Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 53
GLÓÐAFEYKIR
53
María, húsfr. á Akureyri, Sigurður, bóndi á Stóru-Ökrum, Hjörtína,
ógift, til heimilis þar á Ökrum og Katrín, húsfr. á Sauðárkróki.
Ingibjörg Sigurðardóttir var í hærra lagi, grönn og íturvaxin,
skarpholda, svipurinn geðfelldur og góðmannlegur. Hún var hóglát
og stillt, gædd mikilli skapfestu, viljaþreki og seiglu. Hún var glaðlynd
að eðlisfari og eigi vílmóð, sterklunduð og heillynd mannkostakona.
Páll Þorkelsson, verkam. á Sauðárkróki, lést 24. júní 1976.
Hann var fæddur að Rein í Hegranesi 19. mars 1908, sonur Þorkels
síðast bónda á Ingveldarstöðum á Reykjaströnd Jónssonar og konu
hans Önnu Sigríðar Sigurðardóttur, var Páll albróðir Sigmundar, sjá
þátt um hann í Glóðaf. 19.
Páll ólst upp með foreldrum sínum ytra ' . , l.
þar á Reykjaströnd, Daðastöðum og
Ingveldarstöðum, vann síðan að búi foreldra
sinna, stundaði og sjó öðrum þræði, var um
skeið á Syðri-Hofdölum og kynntist þar
konuefni sínu, en flutti til Sauðárkróks 1929
og átti þar heima til æviloka.
Páll stundaði lengstum algenga verka-
mannavinnu, var ágætur verkmaður,
kappsamur, duglegur og hagvirkur. Síðari
árin vann hann einkum við múrverk og
reyndist þar sem ella liðtækur í besta lagi.
Hann kenndi vanheilsu er á ævi leið, en vann
þó lengstum fullan vinnudag.
Páll var tvígiftur. Arið 1929, á
gamlaársdag, gekk hann að eiga Þórdísi
Jónasdóttur skálds og bónda á Syðri-Hofdölum Jónassonar og konu
hans Önnu Jónsdóttur, sjá þátt af þeim í Glóðaf. 1973, 14. h. bls. 64.
Þórdís lést 1942. Þau Páll eignuðust einn son, Jónas Þór,
málarameistara á Sauðárkróki. Árið 1949, hinn 20. des., kvæntist Páll
seinni konu sinni, Kristínu Jónsdóttur bónda á Grófargili á Langholti,
Benediktssonar, og konu hans Sigurlaugar Brynjólfsdóttur. Er Kristín
alsystir Birnu, ekkju Eiríks á Fagranesi, sjá Glf. 1973, 14. h. bls.54.
Dætur þeirra hjóna eru þrjár, er upp komust: Þórdís, Anna Þorkatla og
Sigurlaug Sigríður, allar ógefnar í foreldragarði.
Páll Þorkelsson var meðalmaður á hæð, frekar þrekvaxinn,
gervilegur maður og myndarlegur, fölleitur ásýndum, fullur að
vöngum. Hann var greindur vel, vinsæll maður og vel látinn sem þau
Ingveldarstaðasystkini öll.
Páll
Þorkelsson