Archaeologia Islandica - 01.01.1998, Blaðsíða 56

Archaeologia Islandica - 01.01.1998, Blaðsíða 56
Orri Vésteinsson Það er nauðsynlegt að hafa stóra drauma, en það er enn langt í land að við höfum í höndunum nægilega stórt gagnasafn til að gera rannsóknir sem þessar. I Eyjafirði hafa aðeins verið skráðar um 50 jarðir á þeim forsend- um sem hér hefur verið lýst. Byggt er á jarðaskiptingu eins og hún er í Jarðatali Johnsens frá 1847 þar sem taldar eru um 5600 jarðir á landinu öllu og því lætur nærri að skráðar hafi verið um 1% jarða á Islandi2. Urtakið er lítið og enn er ekki farið að vinna úr þeim gögnum sem þó hefur verið safnað nema einföldustu grunnupp- lýsingar um staðsetningu og hlutverk. A þeim grunni má þó gera ýmsar á- hugaverðar athuganir og verður hér í lokin gerð grein fyrir lítilli tölfræði- legri úttekt sem gerð var á lengd stekkjarvegar. Eg er fæddur svo seint á 20. öld að hið litla sem ég veit um sveitalíf og gamla búskaparhætti hef ég þurft að læra af öðrum, og mest af bókum, eft- ir að ég komst á fullorðinsár. Það er ekki óskaplega langt síðan ég gerði mér grein fyrir til hvers stekkir voru hafðir eða hver væri munurinn á þeim og kvíum. Þó mér hafi nú loksins skilist hlutverk þessara mannvirkja hefur lengdareiningin stekkjarvegur valdið mér heilabrotum. Eg velti því til að mynda fyrir mér hvort tilvist þessa hugtaks væri vísbending um eitthvert aðdáunarvert samræmi í mannvirkjagerð eða hvort það væri einhver einföld og augljós ástæða fyrir því að vegalengdin milli bæjar og stekkjar væri yfirleitt svipuð. Nú [1995] er þekkt staðsetning 43 stekkja á 49 jörðum í Eyjafjarðarsveit og þar af eru 37 enn sýnilegir — á tveimur jörðum eru fleiri en einn stekkur. Tekin hafa verið hnit á öllum þessum stöðum og einnig þeim stöð- um þar sem bæjarhús stóðu áður og því var auðvelt að reikna út vega- lengdina á milli þessara staða. Yfir- leitt er augljóst hvaða bæ stekkur til- heyrði eða til eru góðar heimildir um það en í fjórum tilfellum kom sér vel að hafa glöggvað sig á gömlum landa- merkjum því að landspildur höfðu verið seldar til næsta bæjar og stekkj- arstæðin með og hefði það vitanlega valdið ruglingi við útreikninginn ef ekki hefði verið tekið tillit til þess. Stekkjarvegur í utanverðri Eyjafjarð- arsveit reyndist mjög mislangur, stystur var hann 213 metrar en lengstur 1276 metrar. Meðaltalið var 575 metrar en tíðustu gildin voru í kringum 400 metrana og virðist það sennilegasta nálgunin á þeirri vega- lengd sem hugtakið stekkjarvegur fel- ur í sér. Líklegast er auðvitað að hug- takið hafi verið eins og mörg önnur vegalengdarhugtök í gamla landbún- aðarsamfélaginu verulega teygjanlegt og ekki átt að vera mikið nákvæmara en að vera lengra en fjósvegur en styttra en bæjarleið. Þetta teljast varla menningarsögu- leg stórtíðindi en þetta minnir okkur á að fornleifaskráning getur hjálpað 2 Þannig stóðu málin haustið 1995, en þá var aðeins tveimur skráningaráföngum lokið, en í ágúst 1998 hafði verið lokið við að skrá 263 jarðir eða tæp 5% af þeim jörðum sem taldar eru í Jarðatali Johnsens. 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168

x

Archaeologia Islandica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Archaeologia Islandica
https://timarit.is/publication/1160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.