Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 21
GLÓÐAFEYKIR
21
síðar varð skipstjóri á hákarlaskipum frá Siglufirði, og Ólöf. Frá
Hofsósi fluttist fjölskyldan til Siglufjarðar, þar sem Guðmundur
gerðist verslunarstjóri.
Móðir mín ólst upp eftir lát föður síns á Siglunesi hjá Barða
hálfbróður sínum Barðasyni og gætti þar frænda sinna, þeirra Jóns
Barðasonar, er varð harðsækinn aflamaður og skipstjóri á ísafirði, og
Barða Barðasonar (yngra), er varð landsfrægur aflamaður, einkum á
síldveiðum og margir hér þekkja.
Faðir minn fæddist í Háakoti í Stíflu 12. 8. 1871, sonur Vilhjálms
Jónssonar, bónda á Karlsstöðum Magnússonar. Jón faðir Vilhjálms
átti að síðari konu Sólveigu Vilhjálmsdóttur frá Hellu í Blönduhlíð.
Heyrt hefi ég, að Vilhjálmur á Hellu hafí ekki verið búmaður, en
bókhneigður með afbrigðum, jafnvel setið yfír erlendum fræðibókum
á sumrum, þó flæsa væri úti.