Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 20
20
GLÓÐAFEYKIR
r
I þjónustu samvinnumanna
Geirmundarþáttur Jónssonar
Það er alkunna, að á Hofsósi starfaði sjálfstætt kaupfélag um árabil,
eða frá 1920 - 1969. Þar var arftaki Pöntunarfélags Fellshrepps og
Kaupfélags Fellshrepps og nefndist Kaupfélag Austur - Skagfirðinga.
Árið 1969 var félagið sameinað K.S, er síðan rekur útibú á Hofsósi.
Svo sem að líkum lætur, mun það ekki hafa verið öllum
sársaukalaust, að K.A.S.H skyldi ekki lengur rekið sem sjálfstætt
félag, en breyttir tímar og aðstæður allar ollu því, að horfið var að því
ráði, að sameina það K.S. ásamt Samvinnufélagi Fljótamanna.
Einn þeirra manna, er mjög kom við sögu K. A.S.H., er Geirmundur
Jónsson, en hann var, sem kunnugt er, framkvæmdastjóri þess í
röskan áratug.
Glóðafeykir fór þess á leit, að hann svaraði nokkrum spurningum
um æfi sína og störf, en hann er nú sestur í helgan stein. Varð hann
góðfúslega við þeim tilmælum, með nokkrum eftirgangsmunum þó,
enda manninum annað betur lagið, en að hreykja sér og gorta af eigin
verkum.
Að gömlum, góðum íslenskum sið spyr ég Geirmund um ætt og
uppruna.
-Ég er fæddur 19. júlí 1912 í Grafargerði á Höfðaströnd. Foreldrar
mínir voru Sigurlaug Barðadóttir og Jón Vilhjálmsson. Móðir mín var
fædd 7. 8. 1878, dóttir Barða skipstjóra á Siglufirði Guðmundssonar
verslunarstjóra Brynjólfssonar í Bjarnastaðahlíð. Guðmundur ólst
upp hjá móðurafa sínum og ömmu og síðar móðursystur sinni,
Hólmfríði, konu Eiríks hreppstjóra í Djúpadal. Hannfluttist ungurtil
Hofsóss og stundaði þar verslunarstörf, giftist þar Sigurlaugu
Þorleifsdóttur frá Bæ. Á Hofsósi fæddust tvö börn þeirra: Barði, er