Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 32
32
GLÓÐAFEYKIR
Konur staðarins kærleik sinn
í kaffinu sýna best,
en bændurnir skenkja á bikarinn
brátt, er hann niður sest.
Klukkur bæjarins kveða við.
Ja, hver mundi ei gleðja sig.
Hitaveitan og hennar lið
hækkar um 15 stig.
Nokkru seinna orti sekreterinn enn um Jón vin sinn, er hann átti í
hörðum umræðum við andstæðinga sína og fór hvergi halloka, sem
hans var von og vísa.
Áttræður af ýtum ber
eins og ljónið hundum.
í álfunni situr enginn þér
eldri á sýslufundum.
Eykur hróður, eflir sjóð,
okkar góðu tungu.
Kveður ljóð, svo kætist þjóð
krúnkar í fljóðin ungu.
Er nefndarmaður Hofshrepps, Jón Jónsson, heyrði nefndar vísur
orti hann:
Skella á hryggjum skakkaföll
skáldin hyggja að grun um,
að nú eiga að byggja hundahöll
helst af Tryggingunum.
Sami maður kvað um heimildarbeiðni Jóns á Bakka um lántöku til
vegagerðar í Viðvíkurhreppi. Framorðið var og menn að gerast
syfjaðir:
Stórtækur er stóri Jón á stóra Bakka
þúsund króna tugi tekur
og tvöfalt fleiri söngva getur.
Stórframkvæmdum stefnir að í stríði hörðu
vegað hefir villuslóðir
Vakið þið með mér bræður góðir.