Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 15

Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 15
GLÓÐAFEYKIR 15 umsjónaraðila með þeirri uppbyggingu til að tryggja, að þau hús sem byggð yrðu, uppfylltu þær kröfur, sem útflutningsmarkaðirnir gerðu til slíkra húsa. Menn gerðu sér ennfremur ljóst strax í upphafi, að fjármagn þyrfti að tryggja til að þessi uppbygging yrði möguleg innan þeirra tímatakmarkana, sem nefndin setti. Voru því jafnframt gerðar tillögur um fjármagnsútvegun til Stofnlánadeildar landbúnaðarins, svo hún gæti veitt lán til bygginganna. Einnig var gerð tillaga um stofnun sjóðs, er styrkja myndi byggingu húsanna með óendurkræfu framlagi. Ástæðan fyrir því var sú, að menn gerðu sér ljóst, að hús þessi yrðu það dýr í byggingu, að ekki væri möguleiki á að rekstrarkostnaður þeirra færi óskertur inn í afurðaverðið, án þess að hafa alvarlegar afleiðingar á markaðsstöðu afurðanna. Einnig var ljóst, að bændur gætu ekki tekið þennan kostnað á sig í lækkuðu skilaverði svo nokkru næmi. Skagfirskir bændur fylgdust að sjálfsögðu vandlega með þessari þróun, og það mun hafa verið á aðalfundi Akradeildar árið 1967, sem tillaga kemur fram til aðalfundar KS um að félagið hæfi undirbúning að stækkun sláturhússins. Þessi tillaga var rædd, og töldu menn rétt að fylgjast vandlega með framvindu mála, og hvernig sláturhúsa- íætluninni reiddi af. Árin 1968 og 1969 voru norðlenskum bændum •'.far erfið. Hafís fyllti voga og víkur, kal og grasleysi var gífurlegt vandamál og fjárhagsstaða bænda og kaupfélags því með lakasta móti. Var því beðið átekta um sinn. Endurbygging hefst Á stjórnarfundi í árslok 1971 var tekin ákvörðun um að hefja á næsta ári endurbyggingu sláturhússins á Eyri skv. tillöguteikningum, er þá lágu fyrir. Voru þær í samræmi við fyrrnefnda sláturhúsaáætlun, sem yfirvöld búnaðarmála höfðu gert tillögu um og Alþingi samþykkt. Var áætluninni eins og fyrr er tæpt á, gert ráð fyrir að Stofnlánadeild landbúnaðarins veitti hagstæð langtímalán sem næmu allt að 50% byggingakostnaðar. Framleiðnisjóður landbúnaðarins átti svo að veita til viðbótar óendurkræft framlag sem næmi allt að 33% byggingarkostnaðar. Þótti mönnum sýnt, að kaupfélaginu myndi takast að afla þeirra 17% sem á vantaði. Snemma sumars árið 1972 hófst svo endurbyggingin og um haustið var í síðasta sinn slátrað eftir gamla laginu. Varð þá að gera ýmsar skammtímaráðstafanir svo hægt væri að lóga í hálfbyggðu húsinu. Að lokinni haustslátrun var tekið til óspilltra málanna við framhald byggingarinnar, og tókst með miklu harðfylgi að ljúka henni í tæka tíð fyrir haustslátrun 1973. Þurfti einungis að fresta slátrun um örfáa daga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.