Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 63

Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 63
GLÓÐAFEYKIR 63 í hreppsnefnd 1946-1962 og mörg ár í skattanefnd, kosinn varamaður í sýslunefnd 1946 og sat tvo aðalfundi sýslunefndar; mörg ár form. Búnaðarfél. Skefilsstaðahr. og oftsinnis fulltrúi félagsins á aðalfundum Búnaðarsamb. Skagf.; formaður Lestrarfél. Skefilsstaða- hr. og bókavörður. Þá hafði Ami með höndum frá árinu 1951 og allt þar til hann hætti búskap afgreiðslu á vörum fyrir Kaupfélag Skagfírðinga, er félagið geymdi löngum í vöruskýli við Selvík á Skaga. Hafði hann ánægju af því starfi og rækti sem önnur öll, er honum voru falin, af einstakri trúmennsku og samvizkusemi. Meðan Arni bjó á Hóli stundaði hann sjó allmikið, var formaður á bát, sem reri frá Selvík á hverju hausti, en óf á vetrum fyrir eigið heimili og önnur. ,,Hann var maður vel verki farinn, vandvirkur þrifnaðarmaður”. Hvorki kvæntist hann né átti börn. Arni Kristmundsson var hár maður en frekar grannvaxinn, toginleitur, eigi andlitsfríður en vandist hverjum manni vel. Hann var greindur maður, hlédrægur og hélt sér hvergi fram, orðvar og umtalsgóður, ávallt glaður í bragði þrátt fyrir margara ára myrkur. Eigi var hann maður ytri umsvifa, hæglátur, rósamur, hafði yndi af viðræðum við kunningja og vini, lifði lífi sínu í góðvild til annarra, heiðursmaður á hverja grein. A sjúkrahúsinu vann hann hvers manns hug, lækna jafnt sem starfsfólks, þessi prúði, hógláti og skapstillti öldungur. Guðmundur Valdemarsson , bóndi í Bólu í Blönduhlíð, lézt 18. okt. 1976. Hann var fæddur að Fremri-Kotum á Norðurárdal 7.nóv. 1911, sonur Valdemars bónda þar Guðmundssonar og konu hans Arnbjargar Guðmundsdóttur, sjá þátt um Valdemar í Glóðaf. 1973 14.h. bls. 91. Guðmundur óx upp með foreldrum sínum á Fremri-Kotum og fluttist með þeim að Bólu árið 1924 og hvarf eigi þaðan meðan ævin entist. Hann missti móður sína árið 1938. Eftir það bjuggu þeir feðgar tveir einir í Bólu unz Valdemar dó árið 1966. Guðmundi var í ríkum mæli gefin sú fagra dyggð að heiðra föður sinn og móður af einlægni og óvenju heilum huga, enda lundheill maður og tryggur. Eftir lát föður síns var hann einbúi um sinn, en um 1970 réðst til hans drengur úr Reykjavík, Gunnar Sigurðsson, um það bil 11 ára, og skildu þeir eigi síðan meðan báðir lifðu, enda mjög samrýmdir. Guðmundur í Bólu var góður meðalmaður á vöxt, geðfelldur maður í sjón og raun. Æviferill hans var eigi fjölbrugðinn og margslunginn, brautin bein og krókalaus, gengin hægum, jöfnum skrefum, ávallt horft um fætur fram og eigi hnotið. Guðmundur var ágætlega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.