Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 32

Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 32
32 GLÓÐAFEYKIR Konur staðarins kærleik sinn í kaffinu sýna best, en bændurnir skenkja á bikarinn brátt, er hann niður sest. Klukkur bæjarins kveða við. Ja, hver mundi ei gleðja sig. Hitaveitan og hennar lið hækkar um 15 stig. Nokkru seinna orti sekreterinn enn um Jón vin sinn, er hann átti í hörðum umræðum við andstæðinga sína og fór hvergi halloka, sem hans var von og vísa. Áttræður af ýtum ber eins og ljónið hundum. í álfunni situr enginn þér eldri á sýslufundum. Eykur hróður, eflir sjóð, okkar góðu tungu. Kveður ljóð, svo kætist þjóð krúnkar í fljóðin ungu. Er nefndarmaður Hofshrepps, Jón Jónsson, heyrði nefndar vísur orti hann: Skella á hryggjum skakkaföll skáldin hyggja að grun um, að nú eiga að byggja hundahöll helst af Tryggingunum. Sami maður kvað um heimildarbeiðni Jóns á Bakka um lántöku til vegagerðar í Viðvíkurhreppi. Framorðið var og menn að gerast syfjaðir: Stórtækur er stóri Jón á stóra Bakka þúsund króna tugi tekur og tvöfalt fleiri söngva getur. Stórframkvæmdum stefnir að í stríði hörðu vegað hefir villuslóðir Vakið þið með mér bræður góðir.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.