Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Síða 54
54 Menning Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 2015
Ofurhetjusumar
og Star Wars-jól
n DV rýnir í bíóárið 2015 n Alls konar fyrir nördana
L
íkur eru á að ofurnördar um
allan heim fái raðfullnægingu
þann 24. apríl 2015 þegar
Avengers: Age of Ultron verð-
ur frumsýnd. Myndin er fram-
hald stærstu (og einnar bestu) ofur-
hetjumyndar allra tíma, frá 2012, og
jafnframt af þeim sólómyndum sem
hafa komið síðan. Shield hefur verið
lokað, en í staðinn skapar Iron Man
vélmennið Ultron til þeirra starfa. Sá
ákveður þó að hann sé yfir þetta allt
hafinn og best sé að útrýma mann-
kyni í staðinn. Nýjar persónur mæta
til leiks. Quicksilver sást í síðustu X-
Men en birtist hér í annarri mynd
ásamt systurinni Scarlett Witch.
Ekki nóg með það, heldur verður
á undan sýnd ný stikla úr næstu Star
Wars-mynd. Sú síðasta vakti harð-
ar deilur sökum nýrrar geislasverða-
hönnunar og má búast við að geim-
genglar netsins muni loga á ný, en
myndin verður loksins frumsýnd
þann 18. desember.
Í millitíðinni má orna sér við Ant-
Man, sem er nýjasta Marvel-ofur-
hetjan til að fá eigin mynd. Hann þyk-
ir þó fremur undarlegt val, hæfileikar
hans felast í að geta minnkað sig og
talað við maura, og ekki bætir úr
skák að Paul Rudd (kærasti Phoebe
úr Friends) fer með aðalhlutverk.
Marvel hefur enn ekki stigið feilspor
(plús/mínus Iron Man 2), og verður
spennandi að sjá hvernig tekst til hér.
Aðrar Marvel-hetjur sem verða
endurlífgaðar eru Fantastic Four, en
myndirnar með Jessicu Alba og hinu
fallega fólkinu (þar á meðal núver-
andi Captain America, Chris Evans)
fóru fyrir ofan garð og neðan. Hvorki
val á leikurum né leikstjóra lofar þó
sérstaklega góðu hér. Ofurhetju-
mynd sem beðið er eftir með meiri
eftirvæntingu er Birdman, þar sem
Michael Keaton (Batman) og Ed-
ward Norton (Hulk) leika leikara sem
reyna að brjótast út úr ofurhetjuhlut-
verkum sínum. Myndinni er leikstýrt
af Alejandro Inárritu (Babel) og hefur
fengið afbragðsgóða dóma vestra.
Öskubuska og leikstjórinn Jolie
Annars konar ofurhetju má sjá í nýj-
ustu Terminator-myndinni, sem
væntanleg er í júlí. Jú, Arnie er kom-
inn aftur og leikur hér stjúpföður/
persónulegt drápsvélmenni Söru
Connor, og haldið er í þá hefð að
láta nýjan mann leika John Connor
í hvert sinn. Það kæmi skemmti-
lega á óvart ef þetta heppnast vel.
Þeir sem kjósa frekar hefðbundin
ævintýri geta hlakkað til Öskbusku,
þar sem Shakespeare-leikstjór-
inn Kenneth Branagh leikstýrir
Cate Blanchett í 19. aldar útgáfu af
sögunni frægu. Ekki síðri díva, sjálf
Meryl Streep, leikur í Into the Woods,
sem er samkrull af helstu ævintýrum
Grimms-bræðra og söngleikur í of-
análag.
Nokkrar stríðstengdar mynd-
ir ættu að birtast snemma á árinu
og eru allar byggðar á raunveruleg-
um persónum. American Sniper
með Bradley Cooper (þessi með
krullurnar í American Hustle) fjall-
ar um leyniskyttu í Írak sem á Am-
eríkumet í einstaklingsmiðuðum
manndrápum (heimsmet á Finn-
inn Simo Häyhä) og er leikstýrt af
Clint Eastwood. Og nú er bara að sjá
hvaða „American“-mynd Cooper
finnur sér næst, kannski American
Pie 5?
Angelina Jolie sest bak við töku-
vélina í Unbroken, sem fjallar um
langhlaupara sem er skotinn niður
yfir Kyrrahafi og er lagður í einelti í
japönskum fangabúðum. Testament
of Youth fjallar um Veru Brittain, rit-
höfund, hjúkrunarkonu og femínista
sem þarf að horfa á eftir kærasta sín-
um í fyrri heimsstyrjöldinni, og það
að hann lítur út eins og Jon Snow gerir
aðskilnaðinn enn harmþrungnari.
Ár snillingsins
The Imitation Game, sem var frum-
sýnd um miðjan janúar, fjallar um Alan
Turing, sem fann upp tölvuna og réð
dulmál Þjóðverja í seinni heimsstyrj-
öldinni en var að lokum dæmdur fyrir
samkynhneigð og framdi sjálfsmorð.
Þó að myndin sýni ljótan blett á sögu
Breta er hún jafnframt nýjasta tilraun
þeirra til að bæta fyrir hina bandarísku
U-571, þar sem Bon Jovi og félagar eru
látnir vinna hetjudáðir bandamanna
sinna í seinni heimsstyrjöldinni. Og
varla verður það breskara en að hafa
sjálfan Sherlock Holmes, Benedict
Cumberbatch, í aðalhlutverki.
Fyrir áhugamenn um snillinga (ekki
þó af KB banka-gerðinni) er meira
um að vera í byrjun árs, því þá birt-
ist einnig mynd um gáfaðasta mann
í heimi, Stephen Hawking, og nefn-
ist hún að sjálfsögðu The Theory of
Every thing. Sumir af snillingum kvik-
myndagerðarlistarinnar láta einnig á
sér kræla. Paul Thomas Anderson snýr
aftur með Inherent Vice og Tim Burton
með Big Eyes, þar sem snillingurinn
Christoph Waltz leikur málara sem
stelur hugmyndum konu sinnar.
Auk almennra sýninga verða há-
tíðir á sínum stað. Franska kvik-
myndahátíðin fer nú fram í Há-
skólabíói og Borgarbíói á Akureyri,
í febrúar verður Stockfish-hátíðinni
hleypt af stokknum í Bíó Paradís og í
haust snýr RIFF síðan aftur í öllu sínu
veldi. Það verður því nóg um að vera
þangað til um næstu jól þegar nýjasta
Star Wars-myndin verður frumsýnd.
Og samt eru dagarnir eitthvað svo
lengi að líða … n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Ofurhetjuæði í Hollywood
Age of Ultron er önnur myndin um
Avengers-ofurhetjuhópinn.
Öskubuska eins og þú hefur
aldrei séð hana Cate Blanchett
leikur í kvikmyndinni Cinderella.
Homminn sem sigraði Hitler Fjallað er
um hetjudáðir breska stærðfræðisénísins Alan
Turing í The Imitation Game.
Kominn af léttasta skeiði Í Birdman er
Michael Keaton í hlutverki gamals leikara.
Sest í leikstjóra-
stólinn Angelina
Jolie leikstýrir stríðs-
myndinni Unbroken.
Nýtt íslenskt
útvarpsleikrit
Á sunnudag frumflytur Útvarps-
leikhúsið nýtt leikrit eftir Bjarna
Jónsson í Ríkisútvarpinu. Strind-
berg – stundin okkar nefnist verk-
ið. Leikritið er sett upp eins og
útvarpsþáttur þar sem umsjónar-
maðurinn, Hjálmar Hjálmarsson,
fær hjónin Henning Ólafsson
og Ernu Sigurðardóttur til sín í
spjall um leikritið „Föðurinn“
eftir sænska leikskáldið August
Strindberg. Henning og Erna
flytja brot úr textanum og velta
vöngum yfir efniviði og persón-
um verksins, ásamt umsjónar-
manni. En smám saman fer að
verða erfitt að greina á milli leik-
rits Strindbergs og orða gestanna,
og milli raunveruleika og blekk-
ingar. Bjarni hefur áður skrifað og
leikstýrt þríleiknum Besti vinur
hundsins fyrir Útvarpsleikhúsið
og hlaut sú uppsetning Grímuna
2008 sem útvarpsverk ársins.
Málþing um
Listasafn Íslands
Laugardaginn 31. janúar frá klukk-
an 11 til 14 fer fram í Listasafni
Íslands málþing um stöðu og
framtíð safnsins. Safnið er 130 ára
í ár og er málþingið hluti af há-
tíðardagskrá þess. Á málþinginu
verður leitast við að varpa ljósi
á stöðu þjóðarlistasafnsins í for-
tíð og samtíma okkar um leið og
sjónum verður beint að hlutverki
þess, menningarsögulegri ábyrgð,
möguleikum og sýn til framtíðar.
Illugi Gunnarsson, mennta- og
menningarmálaráðherra, Katrín
Jakobsdóttir alþingismaður, Hall-
dór Björn Runólfsson safnstjóri,
Anna María Urbancic, Dag-
ný Heiðdal og Rakel Pétursdótt-
ir, starfsmenn Listasafns Íslands,
munu flytja erindi og Harpa Þórs-
dóttir, forstöðumaður Hönnunar-
safns Íslands, stýrir umræðum að
þeim loknum.
Semur ljóð
í sjoppum
Frá 1. til 4. febrúar fer fram
Ljóðaleiðréttingin, vinnustofu-
dvöl myndlistarkonunnar og ljóð-
skáldsins Ástu Fanneyjar Sigurðar-
dóttur í söluturnum Reykjavíkur.
Undir lok dvalarinnar, miðviku-
daginn 4. febrúar klukkan 19.00,
mun Ásta svo kynna afrakstur
vinnunnar í sjoppunni á Grundar-
stíg. Það er Meðgönguljóð sem
stendur fyrir viðburðinum, en
Ásta gaf út sína fyrstu ljóðabók,
Herra Hjúkket, hjá örforlaginu árið
2012. Hún hefur einnig birt ljóð í
tímaritinu Stínu og í kvæðasöfn-
unum Ljóð í leiðinni: Skáld um
Reykjavík og Þokulúður.
Stórleikkona í
ævintýramynd
Meryl Streep
leikur norn í Into
the Woods.
Snillingarnir
á skjáinn
Fjallað er
um ástir og
ævi Stephen
Hawking í
The Theory of
Everything