Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 55

Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 55
GLÓÐAFEYKIR 55 Stefánsdóttir. Þau slitu samvistum. Árið 1936 kvæntist hann Ingibjörgu Arnadóttur prófasts á Stóra-Hrauni Þórarinssonar, hins nafnkunna klerks. Lifir Ingibjörg mann sinn ásamt syni þeirra hjóna, Arna, fiskimatsmanni á Sauðárkróki. Son átti Gunnar áður en hann kvæntist Ingibjörgu, Helga Guðmund, forstöðumann vinnuhælisins á Litla Hrauni. Stjúpsonur Gunnars, er hann gekk að öllu í föðurstað, er Gísli Geir Hafliðason, rafvirkjameistari í Reykjavík. Gunnar Guðmundsson var smiður góður og hafði ágæta verkþekkingu. Á Reykjum reisti hann flest hús frá grunni, var og oft kvaddur að heiman til þeirra starfa, er þekkingu og færni þurfti til að inna af hendi. En með tilkomu mæðiveikinnar reið ólán yfir heimili og efnahag, og þeim mun meira sem mjólkursölu varð eigi við komið sakir vegleysis. Gunnar á Reykjum - en svo var hann tíðum nefndur síðara hluta ævinnar - var góður meðalmaður á vöxt, mikill á yfirbragð, þróttmannlegur og djarfmannlegur, mikill hæfileikamaður og margt vel gefið. Honum er svo lýst af kunnugum, að hann hafi verið „óvenjulegt karlmenni í lund, harðfylginn, dugmikill og óvæginn sjálfum sér og öðrum, hrjúfur á yfirborðinu en drenglyndur og hlýr, þegar innar var leitað, óvenju heitur og einlægur trúmaður”. Gunnar hafði ágæta söngrödd, hóf að syngja með Karlakór Reykjavíkur þegar er hingað kom upp frá Noregi og hélt því áfram meðan dvaldist í Reykjavík, var með í söngför kórsins til Noregs 1935, einnig í Alþingishátíðarkórnum 1930. Gunnar var lífbjartur maður frá fyrsta fari, en átti löngum við nokkra efnahagsörðugleika að etja og naut sín eigi fyrir þær sakir svo sem efni stóðu til. En hann fór með hreinan skjöld af þessum heimi, ef til vill svolítið iljasár. Þórarinn Eymundsson, bóndi í Saurbæ á Neðribyggð, lést hinn 13. ágúst 1976. Hann var fæddur í Saurbæ 12. maí 1925, sonur Eymundar bónda þar Jóhannssonar bónda s. st., Jóhannssonar bónda á Hafgrímsstöðum í Tungusveit, Jóhannssonar á Minna-Grindli í Fljótum, Tómassonar bónda þar, Sigurðssonar, - og konu hans Ástríðar Jónsdóttur bónda á Krithóli Eyjólfssonar, en kona Jóns og móðir Ástríðar var Ingibjörg Björnsdóttir, er áður var gift Árna Jónssyni skálds á Víðimýri. Jóhann í Saurbæ, faðir Eymundar, föður Þórarins, var albróðir Guðjóns á Nýlendi, sjá Glóðaf. 1977, 18. h. bls. 58. Þórarinn ólst upp í Saurbæ með foreldrum sínum. Faðir hans andaðist á fimmtugasta aldursári í ársbyrjun 1942. Ástríður bjó áfram
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.