Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 62

Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 62
62 GLÓÐAFEYKIR Árni Krístmundsson, bóndi á Hóli og síðan í Hvammkoti á Skaga, lést 15. október 1976. Fæddur var hann í Höfnum á Skaga 14. nóv. 1889, sonur Kristmundar, síðast bónda á Selá á Skaga, Guðmundssonar bónda þar, Sveinssonar, og konu hans Guðrúnar Guðmundsdóttur bónda á Selá, Andréssonar bónda þar, Jónssonar. Voru foreldrar Arna og þeirra systkina mjög tengd Hafnarheimilinu fyrr og síðar, var hann heitinn í höfuð á Arna stórbónda og hreppstj. í Höfnum og skírður Ami Sigurðsson. Síðustu ár ævinnar dvöldust foreldrar Árna, þau Kristmundur og Guðrún, í skjóli dóttur sinnar og tengdasonar, Guðrúnar og Steins L. Sveinssonar, bónda og hreppstj. á Hrauni á Skaga. Árni ólst upp með foreldrum sínum, en þau reistu bú á Hvalnesi á Skaga 1891, bjuggu þar til 1893, þá í Ketu til 1900 og loks á Selá til 1908, er þau slepptu búi og voru eftir það stundum í vist, stundum í húsmennsku unz þau hurfu að Hrauni, sem áður segir. 19 ára gamall fór Árni vistum að Hvammi á Laxárdal ytra til prestshjónanna þar, síra Arnórs Árnasonar frá Höfnum og Ragnheiðar Eggertsdóttur, var þar 5 ár og þó lengur sem kaupamaður; minntist hann þeirra hjóna æ síðan með einlægri hlýju. Árið 1920 réðst Árni að Hóli á Skaga sem ráðsmaður Ingibjargar Sigurðardóttur húsfreyju þar, er þá hafði misst mann sinn, Sigtrygg bónda Jóhannsson. Árið 1924höfðuþauhlutverkaskipti. Árnitókvið búi og bjó þar til 1948, en Ingibjörg var ráðskona hans. Næstu árin tvö var Árni til heimilis á Hrauni, en keypti þá Hvammkot og var þar lengstum við bú árin 1950-1967. Eftir 1960 fór honum að daprast sjón og ágerðist svo, að eftir 1964 gat hann naumast eða ekki sinnt búsýslu. Og enda þótt hann væri til heimilis í Hvammkoti enn um sinn, dvaldist hann löngum á Sauðárkróki hjá Önnu Leósdóttur frá Víkum á Skaga og eiginmanni hennar, Agnari Hermannssyni frá Lóni í Viðvíkursveit, en Anna er fósturdóttir þeirra hjóna Ástu, systur Árna, og Vilhjálms Árnasonar frá Víkum, bónda á Hvalnesi. Árið 1971 fór Árni svo á sjúkrahúsið á Sauðárkróki, þá alblindur orðinn, og dvaldist þar unz yfir lauk, eigi þjáður að vísu og hafði lengstum ferlivist. Árni Kristmundsson var kjörinn til ýmissa trúnaðarstarfa. Hann sat Arni Kristmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.