Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 54

Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 54
54 GLÓÐAFEYKIR Gunnar Guðmundsson, f. bóndi að Reykjum á Reykjaströnd, lést hinn 30. júlí 1976. Hann var fæddur að Herjólfsstöðum á Laxárdal ytra 27. júní 1898, sonur Guðmundar bónda þar Guðmundssonar, síðast bónda á Ingveldarstöðum á Reykjaströnd, Gunnarssonar hreppstj. á Skíðastöðum á Laxárdal, og konu hans Ingibjargar Björnsdóttur hreppstj. að Hafragili á Laxárdal, Gunnarssonar hrepp- stj. á Skíðastöðum, en kona Björns á Hafragili og móðir Ingibjargar var Guðrún Ólafsdóttir bónda og smiðs á Ingveldarstöð- um á Reykjaströnd, Kristjánssonar. Gunnar var yngstur fjögurra systkina, er á legg komust, en nokkur dóu í fyrstu bernsku. Hann ólst upp með foreldrum sínum við mikla fátækt og hrakhólabúskap. Arsgamall fór hann með þeim að Ingveldarstöðum, að Sveinskoti 1907 og loks að Hrafnagili á Laxárdal 1913, þar sem foreldrar hans bjuggu til 1924, er þau slepptu búi og fluttu til Sauðárkróks. Kringum tvítugsaldur réðst Gunnar í vist að Heiði í Gönguskörðum til Þorbjarnar bónda. Þá var hann og kaupamaður á Veðramóti, einnig viðurloða á Reykjum á Reykjaströnd um hríð. „stundaði jöfnum höndum sjómennsku og bústörf og féll hvort tveggja vel”. Er Friðvin Ásgrímsson bóndi á Reykjum lést, - en þann mann mat Gunnar um aðra fram, - gerðist hann ráðsmaður hjá ekkju hans, Margréti Jóhannsdóttur, til næsta vors, er hún brá búi, var og formaður á sexæringi, er gerður var út frá Reykjum á haustvertíð. Gunnar var mikill efnismaður. Stóð hugur hans til meiri frama en hljóta mátti þar heima í sveitinni. Var það mjög að ráði Sigurðar bónda á Veðramóti, að Gunnar réðst utan til náms í lýðháskólanum í Voss í Noregi haustið 1924, enda þótt farareyrir væri af skornum skammti. Að loknu þriggja vetra námi í Voss réðst hann til náms við tækniskólann í Porsgrunn, var þar aðra þrjá vetur og stundaði raffræðinám. Að því námi loknu hvarf hann aftur heim til Islands og vann að rafmagnsstörfum hjá ýmsum verktökum í Reykjavík uns hann leitaði norður hingað í átthagana 1937, keypti Reyki á Reykjaströnd, reisti þar bú og bjó nær tveim tugum ára, brá þá búi, fluttist með konu sinni til Sauðárkróks og átti þar heima til æviloka. Gunnar var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigur/ína Gunnar Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.