Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 52
52
GLÓÐAFEYKIR
Gísli Kristjánsson var meðalmaður vexti og vel á sig kominn,fríður
ásýndum, svipmótið stillilegt, athugult, hýrt og hlýtt. Hann var
greindur vel, las mikið er tóm gafst til frá daglegri önn. hann var
geðprúður maður, hógvær og hlédrægur, glaðlyndur með góðum
vinum, gæddur notalegri kímnigáfu, vinsæll maður og geðfelldur og
skilur eftir þær minningar einar, er sæma góðum dreng og hugþekkum
hverjum manni.
Ingibjörg Sigurðardóttir, f. húsfr. á Stóru-Ökrum í Blönduhlíð, lést
9. júní 1976.
Hún var fædd 22. júli 1901. Var faðir hennar Sigurður bóndi í Syðra-
Vallholti í Vallhólmi Gunnarsson bónda þar og síðast að Hafragili á
Laxárdal ytra, Gunnarssonar hreppstj. og bónda á Skíðastöðum í
sömu sveit, Gunnarssonar. Móðir Ingibjarg-
ar var Helga Sölvadóttir bónda að Kleif á
Skaga, Sölvasonar, og konu hans Maríu
Jónsdóttur bónda á Kleif, Arnasonar.
Ingibjörg fylgdi eigi móður sinni í
bernsku, en ólst upp með föður sínum í
Syðra-Vallholti og sambúðarkonu hans,
Herdísi Ólafsdóttur. Var hún elst systkina
sinna - hálfsystkina - og mæddu mjög á henni
ungri erfið heimilisstörf, s.s. mjaltir og önnur
fjósverk. Var hún snemma gædd mikilli
verklund, dugnaði og ósérhlífni,en eigi
heilsuhraust að sama skapi, sýktist af
berklum, dvaldi um stund á Vífilsstaðahæli
og fékk fullan bata.
Árið 1919 giftist Ingibjörg Jóel Jónsyni
bónda á Hömrum á Fremribyggð Guð-
mundssonar bónda þar, Hannessonar, og
Friðriksdóttur bónda í Borgargerði á
Norðurárdal o.v., Sveinssonar, og konu hans Sigríðar
Hallgrímsdóttur. Þau Jóel settu þegar saman bú á Hömrum og bjuggu
þar til 1922, fóru þá búi sínu að Stóru-Ökrum og bjuggu þar tugi ára á
hálfri jörðinni, er Sigurður í Syðra-Vallholti, faðir Ingibjargar, hafði
fengið þeim í hendur, uns Sigurður sonur þeirra og eiginkona hans,
Anna Jónsdóttir, tóku við jörð og búi.
Jóel, sem lifir konu sína háaldraður, reyndist henni hinn ágætasti
eiginmaður, enda öðlingur hinn mesti. Fjögur eru börn þeirra hjóna:
Ingibjörg
Sigurðardóttir
konu hans Katrínar