Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Blaðsíða 48
Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 201548 Sport
Þetta eru framtíðar landsliðsmenn íslands
n Sérfræðingar horfa tvö til fjögur ár fram í tímann n Kynslóðaskipti eru óhjákvæmileg
Ó
hjákvæmilegt er að kyn
slóðaskipti verði í íslenska
karlalandsliðinu í hand
knattleik á næstu árum.
Fimm leikmenn sem spil
uðu með liðinu á HM í Katar
eru orðnir 33 ára eða eldri. Einn
þeirra, Sverre Jakobsson, hef
ur lagt landsliðsskóna á hilluna
en óhjákvæmilegt er að Snorri
Steinn Guðjónsson, Guðjón Val
ur Sigurðsson, Alexander Pet
ersson, Róbert Gunnarsson og
Vignir Svavarsson leggi keppnis
skóna á hilluna einhvern tímann á
næstu fjórum eða fimm árum, hið
minnsta. Við hópinn má bæta Þóri
Ólafssyni sem hefur verið í lands
liðinu á undanförnum árum, ef
mótið í Katar er undanskilið.
DV fékk þrjá heiðursmenn,
sem gjörþekkja til handbolta á
Íslandi og í Evrópu, til að leggja
mat á það hvaða leikmenn munu
á næstu tveimur til fjórum
árum taka við þeim hlut
verkum í landsliðinu
sem þessir sex til
sjö leikmenn hafa
gegnt á undan
förnum árum.
Sérfræðingarn
ir eru Guð
jón Guð
mundsson,
íþróttaf
réttamaður
og hand
bolta
spekúlant, Einar Andri Einarsson,
þjálfari Aftureldingar, eins efni
legasta liðs á Íslandi um þessar
mundir, og Óskar Bjarni Óskars
son, fyrrverandi aðstoðarlands
liðsþjálfari og núverandi þjálfari
kvennaliðs Vals.
Aldur afstæður
Guðjón bendir á að aldur sé af
stæður og að leikmennirnir sem
eru orðnir 33–35 ára geti átt nokk
ur góð ár eftir – og jafnvel leikið
lykilhlutverk. Það sjáist ár eftir ár
á stórmótum. Hins vegar sé það
rétt að kynslóðaskipti verði smám
saman á næstu árum. „Við þurfum
að fara í endurnýjun lífdaga – það
er alveg rétt.“
Engir línumenn bíða
Þegar horft er í einstakar stöður
hafa sérfræðingarnir líklega mest
ar áhyggjur af framtíðarmanni á
línunni. Þegar Róbert
Gunnars
son kveður,
eins og Vignir
Svavarsson, stend
ur Kári Kristjáns
son einn eftir. Hann er
um þrítugt og mun að lík
indum spila næstu árin. Sér
fræðingarnir segja erfitt að
sjá hver kemur næstur. Atli
Ævar Ingólfsson hafi staðið
sig ágætlega í landsliðinu en
sé ekki sterkur varnarmað
ur. Í nútímahandbolta þurfi
leikmenn að vera jafn vígir
í vörn og sókn. „Við eigum
ekki línumenn sem eru til
búnir,“ segir Guðjón.
Landsliðið horfir aftur
á móti upp á góða tíma í
vinstra horninu. Guðjón
Valur Sigurðsson er 35
ára og enn einn albesti
hornamaður í heimi.
Hann gæti átt nokk
ur góð ár eftir. Stefán
Rafn Sigurmannsson
stendur fullmótaður á
hliðarlínunni og bíður
færis. Sérfræðingun
um ber saman um
að Bjarki Már Elís
son muni veita hon
um harða samkeppni
í horninu, enda hafi
hann farið á kostum
í Þýskalandi en Bjarki
skrifaði nýlega undir
samning við Füsche
Berlin. Þá er Oddur
Grétarsson einnig
nefndur til sögunn
ar. Þessi staða sé
því sérstaklega vel
mönnuð í nútíð og
framtíð.
Í hinu horninu
telja menn líkleg
ast að Arnór Þór
verði aðalmaður á
næstu árum. Hann er 27 ára.
Guðmundur Árni Ólafsson gæti
deilt með honum stöðunni.
Hörgull á örvhentum skyttum
Engin örvhent skytta er við að
brjóta sér leið inn í landsliðið. Sú
var tíðin að Ísland gat valið úr frá
bærum skyttum í þessa stöðu en
nú hallar undan fæti. Það verður
skarð fyrir skildi þegar Alexander
Petersson leggur skóna á hilluna
en sérfræðingunum þremur ber
öllum saman um að Rúnar Kára
son og Ásgeir Örn Hallgrímsson
séu enn framtíðarmenn í þessari
stöðu; ólíkir leikmenn sem eigi
mikið inni.
Sérfræðingarnir segja að Aron
Pálmarsson muni bera uppi lands
liðið á næstu árum. Þar fari einn
besti leikmaður í heimi. Hann
mun að líkindum spila á miðj
unni. Honum til halds og trausts
eru nokkrir nefndir. Ólafur Bjarki
Ragnarsson er aðeins 26 ára og
gæti hjálpað liðinu en Arnór Atla
son, sem menn telja að muni færa
sig í auknum mæli úr skyttustöð
unni inn á miðjuna, ætti einnig
að eiga góð ár eftir, enda rétt um
þrítugt. Mönnum ber þó saman
um enginn nýr Snorri Steinn sé
í sjónmáli, en þessi 33 ára leik
stjórnandi hefur verið burðarás í
landsliðinu í mörg herrans ár og
á vonandi einhver ár eftir. Menn
eru ekki endilega þeirrar skoðun
ar að Gunnar Steinn Jónsson muni
leika stórt hlutverk í landsliðinu
á næstu árum, þó að hann muni
verða í hópnum og geti nýst liðinu
ágætlega.
Vonir bundnar við Ólafa
Ólafur Guðmundsson og Róbert
Aron Horstet eru þeir leikmenn
sem á næstu árum munu taka við
stórum hlutverkum í stöðu rétt
hentrar skyttu í landsliðinu, að
mati Guðjóns, Óskars og Einars.
Báðir hafi allt til að bera en þeir
þurfi báðir að taka næstu skref
með sínum félagsliðum. Sigur
bergur Sveinsson hefur spilað vel í
Þýskalandi en átti erfitt uppdrátt
ar á HM, eins og raunar flestir leik
menn íslenska liðsins. Þá er Ólafur
Gústafsson nefndur til sögunn
ar en hann hefur lengi glímt við
meiðsli. Hann hefur þó það til að
bera að geta leikið burðarhlutverk
í varnarleik íslenska liðsins – nái
hann sér af meiðslum.
Sérfræðingarnir sjá engan
markvörð hirða stöðurnar af
Björgvini Páli Gústavssyni og Ar
oni Rafni Eðvarðssyni á næstu
árum. Menn eru þó sammála um
að gefa þurfi öðrum markvörðum,
sem spili í útlöndum, tækifæri. Þar
eru nefndir Sveinbjörn Pétursson
og Daníel Freyr Andrésson.
Böðvar Páll næstur
inn í vörnina?
Varnarleikurinn er sérfræðingun
um nokkuð hugleikinn. Sverre
Jakobsson skilur eftir sig stórt
skarð og Bjarki Már Gunnarsson
hefur kannski ekki átt sína bestu
leiki að undanförnu. Guðjón seg
ir að landsliðið þurfi að halda eins
lengi og mögulegt sé í Vigni Svav
arsson, því menn sem geti leikið
í miðri vörninni séu ekki á hverju
strái. Hann bindur þó vonir við að
Böðvar Páll Ásgeirsson, leikmaður
Aftureldingar, komi fljótlega inn í
landsliðið. Hann sé „fljótur á fót
unum“ og stór. Að auki sé hann
góð skytta og geti spilað vörn og
sókn. „Ég sé hann fyrir mér sem
næsta varnarmann inn.“ Guðjón
segir að þegar þessi kynslóðaskipti
verði orðin að veruleika ætti Ís
land að geta átt eitt af átta til sex
tán bestu landsliðum í heimi. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Þörf á endurnýjun
Íslenskir stuðningsmenn eru
góðu vanir. Gengið hefur ver-
ið gott á undanförnum árum.
Þegar horft er til næstu ára
er ekki víst að árangurinn
verði áfram jafn góður.
Skarð Sú var tíðin að Íslendingar áttu örv-
henta menn í röðum. Tímarnir eru breyttir
og það verður erfitt að missa Alexander.
Tímamót
Arons
Kristjánssonar
landsliðs-
þjálfara bíður
erfitt verkefni.
Við blasir að
yngja þarf
upp hópinn -
smám saman.
Það þýðir að
lykilmenn
landsliðsins á
liðnum árum
fara að hellast
úr lestinni.