Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 27
GLÓÐAFEYKIR
27
kr. 300.000.- að láni frá Framkvæmdabanka íslands, sem þá var við
líði.
Breytingarnar kostuðu ca. 2,8 milljónir, og varð það allstór biti að
kyngja litlu félagi, en tókst þó, án þess að auka lausaskuldir út á við til
muna. Var það mikið því að þakka, að lausaíjárstaða félagsins var góð,
t.d. voru inneignir viðskiptamanna í árslok 1965 umfram skuldir 2,5
milljónir, auk 6,5 milljóna í innlánsdeild.
-Og hafði félagið fleiri jám í eldi?
-Ojú. Kaupfélagið rak m.a. vörubíl, sem það hafði í ferðum til
Reykjavíkur. Bílstjóri var öll árin Jón Kjartansson, reyndur og
duglegur bílstjóri, sem gekk hart eftir að viðhald og endurnýjun væri í
lagi, enda hlekktist honum aldrei á í ferð.
Ég var annars mjög heppinn með starfsfólk, enda mannaskipti fátíð,
og þakka ég því mikið, að reksturinn gekk allvel þann tíma, er ég var
kaupfélagsstjóri. En auðvitað er ekki mitt að dæma um það. Þó get ég
sagt, að ég vann mikið - kannski of mikið - en svo vill verða hjá litlum
félögum. þar sem enginn er deildarstjóri, enginn innkaupastjóri,
enginn fulltrúi o.s.frv. Þá er kannski hætt við, að of mikið mæði á
kaupfélagsstjóranum, ábyrgð og vinnuálag, því þessi litlu félög verða
að sigla sama sjó og hin stærri í fjármálum og annarri stjórnun.
-En hvað um samstarfið við stjórnina?
-Á þessum árum var stjórnin skipuð þessum mönnum:
Jón Jónsson á Hofí, sem var formaður, Friðbjörn Traustason á
Hólum, Kristján Jónsson á Óslandi, Þorsteinn Hjálmarsson, Hofsósi,
Jón Guðnason, Heiði, og eftir lát hans Stefán Gestson, Arnarstöðum.
Samstarf við þessa ágætu menn var mjög gott.
-Hvenær hverfur þú svo frá félaginu?
-Ég sagði upp starfi 1966 og tók við útibússtjórastarfi við
Samvinnubankann á Sauðárkróki og umboði fyrir Samvinnu-
tryggingar í Skagafirði. Þau störf hafði ég með höndum til ársins 1982,
er ég lét af störfum vegna aldurs. Öll þau ár var Sigmundur
Guðmundsson gjaldkeri við Utibúið. Þakka ég honum frábært starf.