Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 76
76
GLÓÐAFEYKIR
eðli sínu fésýslumaður, sparsamur og nýtinn, fyrirhyggjubóndi um
alla hluti, vinnusamur, harðsækinn athafnamaður, en slakaði þó
stundum á taumum og naut þá lífsins í ríkum mæli.
Árið 1921 kvæntist Magnús Ingibjörgu Stefánsdóttur bónda á Þverá
í Blönduhlíð, Sigurðssonar, og konu hans Hjörtínu Hannesdóttur.
Ingibjörg andaðist árið 1971, sáþátt um hana í Glf. 1976,17. h. bls. 66.
Einkabarn þeirra hjóna er Gísli, bóndi á Vöglum.
Magnús Kr. Gíslason var hár maður og grannvaxinn, toginleitur og
skarpleitur, fríður í andliti, vakti athygli, hvar sem hann fór. Hann var
ágætlega greindur, las mikið, var vel að sér í fornum skáldskap og
nýjum, unni fögrum kvæðum, en hafði ódulinn viðbjóð á órimuðum
ljóðum. Hann var vel máli farinn og hraðmælskur, ef hitnaði í geði eða
dreypt var á skálum. Hann var prýðilega skáldmæltur, kom út eftir
hann tvær ljóðabækur, Ég kem norðan Kjöl (1954) og Vísur og kvæði
frá Vöglum, auk þess kvæði og stökur í Skagfirskum ljóðum svo og í
blöðum og tímaritum austan hafs og vestan. Lausavísur hans margar
bera mjög af lengri kvæðum, enda sumar listavel gerðar og eigi fáar
landskunnar.
Magnús á Vöglum var um marga hluti vel gerður maður og
óvenjulegur um sumt. Skaphöfn hans var slungin miklum andstæðum.
í honum var bæði „gull og grjót”. Hann var hvort tveggja í senn,
harðjaxl og viðkvæmur, aðsjáll og þó höfðingi, rakinn
rökhyggjumaður og þó hvergi nærri sneyddur ímyndunarafli og
hugsjónum. Hann var alvörumaður, unni ættjörð sinni og sveit heilum
huga. Ef til vill var lífsfylling hans í því fólgin öðru fremur, að skila
henni vönduðu verki, enda kastaði hann aldrei höndum til neins. Og
þá var hann allur og heill í fögnuði sínum hvarvetna þar sem „léttast
var kveðið og glaðast sungið”.
Aths:.
Þessir þættir eru allir af eftirlátnum blöðum Gísla heitins Magnús-
sonar í Eyhildarholti og ber að hafa það í huga við lestur þeirra. Að
sjálfsögðu hefur margt breyst frá því þeir voru skráðir, svo sem víða
kemur fram.
Rögnvaldur, sonur Gísla bjó þættina til prentunar.