Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 61

Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 61
GLÓÐAFEYKIR 61 síðan, jafnframt barnakennari í Skefilsstaðahreppi í nokkur ár frá og með 1959. Jón Normann las ókjörin öll, aflaði sér mikillar þekkingar á ýmsum sviðum og næsta sundurleitum. Hann lagði stund á grasafræði og safnaði plöntum, fékkst við garðrækt og gerði tilraunir með ýmsar nytjaplöntur svo sem ertur, hamp, hör, tóbak o. fl. Mun einna fyrstur manna á landi hér hafa gert tilraunir til að rækta sykurrófur á árunum 1936-1939 og náði allgóðum árangri. Hann lagði stund á ættfræði, var og vel að sér í sögu og fornum fræðum, samdi skýringar við Hávamál, Sögu Móðuharðindanna, Ágrip af sögu Stjórnarbyltingarinnar í Frakklandi, Nokkra frumorta sálma, svo að eitthvað sé nefnt þeirra verka, er hann lét eftir sig í handriti. Árið 1935 kom út eftir hann bókin Vegamót, barna- og unglingasögur. Þá þýddi hann og gaf út 1938 bókina Foreldrar og uppeldi. Af þessari upptalningu má ráða að hugur Jóns frá Hróarsdal stóð til annarra hluta meir en búsýslu, enda var hann eigi mikill bóndi, hafði jafnan fáar skepnur eftir að búskap hóf, enda einhleypingur og einsetumaður löngum um vetur, en á sumrin voru alla jafna hjá honum drengir úr Reykjavík „drengirnir mínir” eins og hann kallaði þá; tvo þessara „ drengja”, er lengst voru hjá honum að sumarlagi, arfleiddi hann að eignarjörð sinni, Selnesi, og öðrum fémunum er hann lét eftir sig. Handritasafn hans, allmikið að vöxtum, en að ýmsu illa farið sakir lélegrar geymslu, er varðveitt í Héraðsskjalasafni Skagfírðinga. Jón var eljumaður, hvprt heldur sat við lestur og skriftir eða stundaði líkamlega vinnu. Ibúðarhús reisti hann á Selnesi og mest með eigin höndum. Haustið 1970 fór Jón vestur um haf í boði nokkurra menntamanna við Cornell- og Harvardháskóla í Bandaríkjunum. Mun það eigi hafa áður gerzt, að kotbónda uppi hér á íslandi væri sýnd þvílík sæmd. Var hann gistivinur prófessora og flutti háskólaerindi um galdur og seið til forna. Jón á Selnesi var í lægra lagi, flatvaxinn, lotinn í herðum á efri árum, eigi smáfríður í andliti, svipfarið alvarlegt og íhugult, augnaráðið fjarrænt á stundum, í annan tíma glettnislegt, ef gamanmál voru höfð, en oft hvimandi og bar naumast vott um sterka skapgerð. Eigi var hann snyrtimaður eða nostursamur. Jón var ágætlega greindur, fæddur fræðimaður og grúskari, en sérsinna um margt og sérvitur kallaður, þræddi og eigi ávallt annarra slóðir. Hann var gæddur skyggnigáfu, trúði á annarlegar verur, góðar og illar. En hann var líka einlægur guðstrúarmaður, hollvinur kirkju og kristinsdóms. Jón kvæntist ekki né átti börn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.