Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 75

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 75
GLÓÐAFEYKIR 75 Foreldrar: Gísli bóndi þar og síðar á Vöglum, sýslunefndarm. og oddviti, Björnsson bónda á Sleitustöðum i Kolbeinsdal, Jónssonar bónda í Haga í Aðaldal,^ Asmundssonar, og kona hans Þrúður Ámadóttir bónda á Stóru-Ökrum, Jónssonar bónda í Miðhúsum í Blönduhlíð, Björnssonar, og konu hans Sigríðar Jóhannsdóttur bónda í Krossanesi, Þorvalds- sonar. Þriðja kona Björns á Sleitustöðum og móðir Gísla á Ökrum, föður Magnúsar, var Sigríður Þorláksdóttir alsystir Gísla, hreppstjóra á Hjaltastöðum og síðar á Frostastöðum. Er þau foreldrar Gísla, Björn á Sleitustöðum og Sigríður, fóru til Vesturheims árið 1876, vildi drengsnáðinn, aðeins 5 ára gamall, fyrir engan mun fara með þeim; varð því úr að Gísli móðurbróðir hans og Sigríður Magnúsdóttir, kona hans, tóku Gísla í fóstur og hjá þeim ólst hann upp til fullorðinsára ásamt með einkasyni þeirra hjóna, Magnúsi, síðar hreppstj. á Frostastöðum. Bar Magnús á Vöglum nöfn þeirra Magnúsar og Kristínar, konu hans. Magnús á Vöglum var einkabam foreldra sinna og ólst upp með þeim á Ökrum. Hann stundaði nám í Hólaskóla og lauk prófi þaðan 1918. Það hið sama ár fóru þeir feðgar búi sínu að Vöglum og höfðu raunar áður haft nokkurn hluta jarðarinnar til nytja um skeið. Gísli á Vöglum, faðir Magnúsar lézt í lok júnímán. 1937, tók þá Magnús við allri jörðinni nema hvað móðir hans taldist búa á litlum hluta, og bjó þar einn með konu sinni unz sonur þeirra hjóna hóf búskap á sambýli við þau. Nokkru eftir 1970 hætti Magnús allri búsýslu og hafði þá búið á Vöglum meir en hálfa öld og lengstum við góð efni. Þrúði móður sína missti Magnús háaldraða um Jónsmessubil 1965, annálaða gæðakonu, sem öllum þótti vænt um. Magnús gegndi ýmsum trúnaðarstörfum, sat m.a. í hreppsnefnd og skólanefnd, var úttektarmaður í Akrahreppi í áratugi, var mörg ár fulltrúi á aðalfundum Kaupfél. Skagf. og Búnaðarsamb. Skagf. og lét þar oft til sín taka. Þá var hann og á sínum tíma í framboði til alþingis í Skagafjarðarsýslu fyrir Bændaflokkinn. Magnús á Vöglum var bóndi af lífi og sál, mikill ræktunarmaður. Vaglar í Blönduhlíð standa hátt. Hvergi getur fegurri sýn um hið víða og fagra hérað. Og í höndum þeirra feðga varð jörðin, sem áður var talin heldur kostarýr, eitt hið fegursta býli og bar stórbú. Magnús var í Magnús Kristinn Gíslason

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.