Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 43

Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 43
GLÓÐAFEYKIR 43 tekin í notkun það ár og mjólkin seld í eins líters plastpokum og tíu lítra pappakössum, og hélst sú skipan þar til núverandi umbúðir voru upp teknar. Frá upphafi vega hefur samlagið lotið stjórn Kaupfélags Skagfirðinga, enda eign þess, hefur því stjórn K.S. jafnframt verið yfirstjórn mjólkursamlagsins. Þó hefur sú breyting á orðið, samkvæmt reglugerð, sem samþykkt var 1973, um að kosið yrði 5 manna samlagsráð er fjalla skyldi um sérstök málefni samlagsins. Skyldu í því sitja kaupfélagsstjóri, samlagsstjóri og þrír menn kosnir á aðalfundi. Fyrsti fundur samlagsráðs var haldinn 19. júní það ár, en í því sátu Helgi Rafn Traustason, kaupfélagsstjóri, Jóhann S. Þorsteinsson, samlagsstjóri, Jón Guðmundsson, Öslandi, Ólafur Þórarinsson, Flugumýrarhvamnmi og Sigurður Sigurðsson, Brúnastöðum. Hér hefur saga Mjólkursamlags Skagfirðinga verið lauslega rakin og í stórum dráttum. Er þar mörgu sleppt, sem vert væri að minnast og sumt að sjálfsögðu ekki síður markvert, en það sem drepið er á og hlýtur svo jafnan að fara, þá er fjallað er um stóra sögu í stuttu máli. Þess skal getið, að árið 1981 ritaði Agúst Guðmundsson, viðskiptafræðingur ágrip af sögu samlagsins og lagði fram, sem kandídatsritgerð við viðskiptadeild háskólans og er þetta greinarkorn í verulegum mæli byggt á þeirri ritgerð. En þar er saga mjólkursamlagsins rakin í glöggu og ítarlegu máli og er mikill fengur að. Mjólkursamlag Skagfirðinga á nú röska fimm áratuga sögu að baki. I sögu þess hafa að sjálfsögðu skipst á skin og skúrir, sem og hjá öðrum fyrirtækjum sömu gerðar hérlendis. Smátt var af stað farið, en mjór er mikils vísir og hefur rækilega sannast á ferli fyrirtækisins. Einlægur framfaravilji og félagsþroski bænda hefur ásamt farsælli forystu gert samlagið að einu traustasta fyrirtæki, sem rekið er á skagfirskri grund. Hitt er ekki síður um vert að samlagið hefur á sumum sviðum verið í fremstu röð sambærilegra fyrirtækja í vöruþróun og vöruvöndun. Nægir þar að nefna þann orðstí, sem ostagerð samlagsins hefur hlotið, heima og erlendis. En nú eru ýmsar blikur á lofti og hafa verið um sinn. Offramleiðsla landbúnaðarvara er af ýmsum talið helsta vandamál þjóðarbúsins og bændum og þeirra forustuliði sendar kaldar kveðjur og ekki allar sterkum rökum studdar. Taumlaust flæði allskonar drykkjarvöru erlendrar sem innlendrar og miðlungi hollrar á stundum, heyir harða samkeppni við mjólkina. Markaðslögmálið skal gilda - patentlausn gróðahyggjunnar. Hvað um það. Mjólkursamlag Skagfírðinga mun væntanlega enn um langan aldur verða einn af traustustu burðarásum skagfirskra byggða, jafnframt því að leggja drjúgan skerf til

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.