Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 54
54
GLÓÐAFEYKIR
Gunnar Guðmundsson, f. bóndi að Reykjum á Reykjaströnd, lést
hinn 30. júlí 1976.
Hann var fæddur að Herjólfsstöðum á Laxárdal ytra 27. júní 1898,
sonur Guðmundar bónda þar Guðmundssonar, síðast bónda á
Ingveldarstöðum á Reykjaströnd, Gunnarssonar hreppstj. á
Skíðastöðum á Laxárdal, og konu hans
Ingibjargar Björnsdóttur hreppstj. að
Hafragili á Laxárdal, Gunnarssonar hrepp-
stj. á Skíðastöðum, en kona Björns á
Hafragili og móðir Ingibjargar var Guðrún
Ólafsdóttir bónda og smiðs á Ingveldarstöð-
um á Reykjaströnd, Kristjánssonar.
Gunnar var yngstur fjögurra systkina, er á
legg komust, en nokkur dóu í fyrstu bernsku.
Hann ólst upp með foreldrum sínum við
mikla fátækt og hrakhólabúskap. Arsgamall
fór hann með þeim að Ingveldarstöðum, að
Sveinskoti 1907 og loks að Hrafnagili á
Laxárdal 1913, þar sem foreldrar hans
bjuggu til 1924, er þau slepptu búi og fluttu
til Sauðárkróks.
Kringum tvítugsaldur réðst Gunnar í vist
að Heiði í Gönguskörðum til Þorbjarnar
bónda. Þá var hann og kaupamaður á Veðramóti, einnig viðurloða á
Reykjum á Reykjaströnd um hríð. „stundaði jöfnum höndum
sjómennsku og bústörf og féll hvort tveggja vel”. Er Friðvin
Ásgrímsson bóndi á Reykjum lést, - en þann mann mat Gunnar um
aðra fram, - gerðist hann ráðsmaður hjá ekkju hans, Margréti
Jóhannsdóttur, til næsta vors, er hún brá búi, var og formaður á
sexæringi, er gerður var út frá Reykjum á haustvertíð.
Gunnar var mikill efnismaður. Stóð hugur hans til meiri frama en
hljóta mátti þar heima í sveitinni. Var það mjög að ráði Sigurðar
bónda á Veðramóti, að Gunnar réðst utan til náms í lýðháskólanum í
Voss í Noregi haustið 1924, enda þótt farareyrir væri af skornum
skammti. Að loknu þriggja vetra námi í Voss réðst hann til náms við
tækniskólann í Porsgrunn, var þar aðra þrjá vetur og stundaði
raffræðinám. Að því námi loknu hvarf hann aftur heim til Islands og
vann að rafmagnsstörfum hjá ýmsum verktökum í Reykjavík uns
hann leitaði norður hingað í átthagana 1937, keypti Reyki á
Reykjaströnd, reisti þar bú og bjó nær tveim tugum ára, brá þá búi,
fluttist með konu sinni til Sauðárkróks og átti þar heima til æviloka.
Gunnar var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigur/ína
Gunnar
Guðmundsson