Peningamál - 04.11.2015, Qupperneq 3

Peningamál - 04.11.2015, Qupperneq 3
P E N I N G A M Á L 2 0 1 5 • 4 3 Yfirlýsing peningastefnunefndar 4. nóvember 2015 Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 5,75%. Spáð er 4,6% hagvexti á þessu ári sem er um ½ prósentu meiri vöxtur en gert var ráð fyrir í ágústspá bankans og hafa hagvaxtar- horfur til næstu ára einnig batnað. Hagvöxturinn er einkum borinn uppi af innlendri eftirspurn sem talin er aukast um ríflega 7% í ár. Verðbólga hefur reynst nokkru minni að undanförnu en spáð var í ágúst og er enn undir markmiði, sérstaklega ef horft er framhjá húsnæðislið vísitölu neysluverðs. Stafar það einkum af meiri lækkun alþjóðlegs hrávöru- og olíuverðs og hækkun á gengi krónunnar sem hefur vegið á móti auknum verðbólguþrýstingi af innlendum toga. Verðbólguhorfur til skamms tíma eru af ofangreindum ástæðum töluvert betri en Seðlabankinn spáði í ágúst en til lengri tíma litið hafa þær lítið breyst. Því er áfram spáð að miklar launahækkanir muni leiða til þess að verðbólga fari yfir markmið er líður á næsta ár þegar dregur úr áhrifum lítillar alþjóðlegrar verðbólgu. Verðbólga mun ekki nálgast markmiðið á ný fyrr en á árinu 2018. Spáin byggist á þeirri forsendu að aðhald peningastefnunnar sé hert samhliða því að framleiðsluspenna og verðbólga aukast. Þá er einnig tekið mið af því að frumvarp til fjár- laga felur í sér nokkra slökun á aðhaldi í ríkisfjármálum að teknu tilliti til hagsveiflu. Sterkari króna og hagstæðari alþjóðleg verðlagsþróun hefur gefið svigrúm til að hækka vexti hægar en áður var talið nauðsynlegt. Það breytir hins vegar ekki því að þörf er á auknu aðhaldi peninga- stefnunnar á næstu misserum í ljósi vaxandi innlends verðbólguþrýst- ings. Hve mikið og hve hratt það gerist ræðst af framvindunni og því hvernig greiðist úr þeirri óvissu sem nú er til staðar í efnahagsmálum. Töluverð óvissa er m.a. um miðlun peningastefnunnar um þessar mundir þar sem áhrifa óvenju lágra alþjóðlegra vaxta hefur í vaxandi mæli gætt hér á landi. Mótun peningastefnunnar mun einnig ráðast af þróun lausafjárstöðu í tengslum við losun fjármagnshafta og af því hvort öðrum stjórntækjum hagstjórnar verður beitt til þess að halda aftur af eftirspurnarþrýstingi á komandi misserum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Peningamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.