Peningamál - 04.11.2015, Page 15

Peningamál - 04.11.2015, Page 15
P E N I N G A M Á L 2 0 1 5 • 4 15 Blikur eru á lofti í heimsbúskapnum. Hægt hefur á efnahagsbatanum það sem af er ári, verulegs óróa gætti á fjármálamörkuðum síðsumars og sviptingar hafa sett svip sinn á viðskiptakjör og gengi gjaldmiðla. Horfur um hagvöxt og eftirspurn í helstu viðskiptalöndum Íslands hafa versnað og óvissa aukist en undanfarin tvö ár og fram að miðju þessu ári hafði þróttur efnahagsbata viðskiptalandanna smám saman aukist. Alþjóðlegar verðbólguhorfur eru heilt á litið nær óbreyttar frá ágústspá Peningamála. Horfur um viðskiptakjör Íslands eru heldur lakari og tvísýnni en í ágúst. Raungengið hefur hækkað skarpt og útlit fyrir að framhald verði þar á með tilheyrandi skerðingu á samkeppnis- stöðu þjóðarbúsins. Alþjóðleg efnahagsþróun Hagvöxtur í helstu viðskiptalöndum hefur smám saman aukist undanfarin tvö ár … Hagvöxtur í viðskiptalöndum Íslands var 1,9% á fyrri helmingi ársins eða lítillega meiri en vænst var í ágústspá bankans. Hagvexti í við- skiptalöndunum hefur smám saman vaxið ásmegin undanfarin tvö ár í kjölfar þess að samdráttarskeiðinu á evrusvæðinu lauk. Stoðir efna- hagsbatans hafa sem fyrr reynst styrkari í Bandaríkjunum og Bretlandi samanborið við evrusvæðið sem þó hefur hægt og bítandi sótt í sig veðrið (mynd II-1). Á Norðurlöndunum er efnahagsbatinn mis- jafn: enn er beðið eftir að löngu samdráttarskeiði ljúki í Finnlandi og horfur fara versnandi í Noregi í kjölfar mikillar lækkunar olíuverðs en í Danmörku og Svíþjóð hefur hagvöxtur aukist smám saman. … en hagvísar benda til þess að tekið sé að fjara undan efnahagsbatanum Hagvísar fyrir evrusvæðið hafa heilt á litið reynst betri en markaðs- aðilar höfðu vænst (mynd II-2). Þeir bregða áfram upp mynd af því að hægfara efnahagsbata vindi fram, m.a. fyrir tilstilli stuðningsað- gerða Seðlabanka Evrópu (ECB), olíuverðslækkunar, gengislækkunar evrunnar og aukins árangurs við að glíma við skuldavanda Grikklands. Innlend eftirspurn á evrusvæðinu hefur tekið nokkuð við sér í takt við aukinn kaupmátt og batnandi fjármálaleg skilyrði en útflutningur hefur reynst nokkru minni en vænst var. Leiðandi vísbendingar benda til áframhaldandi hagvaxtar á svæðinu en að nokkuð hafi hægt á honum í takt við lakari efnahagshorfur í heimsbúskapnum (mynd II-3). Hagvísar í Bandaríkjunum hafa almennt reynst verri en vænst var frá útgáfu síðustu Peningamála. Í kjölfar þess að tímabundnir þættir héldu aftur af batanum á fyrsta ársfjórðungi óx honum ásmegin á öðrum fjórðungi þrátt fyrir að hækkun Bandaríkjadals kæmi niður á framlagi utanríkisviðskipta. Að undanförnu hefur hins vegar hægt á fjölgun starfa og minnkun atvinnuleysis, auk þess sem orkutengd fjár- festing hefur dregist saman í kjölfar verulegrar lækkunar orkuverðs. Engu að síður er áfram búist við áframhaldandi efnahagsbata umfram það sem flest önnur helstu iðnríki geta vænst og hækkun vaxta Seðlabanka Bandaríkjanna öðrum hvorum megin við næstu áramót. II Alþjóðleg efnahagsmál og viðskiptakjör 1. Þegar vísitalan er undir 0 eru hagvísar verri en gert hafði verið ráð fyrir og á móti sýnir vísitala yfir 0 að hagvísar eru jákvæðari en gert hafði verið ráð fyrir. Vísitalan segir ekki til um hvort hagvísarnir séu jákvæðir eða neikvæðir. Heimild: Macrobond. Vísitala Mynd II-2 Vísitala óvæntra hagvísa1 Daglegar tölur 4. janúar 2010 - 30. október 2015 Bandaríkin Evrusvæðið Nýmarkaðsríki -120 -100 -80 -60 -40 -20 0 20 40 60 80 100 120 140 2014 ‘152013201220112010 1. Framleiðsluvísitala (Manufacturing Purchasing Managers' Index, PMI) fyrir framleiðendur í Bandaríkjunum og á evrusvæðinu. Vísitalan er birt mánaðarlega og er árstíðarleiðrétt. Þegar gildi vísitölunnar er yfir 50 táknar það vöxt milli mánaða en ef hún er undir 50 táknar það samdrátt. Heimildir: Bloomberg, Macrobond. Vísitala Mynd II-3 Leiðandi vísbendingar um hagvöxt1 Janúar 2008 - september 2015 Bandaríkin Evrusvæðið 30 34 38 42 46 50 54 58 62 ‘152014201320122011201020092008 Heimildir: Macrobond, Seðlabanki Íslands. Breyting frá fyrra ári (%) Mynd II-1 Alþjóðlegur hagvöxtur 1. ársfj. 2003 - 3. ársfj. 2015 Bandaríkin Evrusvæðið Bretland Japan Viðskiptalönd Íslands -10 -8 -6 -4 -2 0 2 4 6 ‘14‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.