Archaeologia Islandica - 01.01.1998, Page 100
Adolf Friðriksson & Orri Vésteinsson
Lýsing d rannsóknarsvœði
Níu metra beint í suður frá gafli skála-
tóftarinnar er gryfjan. Hún er nær 7
metrar á lengri veginn, og 6 metrar á
hinn. Við brúnir gryfjunnar er nærri
hringlaga upphækkun eða vegghleðsla,
um 30-40 sm á hæð.Við fyrri rann-
sóknir hafði verið sett upp hnitakerfi
og var það lagt til grundvallar við
rannsóknirnar 1995.
Ekki er fastur hæðarpunktur í sjón-
máli frá Hofstöðum, en settur hefur
verið upp viðmiðunarpunktur á SA-
horni stéttar við inngang á íbúðarhúsi.
Hæð hennar er áætluð 250 metrar yfir
sjávarmáli. Uppgraftarsvæðið er tví-
skipt: a) Svæði G, sem nær yfir gryfj-
una, um 8 metrar á lengd N-S, og 7
metrar á breidd A-V; b) Könnunar-
skurður, sem nær frá nyrstu mörkum
G og að suðurenda skálatóftar.
Yfirlit um gang uppgraftar
Uppgröfturinn hófst 30. júlí 1995.
Lögð var út grunnlína frá norðri til
suðurs sem skipti uppgraftarsvæði yfir
gryfjunni í tvo hluta. Uppgröftur hófst
vestan við grunnlínu og grafið var 2 m
breitt svæði til norðurs og suðurs.
Fljótlega eftir að komið var niður úr
grasrótarlagi (Cl) komu í ljós skil á
suðurenda svæðisins. Það reyndust vera
syðri mörkin á niðurgrefti frá 1908.
Síðar komu fram samskonar skil á
norðurenda. Ljóst er að fyrst hefur torf
verið stungið upp hringinn x kring um
tóftina og fylgt hæstu brún upphækk-
unarinnar sem umlykur hana, en síðan
eingöngu grafið upp úr miðju hennar.
31. júlí var svæðið stækkað til vesturs
og fundin vesturbrún hringskurðarins
frá 1908. Fremur auðvelt reyndist að
rekja skilin því að skurðurinn 1908
hafði verið tekinn í gegnum yngsta
gjóskulagið (frá 1717) á þessum slóð-
um. Þegar ystu mörk fyrri uppgraftar
voru fundin var hafist handa við að
hreinsa burt fyllinguna frá 1908 (C2)
sem lá yfir holunni allri. Ofarlega við
brúnir niðurgraftar frá 1908 kom í ljós
gráleitt móösku- og kolalag (C4). Það
gekk undir brúnirnar og nær þannig
allsstaðar út fyrir gryfjuna, en innan í
henni snardýpkaði það í átt að miðju
og var því fylgt. I laginu voru stór-
gripabein og eldsprungnir steinar. 1.
ágúst var haldið áfram að grafa ofan af
þessu lagi. Kom þá í ljós langskurður-
inn sem grafinn hafði verið 1908 svo
og þverskurðurinn sem hafði verið
hreinsaður og rannsakaður á ný 1965. I
botni fyllingarinnar kom fram fundur
sem gaf til kynna hverjir höfðu verið
þar að verki áður en við komum:
danskur krónupeningur frá 1957 og
súkkulaðibréf sem Olaf Olsen hefur
lagt í botn skurðarins að rannsókn
sinni lokinni. 2. ágúst voru skurðirnir
í G hreinsaðir og byrjað að hreinsa
skákina austan við miðlínu niður að
C4. 3. ágúst var við miðlínu sett upp
sniðlína sem tók mið af austurhlið
langskurðar og nefnd „snið-a”. Sniðið
var teiknað og lokið við að grafa upp
skák að austanverðu, að sniðbálki
slepptum. 4. ágúst var teiknuð grunn-
mynd tóftarinnar og takmörk upp-
graftar 1908 og sniðbálkur „a” var þá
tekinn niður að öðru leyti en því að
100