Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 76

Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 76
76 GLÓÐAFEYKIR eðli sínu fésýslumaður, sparsamur og nýtinn, fyrirhyggjubóndi um alla hluti, vinnusamur, harðsækinn athafnamaður, en slakaði þó stundum á taumum og naut þá lífsins í ríkum mæli. Árið 1921 kvæntist Magnús Ingibjörgu Stefánsdóttur bónda á Þverá í Blönduhlíð, Sigurðssonar, og konu hans Hjörtínu Hannesdóttur. Ingibjörg andaðist árið 1971, sáþátt um hana í Glf. 1976,17. h. bls. 66. Einkabarn þeirra hjóna er Gísli, bóndi á Vöglum. Magnús Kr. Gíslason var hár maður og grannvaxinn, toginleitur og skarpleitur, fríður í andliti, vakti athygli, hvar sem hann fór. Hann var ágætlega greindur, las mikið, var vel að sér í fornum skáldskap og nýjum, unni fögrum kvæðum, en hafði ódulinn viðbjóð á órimuðum ljóðum. Hann var vel máli farinn og hraðmælskur, ef hitnaði í geði eða dreypt var á skálum. Hann var prýðilega skáldmæltur, kom út eftir hann tvær ljóðabækur, Ég kem norðan Kjöl (1954) og Vísur og kvæði frá Vöglum, auk þess kvæði og stökur í Skagfirskum ljóðum svo og í blöðum og tímaritum austan hafs og vestan. Lausavísur hans margar bera mjög af lengri kvæðum, enda sumar listavel gerðar og eigi fáar landskunnar. Magnús á Vöglum var um marga hluti vel gerður maður og óvenjulegur um sumt. Skaphöfn hans var slungin miklum andstæðum. í honum var bæði „gull og grjót”. Hann var hvort tveggja í senn, harðjaxl og viðkvæmur, aðsjáll og þó höfðingi, rakinn rökhyggjumaður og þó hvergi nærri sneyddur ímyndunarafli og hugsjónum. Hann var alvörumaður, unni ættjörð sinni og sveit heilum huga. Ef til vill var lífsfylling hans í því fólgin öðru fremur, að skila henni vönduðu verki, enda kastaði hann aldrei höndum til neins. Og þá var hann allur og heill í fögnuði sínum hvarvetna þar sem „léttast var kveðið og glaðast sungið”. Aths:. Þessir þættir eru allir af eftirlátnum blöðum Gísla heitins Magnús- sonar í Eyhildarholti og ber að hafa það í huga við lestur þeirra. Að sjálfsögðu hefur margt breyst frá því þeir voru skráðir, svo sem víða kemur fram. Rögnvaldur, sonur Gísla bjó þættina til prentunar.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.