Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 62
62
GLÓÐAFEYKIR
Árni Krístmundsson, bóndi á Hóli og síðan í Hvammkoti á Skaga,
lést 15. október 1976.
Fæddur var hann í Höfnum á Skaga 14. nóv. 1889, sonur
Kristmundar, síðast bónda á Selá á Skaga, Guðmundssonar bónda
þar, Sveinssonar, og konu hans Guðrúnar Guðmundsdóttur bónda á
Selá, Andréssonar bónda þar, Jónssonar.
Voru foreldrar Arna og þeirra systkina mjög
tengd Hafnarheimilinu fyrr og síðar, var
hann heitinn í höfuð á Arna stórbónda og
hreppstj. í Höfnum og skírður Ami
Sigurðsson. Síðustu ár ævinnar dvöldust
foreldrar Árna, þau Kristmundur og
Guðrún, í skjóli dóttur sinnar og
tengdasonar, Guðrúnar og Steins L.
Sveinssonar, bónda og hreppstj. á Hrauni á
Skaga.
Árni ólst upp með foreldrum sínum, en
þau reistu bú á Hvalnesi á Skaga 1891,
bjuggu þar til 1893, þá í Ketu til 1900 og loks
á Selá til 1908, er þau slepptu búi og voru
eftir það stundum í vist, stundum í
húsmennsku unz þau hurfu að Hrauni, sem
áður segir. 19 ára gamall fór Árni vistum að
Hvammi á Laxárdal ytra til prestshjónanna þar, síra Arnórs
Árnasonar frá Höfnum og Ragnheiðar Eggertsdóttur, var þar 5 ár og
þó lengur sem kaupamaður; minntist hann þeirra hjóna æ síðan með
einlægri hlýju.
Árið 1920 réðst Árni að Hóli á Skaga sem ráðsmaður Ingibjargar
Sigurðardóttur húsfreyju þar, er þá hafði misst mann sinn, Sigtrygg
bónda Jóhannsson. Árið 1924höfðuþauhlutverkaskipti. Árnitókvið
búi og bjó þar til 1948, en Ingibjörg var ráðskona hans. Næstu árin tvö
var Árni til heimilis á Hrauni, en keypti þá Hvammkot og var þar
lengstum við bú árin 1950-1967. Eftir 1960 fór honum að daprast sjón
og ágerðist svo, að eftir 1964 gat hann naumast eða ekki sinnt búsýslu.
Og enda þótt hann væri til heimilis í Hvammkoti enn um sinn, dvaldist
hann löngum á Sauðárkróki hjá Önnu Leósdóttur frá Víkum á Skaga
og eiginmanni hennar, Agnari Hermannssyni frá Lóni í Viðvíkursveit,
en Anna er fósturdóttir þeirra hjóna Ástu, systur Árna, og Vilhjálms
Árnasonar frá Víkum, bónda á Hvalnesi. Árið 1971 fór Árni svo á
sjúkrahúsið á Sauðárkróki, þá alblindur orðinn, og dvaldist þar unz
yfir lauk, eigi þjáður að vísu og hafði lengstum ferlivist.
Árni Kristmundsson var kjörinn til ýmissa trúnaðarstarfa. Hann sat
Arni
Kristmundsson