Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 58
58
GLÓÐAFEYKIR
María Guðbjörg Guðmundsdóttir, f. húsfr. á Fagranesi á
Reykjaströnd, lést hinn 14. sept. 1976.
Hún var fædd að Innstalandi á Reykjaströnd 17. apríl 1892, dóttir
Guðmundar bónda þar Sigurðssonar og konu hans Ingibjargar
Björnsdóttur. Var María alsystir Björns bónda á Fagranesi, sjá
Glóðaf. 1973, 14. h. bls. 83, og Sigurlaugar
húsfr. í Ketu í Hegranesi, Glf. 1974, 15. h.
bls. 81.
María óx upp í foreldrahúsum og voru þau
systkinin 5. Ung fór hún í vist til Pálma
kaupmanns á Sauðárkróki Péturssonar og
konu hans Helgu Guðjónsdóttur. Var
heimili þeirra hjóna orðlagt fyrir myndar-
brag og mun hafa reynzt Maríu góður skóli;
naut hún þar tilsagnar í saumum o.fl. og kom
henni vel síðar á ævinni; þá var hún og á
saumanámskeiði hjá Ingibjörgu Pétursdótt-
ur.
Ingibjörg, kona Guðmundar á Innstalandi
og móðir Maríu, lézt síðla árs 1920. Eftir um
María Guðbjörg vorið brá Guðmundur búi og fluttu þau
Guðmundsdóttir mæðgin út að Fagranesi til Björns, sonar
Guðmundar, og konu hans Dýrólínu Jónsdóttur skáldkonu, er þar
höfðu búið frá 1913, en Asgrímur, annar sonur Guðmundar hafði búið
á Innstalandi móti foreldrum sínum frá 1915, bjó þar áfram til 1922,
en fór þá búi sínu að Fagranesi og bjó þar móti Birni bróður sínum og
Dýrólínu ókvæntur til lokadags, en hann drukknaði í fískiróðri í
aftakaveðri 14. des. 1935.
Árið 1929 giftist María Helga Gunnarsyni sjómanns, síðast í
Hnífsdal, Jónassonar bónda í Hólakoti á Reykjaströnd, Jónssonar,
og konu hans vestfirzkrar, Bjarnveigar Jóhannsdóttur af
Arnardalsætt. Var Jónas í Hólakoti, afi Helga, albróðir Sigurjóns á
Skefilsstöðum, sjá Glóðaf. 1970, 11. h. bls. 58. Þau María voru í
húsmennsku á Fagranesi.
Hinn 14. dagur desembermán. 1935 varð mikill örlagadagur í lífi
Maríu á Fagranesi. í voðaveðri, er þann dag gekk yfir Norðurland,
missti hún bæði eiginmann sinn og bróður. Ásgrímur fór í sjóinn, sem
áður greinir, en Helgi varð úti á heimleið frá Sauðárkróki, féll löngu
fyrir aldur fram frá ungum sonum. Höggið var þungt og eigi
ósennilegt að hún hafi riðað við. En trú hennar, manndómur og
andlegt þrek barg henni svo að bugaðist ekki í djúpsárri raun. María
tók til ábúðar jarðarpartinn, er Ásgrímur hafði setið, og bjó þar til