Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 43
GLÓÐAFEYKIR
43
tekin í notkun það ár og mjólkin seld í eins líters plastpokum og tíu
lítra pappakössum, og hélst sú skipan þar til núverandi umbúðir voru
upp teknar.
Frá upphafi vega hefur samlagið lotið stjórn Kaupfélags
Skagfirðinga, enda eign þess, hefur því stjórn K.S. jafnframt verið
yfirstjórn mjólkursamlagsins. Þó hefur sú breyting á orðið, samkvæmt
reglugerð, sem samþykkt var 1973, um að kosið yrði 5 manna
samlagsráð er fjalla skyldi um sérstök málefni samlagsins. Skyldu í því
sitja kaupfélagsstjóri, samlagsstjóri og þrír menn kosnir á aðalfundi.
Fyrsti fundur samlagsráðs var haldinn 19. júní það ár, en í því sátu
Helgi Rafn Traustason, kaupfélagsstjóri, Jóhann S. Þorsteinsson,
samlagsstjóri, Jón Guðmundsson, Öslandi, Ólafur Þórarinsson,
Flugumýrarhvamnmi og Sigurður Sigurðsson, Brúnastöðum.
Hér hefur saga Mjólkursamlags Skagfirðinga verið lauslega rakin
og í stórum dráttum. Er þar mörgu sleppt, sem vert væri að minnast og
sumt að sjálfsögðu ekki síður markvert, en það sem drepið er á og
hlýtur svo jafnan að fara, þá er fjallað er um stóra sögu í stuttu máli.
Þess skal getið, að árið 1981 ritaði Agúst Guðmundsson,
viðskiptafræðingur ágrip af sögu samlagsins og lagði fram, sem
kandídatsritgerð við viðskiptadeild háskólans og er þetta greinarkorn
í verulegum mæli byggt á þeirri ritgerð. En þar er saga
mjólkursamlagsins rakin í glöggu og ítarlegu máli og er mikill fengur
að.
Mjólkursamlag Skagfirðinga á nú röska fimm áratuga sögu að baki.
I sögu þess hafa að sjálfsögðu skipst á skin og skúrir, sem og hjá öðrum
fyrirtækjum sömu gerðar hérlendis. Smátt var af stað farið, en mjór er
mikils vísir og hefur rækilega sannast á ferli fyrirtækisins. Einlægur
framfaravilji og félagsþroski bænda hefur ásamt farsælli forystu gert
samlagið að einu traustasta fyrirtæki, sem rekið er á skagfirskri grund.
Hitt er ekki síður um vert að samlagið hefur á sumum sviðum verið í
fremstu röð sambærilegra fyrirtækja í vöruþróun og vöruvöndun.
Nægir þar að nefna þann orðstí, sem ostagerð samlagsins hefur hlotið,
heima og erlendis.
En nú eru ýmsar blikur á lofti og hafa verið um sinn. Offramleiðsla
landbúnaðarvara er af ýmsum talið helsta vandamál þjóðarbúsins og
bændum og þeirra forustuliði sendar kaldar kveðjur og ekki allar
sterkum rökum studdar. Taumlaust flæði allskonar drykkjarvöru
erlendrar sem innlendrar og miðlungi hollrar á stundum, heyir harða
samkeppni við mjólkina. Markaðslögmálið skal gilda - patentlausn
gróðahyggjunnar. Hvað um það. Mjólkursamlag Skagfírðinga mun
væntanlega enn um langan aldur verða einn af traustustu burðarásum
skagfirskra byggða, jafnframt því að leggja drjúgan skerf til