Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 25

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 25
GLÓÐAFEYKIR 25 nú er búsettur á Hofsósi, vélvirki að mennt og rennismiður. Fæðingin var mjög erfið, og þann 7. janúar andaðist Hólmfríður af afleiðingum hennar. Það var mikið áfall, andlega og fjárhagslega. Þá voru engar almannatryggingar né önnur opinber aðstoð, t.d. til einstæðra foreldra. En sem betur fer hefur margt breyst til bóta í samfélagsmálum, hvað sem öðru líður, og mættum við gjarnan meta það og standa dyggan vörð um félagslega samhjálp. Þetta bjargaðist þó, með góðri aðstoð ættingja og vina, og má þar til nefna þau Sóleyju og Steinþór, svo og Baldvinu, systur Hólmfríðar heitinnar, sem annaðist böm og heimili fyrstu árin. -Og enn verða þáttaskil? -Já. Árið 1949 opinberuðum við Guðríður Guðjónsdóttir á Nýlendi trúlofun okkar, og fluttist ég þá í Nýlendi með Vilhjálm, en Erna varð eftir hjá Sóleyju, sem hafði tekið ástfóstri við hana. Við Guðríður giftumst 17. 4. 1954 og fluttum það ár til Sauðárkróks, þar sem mér bauðst skrifstofustarf hjá Sigurði Sigfússyni, stórhuga athafnamanni, er mikið hafði umleikis. Hjá honum vann ég til vors 1955. -Hvenær tekur þú þá við K.A.S.H.? -Kaupfélagsstjórastaðan við K.A.S.H. var á lausu vorið 1955, og þangað réðist ég og flutti þá aftur austur yfir fjörðinn í Hofsós. Við Guðríður höfðum eignast son 29. 11. 1953, Svein, vélstjóra að mennt, sem alllengi var vélstjóri á togurum Ú.S., síðast 1. vélstjóri á Hegranesinu, en nú starfsmaður Steinullarverksmiðjunnar. í Hofsósi fæddust okkur synir tveir, Jón, pípulagningamaður, f. 16. 7. 1956, og Ingvi, f. 22. 9. 1959, nú nemi í læknisfræði á síðasta ári. Þegar ég hóf störf hjá K.A.S.H., voru húsakynni félagsins mjög slæm. Aðalverslun og skrifstofa voru í gömlu húsi undir brekkunni, utan ár, og var það kallað á Sandi og er til enn Var það mjög óhagkvæmt eins og sjá má. Árið 1947 hafði félagið keypt fasteignir Vilhelms Erlendssonar, þar á meðal allstórt íbúðarhús. Ibúðarhúsið var tekið undir gistihúsrekstur, sem félagið hóf þá. Fóðurbætir o.fl. var í bröggum, sem félagið átti á brekkunni, utan Hofsár. Var brýn þörf úrbóta í húsnæðismálum. Árið 1954 hafði stjórnin samþykkt að ráðast í byggingu verslunarhúss, á bökkunum innan Hofsár, og var grunnur byggður það haust. Eg lagði allt kapp á að koma húsinu upp sem fyrst, og þegar það var tekið í notkun vorið 1957, var öll verslunin sameinuð í eitt,nema fóðurbætirinn, sem var afgreiddur úr bröggunum enn um

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.