskiptum 2001
Út- Inn- Gengis- Breyting
flutn- flutn- skráning- frá fyrri
Lönd Mynt ingsvog ingsvog arvog vog
Bandaríkin .......... USD 22,76 26,89 24,83 -2,16
Bretland .............. GBP 14,60 10,97 12,78 -1,99
Kanada................ CAD 1,50 0,96 1,23 -0,13
Danmörk............. DKK 7,78 8,54 8,16 -0,52
Noregur............... NOK 6,75 6,82 6,78 0,70
Svíþjóð ............... SEK 1,80 5,16 3,48 -0,96
Sviss ................... CHF 2,74 1,28 2,01 0,36
Evrusvæði........... EUR 38,73 35,43 37,08 5,42
Japan................... JPY 3,34 3,95 3,65 -0,72
Norður-Ameríka............. 24,26 27,86 26,06 -2,29
Evrópa ........................... 72,40 68,19 70,30 3,02
Evrópusambandið .......... 62,91 60,10 61,50 1,95
Japan ............................. 3,34 3,95 3,65 -0,73
Alls................................. 100,00 100,00 100,00 0,00