Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 75
GLÓÐAFEYKIR
75
Foreldrar: Gísli bóndi þar og síðar á Vöglum, sýslunefndarm. og
oddviti, Björnsson bónda á Sleitustöðum i
Kolbeinsdal, Jónssonar bónda í Haga í
Aðaldal,^ Asmundssonar, og kona hans
Þrúður Ámadóttir bónda á Stóru-Ökrum,
Jónssonar bónda í Miðhúsum í Blönduhlíð,
Björnssonar, og konu hans Sigríðar
Jóhannsdóttur bónda í Krossanesi, Þorvalds-
sonar. Þriðja kona Björns á Sleitustöðum og
móðir Gísla á Ökrum, föður Magnúsar, var
Sigríður Þorláksdóttir alsystir Gísla,
hreppstjóra á Hjaltastöðum og síðar á
Frostastöðum. Er þau foreldrar Gísla, Björn
á Sleitustöðum og Sigríður, fóru til
Vesturheims árið 1876, vildi drengsnáðinn,
aðeins 5 ára gamall, fyrir engan mun fara
með þeim; varð því úr að Gísli móðurbróðir
hans og Sigríður Magnúsdóttir, kona hans,
tóku Gísla í fóstur og hjá þeim ólst hann upp
til fullorðinsára ásamt með einkasyni þeirra hjóna, Magnúsi, síðar
hreppstj. á Frostastöðum. Bar Magnús á Vöglum nöfn þeirra
Magnúsar og Kristínar, konu hans.
Magnús á Vöglum var einkabam foreldra sinna og ólst upp með
þeim á Ökrum. Hann stundaði nám í Hólaskóla og lauk prófi þaðan
1918. Það hið sama ár fóru þeir feðgar búi sínu að Vöglum og höfðu
raunar áður haft nokkurn hluta jarðarinnar til nytja um skeið. Gísli á
Vöglum, faðir Magnúsar lézt í lok júnímán. 1937, tók þá Magnús við
allri jörðinni nema hvað móðir hans taldist búa á litlum hluta, og bjó
þar einn með konu sinni unz sonur þeirra hjóna hóf búskap á sambýli
við þau. Nokkru eftir 1970 hætti Magnús allri búsýslu og hafði þá búið
á Vöglum meir en hálfa öld og lengstum við góð efni. Þrúði móður sína
missti Magnús háaldraða um Jónsmessubil 1965, annálaða gæðakonu,
sem öllum þótti vænt um.
Magnús gegndi ýmsum trúnaðarstörfum, sat m.a. í hreppsnefnd og
skólanefnd, var úttektarmaður í Akrahreppi í áratugi, var mörg ár
fulltrúi á aðalfundum Kaupfél. Skagf. og Búnaðarsamb. Skagf. og lét
þar oft til sín taka. Þá var hann og á sínum tíma í framboði til alþingis í
Skagafjarðarsýslu fyrir Bændaflokkinn.
Magnús á Vöglum var bóndi af lífi og sál, mikill ræktunarmaður.
Vaglar í Blönduhlíð standa hátt. Hvergi getur fegurri sýn um hið víða
og fagra hérað. Og í höndum þeirra feðga varð jörðin, sem áður var
talin heldur kostarýr, eitt hið fegursta býli og bar stórbú. Magnús var í
Magnús Kristinn
Gíslason