Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 53

Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 53
GLÓÐAFEYKIR 53 María, húsfr. á Akureyri, Sigurður, bóndi á Stóru-Ökrum, Hjörtína, ógift, til heimilis þar á Ökrum og Katrín, húsfr. á Sauðárkróki. Ingibjörg Sigurðardóttir var í hærra lagi, grönn og íturvaxin, skarpholda, svipurinn geðfelldur og góðmannlegur. Hún var hóglát og stillt, gædd mikilli skapfestu, viljaþreki og seiglu. Hún var glaðlynd að eðlisfari og eigi vílmóð, sterklunduð og heillynd mannkostakona. Páll Þorkelsson, verkam. á Sauðárkróki, lést 24. júní 1976. Hann var fæddur að Rein í Hegranesi 19. mars 1908, sonur Þorkels síðast bónda á Ingveldarstöðum á Reykjaströnd Jónssonar og konu hans Önnu Sigríðar Sigurðardóttur, var Páll albróðir Sigmundar, sjá þátt um hann í Glóðaf. 19. Páll ólst upp með foreldrum sínum ytra ' . , l. þar á Reykjaströnd, Daðastöðum og Ingveldarstöðum, vann síðan að búi foreldra sinna, stundaði og sjó öðrum þræði, var um skeið á Syðri-Hofdölum og kynntist þar konuefni sínu, en flutti til Sauðárkróks 1929 og átti þar heima til æviloka. Páll stundaði lengstum algenga verka- mannavinnu, var ágætur verkmaður, kappsamur, duglegur og hagvirkur. Síðari árin vann hann einkum við múrverk og reyndist þar sem ella liðtækur í besta lagi. Hann kenndi vanheilsu er á ævi leið, en vann þó lengstum fullan vinnudag. Páll var tvígiftur. Arið 1929, á gamlaársdag, gekk hann að eiga Þórdísi Jónasdóttur skálds og bónda á Syðri-Hofdölum Jónassonar og konu hans Önnu Jónsdóttur, sjá þátt af þeim í Glóðaf. 1973, 14. h. bls. 64. Þórdís lést 1942. Þau Páll eignuðust einn son, Jónas Þór, málarameistara á Sauðárkróki. Árið 1949, hinn 20. des., kvæntist Páll seinni konu sinni, Kristínu Jónsdóttur bónda á Grófargili á Langholti, Benediktssonar, og konu hans Sigurlaugar Brynjólfsdóttur. Er Kristín alsystir Birnu, ekkju Eiríks á Fagranesi, sjá Glf. 1973, 14. h. bls.54. Dætur þeirra hjóna eru þrjár, er upp komust: Þórdís, Anna Þorkatla og Sigurlaug Sigríður, allar ógefnar í foreldragarði. Páll Þorkelsson var meðalmaður á hæð, frekar þrekvaxinn, gervilegur maður og myndarlegur, fölleitur ásýndum, fullur að vöngum. Hann var greindur vel, vinsæll maður og vel látinn sem þau Ingveldarstaðasystkini öll. Páll Þorkelsson

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.