Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 46

Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 46
46 GLÓÐAFEYKIR Mörg haust var Ingimundur markskoðunarmaður sláturfjár hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Hann var maður sívinnandi alla ævi. Fyrir því gafst honum minni tími en kosið hefði til að sinna félagsmálum ýmsum. Hann var félagsmaður í Leikfélagi Sauðárkróks og annaðist m.a. mörg ár dyravörslu, er leiksýningar fóru fram. Hann var og virkur félagi í Iðnaðarmannafélags Sauðárkróks og kjörinn heiðursfélagi á 85 ára afmæli sínu. Að honum látnum keypti Iðnaðarmannafélagið íbúðarhús þeirra hjóna ásamt smiðju Ingimundar og öllum áhöldum og tækjum, er hann mörg hafði sjálfur smíðað. Mun félagið hafa í hyggju að koma þar upp iðnminjasafni. Ingimundur Bjarnason var meðalmaður á hæð, þrekvaxinn og hraustmenni, myndarmaður í sjón, skarplegur á svip, andlitið rist nokkrum rúnum. Hann var greindur maður, alla jafna glaður í viðmóti, glettinn oft í svörum, hispurslaus við háa sem lága, vinsæll maður og vandaður, rækti allar kyldur við lífið og samfélagið af stakri trúmennsku. Gísli Benjamínsson, verslunarmaður í Hofsós, lést 19. mars 1976. Hann var fæddur á Ingveldarstöðum í Hjaltadal 8. júní 1891, sonur Benjamíns bónda þar Friðfinnssonar og konu hans Elínar Guðmundsdóttur. Var hann albróðir Sigurjóns á Nautabúi og Ingveldarstöðum, sjá Glf. 1969, 9. h. bls. 50, og Guðmundar í Smiðsgerði, Glf. 1971, 12. h. bls. 51. Gísli óx upp í foreldragarði. Hann stundaði nám í gagnfræðaskólanum á Akureyri og lauk prófi þaðan 1914. Snemma bar á því að hann hneigðist að verslunarstörfum um annað fram. „Ungur maður pantaði hann 16 tunnur af kornmat frá Reykjavík fyrir Hjaltdælinga, fékk vöruna upp í Kolkuós og flutti heim til bænda. Eina krónu lagði hann á hverja tunnu og þótti sumum of mikill kostnaður”. (Björn í Bæ). Eigi miklu síðar en þetta gerðist flutti Gísli út í Hofsós, stundaði þar ýmsa vinnu og rak jafnframt smáverslun. Gísli var í hópi þeirra, er snerust heils hugar til fylgis við hugsjón samvinnustefnunnar. Arið 1925 réðst hann til Kaupfélags Fellshrepps í Hofsós, er þá hét svo, vann þar að vetrinum, en í Kjötbúð Siglufjarðar á sumrin. A fjórða áratugnum Gísli Benjamínsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.