Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 14

Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 14
14 GLÓÐAFEYKIR fullkomnustu og glæsilegustu á landinu. Lauk þar með notkun húsanna við Freyjugötu í þágu slátrunar en nýtt hlutverk tók við. Þarna var opnuð kjörbúð og kjötvinnsla og ennfremur mjólkurbúð. Stóð sá rekstur þar til nýbygging félagsins við Skagfirðingabraut 17- 21, kjörbúðarhúsið, var tekið í notkun árið 1961. Ný viðhorf Eins og fyrr segir, þótti sláturhús félagsins á Eyri, sem tekið var í notkun árið 1953 bæði vandað og hentugt til sinna nota. Var KS talið á þeim árum í forustu meðal íslenskra kaupfélaga og sláturleyfishafa hvað varðaði slátrun og verkun kjöts og annarra sláturafurða. En á þessum árum og þeim er á eftir fylgdu stækkaði bústofn landsmanna mjög, og ekki síður hér í Skagafirði en annarsstaðar á landinu. Fór því svo, að mönnum þótti 1.500 kinda dagslátrun, sem möguleg var í húsinu, full lítil. Síðar komu að auki ný viðhorf til sögunnar, þegar félagssvæði KS stækkaði með sameiningu við félögin austan fjarðarins, en þá stórjókst sláturfjárfjöldinn. A þessum árum var umtalsverður hluti kjöts og innmats fluttur út, og þá ekki hvað síst til Bretlandseyja. Nokkuð var einnig flutt út til Norðurlandanna, en Bretlandsmarkaður var mikilvægastur. Við stofnun Fríverslunarbandalagsins, (EFTA) varð nokkur breyting þar á, þrátt fyrir sérsamninga Islands, en þegar við gengum sjálfir í bandalagið auðveldaði það okkur aðgang að breska markaðnum. Sýnt þótti um og upp úr 1960, að auknar kröfur yrðu gerðar af hálfu breta til sláturhúsa okkar, ef útflutningur ætti að haldast. Var því farið að ræða leiðir til að mæta þeim. Varð niðurstaðan, m.a. að tillögu Stéttarsambands bænda, aðalfunda S.I.S. og fleiri, að þáverandi landbúnaðarráðherra, Ingólfur Jónsson, skipaði nefnd sem hafði það hlutverk, að gera tillögur til hans um endurskipulagningu sauðfjárslátrunar í landinu, sem yrði síðan grundvöllur lagasetningar. Skilaði nefndin fyrsta áliti sínu um 1965 og gekk hún þar út frá því að byggt yrði með tilstyrk hins opinbera tilraunasláturhús í Borgarnesi, sem væri hannað eftir fyrirmynd frá þeim löndum, sem einna lengst væru komin í þessu efni. Var einkum litið til Nýja-Sjálands, en þar höfðu nefndarmenn kynnt sér nýjustu tækni í sauðfjárslátrun. Voru færikeðjuhús þá að ryðja sér þar til rúms, og þóttu bæta afköst og verkun til muna. Árið 1967 tekur svo tilraunasláturhúsið í Borgarnesi til starfa. Um svipað leyti skilar svo sláturhúsanefndin áliti til ráðherra. Var megininntak þess það, að sem mest af sauðfjárslátrun landsmanna fari fram í 10-12 sláturhúsum, sem reist yrðu á reynslu þeirri sem fengist af rekstrinum í Borgarnesi. Myndi ráðuneytið skipa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.