Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 59

Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 59
GLÓÐAFEYKIR 59 1943, er hún sleppti búi og flutti með sonum sínum til Sauðárkróks, hélt heimili með þeim, vann við sauma og síðan í físki, meðan heilsa og kraftar entust. Síðustu árin bjó hún með Inga, elsta syni sínum. Þrír eru synir þeirra Maríu og Helga og allir á Sauárkróki: Ingi, verkam., Gunnar, vélsmiður og Asgrímur. verslunarm. hjá K.S. María Guðmundsdóttir var myndarkona í sjón. Hún var greind kona, gædd mikilli atorku, miklu þreki og þolgæði, miklu trúartrausti, vinsæl kona og virt af öllum, sem til hennar þekktu. Jón Gíslason,bóndi að Miðhúsum í Blönduhlíð, varð bráðkvaddur hinn 30 ágúst 1976. Hann var fæddur á Minni-Ökrum í Blönduhlíð 15. okt. 1893, sonur Gísla, síðar og lengst bónda í Miðhúsum, Þorfínnssonar, afkomanda Jóns fjórðungslæknis í Viðvík, Péturssonar, og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur. Var Jón í Miðhúsum albróðir Ama, föður síra Sigfúsar á Miklabæ, sjá Glóðaf. 1972, 13. h. bls. 54 og Aðalbjargar, Glf. 1979, 19. h. bls. 62. A sjöunda aldursári fluttist Jón með foreldrum sínum að Miðhúsum, ólst þar upp í stórum og glaðværum systkinahópi og átti þar heima til æviloka. Ungur maður var hann í veturvist og kaupamennsku á nokkrum bæjum, í Vallholti ytra, á Silfrastöðum, í Réttarholti. Annað né lengra fór hann eigi til heimandvalar. Jón tók við búi árið 1920 og bjó þar lengstum með Aðalbjörgu systur sinni. Þau voru ákaflega samrýmd og samhent, sem og að vísu systkinin öll. Hvorugt þeirra giftist né átti börn, en árið 1927 tóku þau í fóstur systurson sinn, Gísla, nú bónda í Miðhúsum, og gengu honum að öllu í foreldrastað. Þrúður, móðir hans og systir þeirra, dó snemma árs 1928, en alls voru systkinin 7, þau er upp komust. Jón í Miðhúsum bjó snotru búi en eigi stóru, natinn við skepnur, hestelskur og var á hestbaki síðasta kvöldið, sem hann lifði. Þau voru frábærlega gestrisin, systkinin, og notalegt og gott með þeim að vera. Jón gegndi ýmsum trúnaðarstörfum. Sat í hreppsnefnd a.m.k. 8 ár og var jafnlengi fjallskilastjóri, mörg sumur varðmaður við Héraðsvötn á vegum Sauðfjárveikivarna; þá var hann og fjölda ára fulltrúi á Jón Gíslason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.