Peningamál - 04.11.2015, Blaðsíða 38

Peningamál - 04.11.2015, Blaðsíða 38
P E N I N G A M Á L 2 0 1 5 • 4 38 INNLENT RAUNHAGKERFI atvinnuleysis, atvinnuþátttöku, hlutfalls starfandi og vinnulítilla var slakinn horfinn ef miðað er við frávik frá meðaltali áranna 2003-2015, en meðalfjöldi vinnustunda var hins vegar enn undir sögulegu meðal- tali sínu.5 Í ljósi þess hversu hægt meðalvinnustundum hefur fjölgað kann þó enn að vera eitthvert svigrúm til að mæta aukinni eftirspurn eftir vinnuafli án þess að það skapi enn frekari þrýsting á laun. Hlutfall fyrirtækja sem telur vera skort á starfsfólki hækkaði um sjö prósentur milli sumar- og haustkönnunar Gallups en í haustkönnuninni taldi um fjórðungur fyrirtækja sig búa við skort á starfsfólki (mynd IV-22). Þar sem þessar upplýsingar ná aðeins til ársins 2006 er meðaltal tímabilsins (43%) þó líklega ekki góður mælikvarði á eðlilega nýtingu framleiðslu- þátta. Niðurstöður haustkönnunarinnar vekja einnig þá spurningu hvort erfiðara sé orðið fyrir fyrirtæki að mæta skorti á starfsfólki með innflutningi vinnuafls en hreinn innflutningur erlendra ríkisborgara hefur verið töluverður á undanförnum árum (mynd IV-23). Þetta á sérstaklega við í ljósi mats fyrirtækja í byggingageiranum sem er sá geiri sem einna mest hefur mætt skorti á vinnuafli með innfluttu vinnuafli. Í haustkönnun Gallups töldu um 2/3 byggingafyrirtækja sig búa við skort á starfsfólki á sama tíma og rúmlega 70% fyrirtækja í greininni vildu fjölga starfsmönnum. Í ferðaþjónustu, sem einnig hefur mætt skorti á starfsfólki með erlendu vinnuafli, töldu 40% fyrirtækja sig búa við skort á starfsfólki. Framleiðsluspenna hefur myndast Frá því að efnahagsbatinn hófst í kjölfar fjármálakreppunnar hefur vannýtt framleiðslugeta minnkað jafnt og þétt. Aukin nýting fjár- magnsstofnsins og minnkandi atvinnuleysi á síðustu árum eru til marks um það. Vísbendingar úr viðhorfskönnunum benda sterklega til þess að framleiðsluspenna hafi einnig aukist eftir því sem liðið hefur á árið. Samkvæmt því sem kemur fram í haustkönnun Gallups voru mun fleiri fyrirtæki sem töldu sig búa við skort á starfsfólki en áður og þeim fyrirtækjum sem töldu erfitt að bregðast við aukinni eftirspurn fjölgaði (mynd IV-22). Talið er að slakinn í þjóðarbúskapnum hafi nánast horfið á síðasta ári og í ár er búist við því að landsframleiðslan vaxi hraðar en framleiðslugeta þjóðarbúskaparins og að framleiðsluspenna verði hátt í 1½% af framleiðslugetu (mynd IV-24). Er það heldur meiri spenna en gert var ráð fyrir í ágústspá bankans. Mynd IV-22 Vísbendingar um notkun framleiðsluþátta1 1. ársfj. 2006 - 3. ársfj. 2015 % Fyrirtæki með starfsemi nærri eða umfram hámarks- framleiðslugetu Fyrirtæki sem búa við skort á starfsfólki 1. Samkvæmt viðhorfskönnun Gallups meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins. Árstíðarleiðrétt gögn. Tvisvar á ári er spurt um hvort starfsemi sé nærri eða umfram framleiðslugetu. Ársfjórðungsleg gögn eru fengin með línulegri brúun (e. interpolation). Brotalínur sýna meðalhlutföll tímabilsins. Heimildir: Gallup, Seðlabanki Íslands. 0 10 20 30 40 50 60 ‘15‘14‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06 1. Tölur um mannfjölda eru á ársgrunni á tímabilinu 1987-2014 og ársfjórðungslegar frá 4. ársfjórðungi 2010. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Mynd IV-23 Framlag til breytinga í mannfjölda1 Breyting frá fyrra ári (%) Prósentur Náttúruleg fólksfjölgun (h. ás) Aðfluttir ísl. ríkisborgarar umfram brottflutta (h. ás) Aðfluttir erl. ríkisborgarar umfram brottflutta (h. ás) Mannfjöldi (v. ás) Árstölur Ársfj.tölur -2 -1 0 1 2 3 -2 -1 0 1 2 3 ‘14 ‘15‘13‘12‘11‘14‘10‘05‘00‘95‘90 Mynd IV-24 Framleiðsluspenna og atvinnuleysi 2005-20181 1. Grunnspá Seðlabankans 2015-2018. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. % af framleiðslugetu Framleiðsluspenna (v. ás) Atvinnuleysi (h. ás, andhverfur kvarði) % af mannafla -4 -3 -2 -1 0 1 2 3 4 9 8 7 6 5 4 3 2 1 ‘17 ‘18‘16‘15‘14‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05 5. Hagstofa Íslands birti nýlega ítarlegri sundurgreiningu á vinnuaflinu sem sýnir mögulega viðbót á vinnumarkaði. Um er að ræða þrjá hópa: vinnulitla sem eru þeir sem eru í hluta- starfi en vilja vinna meira og þá sem eru utan vinnumarkaðar og annaðhvort að leita að starfi en geta ekki hafið störf innan tveggja vikna eða geta hafið störf innan tveggja vikna en eru ekki að leita sér að vinnu (sjá nánar umfjöllun í rammagrein 3 í Peningamálum 2015/2).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.