Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 27

Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 27
GLÓÐAFEYKIR 27 kr. 300.000.- að láni frá Framkvæmdabanka íslands, sem þá var við líði. Breytingarnar kostuðu ca. 2,8 milljónir, og varð það allstór biti að kyngja litlu félagi, en tókst þó, án þess að auka lausaskuldir út á við til muna. Var það mikið því að þakka, að lausaíjárstaða félagsins var góð, t.d. voru inneignir viðskiptamanna í árslok 1965 umfram skuldir 2,5 milljónir, auk 6,5 milljóna í innlánsdeild. -Og hafði félagið fleiri jám í eldi? -Ojú. Kaupfélagið rak m.a. vörubíl, sem það hafði í ferðum til Reykjavíkur. Bílstjóri var öll árin Jón Kjartansson, reyndur og duglegur bílstjóri, sem gekk hart eftir að viðhald og endurnýjun væri í lagi, enda hlekktist honum aldrei á í ferð. Ég var annars mjög heppinn með starfsfólk, enda mannaskipti fátíð, og þakka ég því mikið, að reksturinn gekk allvel þann tíma, er ég var kaupfélagsstjóri. En auðvitað er ekki mitt að dæma um það. Þó get ég sagt, að ég vann mikið - kannski of mikið - en svo vill verða hjá litlum félögum. þar sem enginn er deildarstjóri, enginn innkaupastjóri, enginn fulltrúi o.s.frv. Þá er kannski hætt við, að of mikið mæði á kaupfélagsstjóranum, ábyrgð og vinnuálag, því þessi litlu félög verða að sigla sama sjó og hin stærri í fjármálum og annarri stjórnun. -En hvað um samstarfið við stjórnina? -Á þessum árum var stjórnin skipuð þessum mönnum: Jón Jónsson á Hofí, sem var formaður, Friðbjörn Traustason á Hólum, Kristján Jónsson á Óslandi, Þorsteinn Hjálmarsson, Hofsósi, Jón Guðnason, Heiði, og eftir lát hans Stefán Gestson, Arnarstöðum. Samstarf við þessa ágætu menn var mjög gott. -Hvenær hverfur þú svo frá félaginu? -Ég sagði upp starfi 1966 og tók við útibússtjórastarfi við Samvinnubankann á Sauðárkróki og umboði fyrir Samvinnu- tryggingar í Skagafirði. Þau störf hafði ég með höndum til ársins 1982, er ég lét af störfum vegna aldurs. Öll þau ár var Sigmundur Guðmundsson gjaldkeri við Utibúið. Þakka ég honum frábært starf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.