Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 25
GLÓÐAFEYKIR
25
nú er búsettur á Hofsósi, vélvirki að mennt og rennismiður.
Fæðingin var mjög erfið, og þann 7. janúar andaðist Hólmfríður af
afleiðingum hennar. Það var mikið áfall, andlega og fjárhagslega. Þá
voru engar almannatryggingar né önnur opinber aðstoð, t.d. til
einstæðra foreldra. En sem betur fer hefur margt breyst til bóta í
samfélagsmálum, hvað sem öðru líður, og mættum við gjarnan meta
það og standa dyggan vörð um félagslega samhjálp. Þetta bjargaðist
þó, með góðri aðstoð ættingja og vina, og má þar til nefna þau Sóleyju
og Steinþór, svo og Baldvinu, systur Hólmfríðar heitinnar, sem
annaðist böm og heimili fyrstu árin.
-Og enn verða þáttaskil?
-Já. Árið 1949 opinberuðum við Guðríður Guðjónsdóttir á Nýlendi
trúlofun okkar, og fluttist ég þá í Nýlendi með Vilhjálm, en Erna varð
eftir hjá Sóleyju, sem hafði tekið ástfóstri við hana. Við Guðríður
giftumst 17. 4. 1954 og fluttum það ár til Sauðárkróks, þar sem mér
bauðst skrifstofustarf hjá Sigurði Sigfússyni, stórhuga athafnamanni,
er mikið hafði umleikis. Hjá honum vann ég til vors 1955.
-Hvenær tekur þú þá við K.A.S.H.?
-Kaupfélagsstjórastaðan við K.A.S.H. var á lausu vorið 1955, og
þangað réðist ég og flutti þá aftur austur yfir fjörðinn í Hofsós.
Við Guðríður höfðum eignast son 29. 11. 1953, Svein, vélstjóra að
mennt, sem alllengi var vélstjóri á togurum Ú.S., síðast 1. vélstjóri á
Hegranesinu, en nú starfsmaður Steinullarverksmiðjunnar. í Hofsósi
fæddust okkur synir tveir, Jón, pípulagningamaður, f. 16. 7. 1956, og
Ingvi, f. 22. 9. 1959, nú nemi í læknisfræði á síðasta ári.
Þegar ég hóf störf hjá K.A.S.H., voru húsakynni félagsins mjög
slæm. Aðalverslun og skrifstofa voru í gömlu húsi undir brekkunni,
utan ár, og var það kallað á Sandi og er til enn Var það mjög
óhagkvæmt eins og sjá má. Árið 1947 hafði félagið keypt fasteignir
Vilhelms Erlendssonar, þar á meðal allstórt íbúðarhús. Ibúðarhúsið
var tekið undir gistihúsrekstur, sem félagið hóf þá. Fóðurbætir o.fl.
var í bröggum, sem félagið átti á brekkunni, utan Hofsár. Var brýn
þörf úrbóta í húsnæðismálum.
Árið 1954 hafði stjórnin samþykkt að ráðast í byggingu
verslunarhúss, á bökkunum innan Hofsár, og var grunnur byggður
það haust. Eg lagði allt kapp á að koma húsinu upp sem fyrst, og þegar
það var tekið í notkun vorið 1957, var öll verslunin sameinuð í
eitt,nema fóðurbætirinn, sem var afgreiddur úr bröggunum enn um