Archaeologia Islandica - 01.01.1998, Page 116
Magnús Á. Sigurgeirsson
Eins og áður hafði komið fram er
stutt bil á milli LNL og elstu mann-
vistarlaga í rústunum. I sniði H04 var
0,5-1 cm þykkt moldarlag þar á milli.
Bendir það til að mannvist hafi byrjað
stuttu eftir að LNL féll, vart meira en
nokkrum áratugum. Gjóskulagið H-
1104/1158 liggur 3-7 cm ofan við
veggi skálarústarinnar. Sé gengið út frá
því að ofangreindar ályktanir séu réttar
spannar búseta á Hofstöðum 150-170
ára tímabil.
Athuganir sumariS 1996
Skoðuð voru jarðvegssnið í viðbygg-
ingu (D-l) við suðvesturenda skála-
tóftar. Einkum voru sniðin sem sneru
móti vestri og suðri skoðuð. Sérstök á-
hersla var lögð á að skoða gjósku í torfi
í veggjum hússins. Ekki komu fram
önnur gjóskulög en áður höfðu greinst
(sjá mynd 3).
Torfið er að mestu strengur en
hnausar eru þó einnig til staðar, eink-
um í suðursniðinu. Torfið einkennist
annars vegar af dökkum gjóskuríkum
hluta og hins vegar af ljósari hluta sem
er rauðleitur vegna oxunar. I honum er
grágrænt gjóskulag. Við nánari skoðun
á þessu lagi og samanburð við önnur
gjóskulög er dregin sú ályktun að
gjóskan í torfinu tilheyri LNS. í Ijósa
hlutanum er Landnámslagið en
fylgilög þess, b og c-lögin, í þeim
dekkri. Torfið hefur verið lagt á hvolf í
vegghleðsluna og snýr LNS því öfugt.
Við nána athugun sést að 1-3 senti-
metrar eru frá LNL að „yfirborði”
hnausanna. Torfið hefur því verið rist
alllöngu eftir að LNL myndaðist. í
jarðvegi undir veggjunum er LNS ó-
röskuð. Annað sem er sérstaklega á-
hugavert í þessum sniðum er að á milli
torfsins, sem fyrr var lýst, og LNL er
annars vegar þunnt lag úr dökku torfi
og hins vegar þunnt gráleitt ruslalag
þar undir. Dökka torfið gæti verið
nokkru eldra en tvílita torfið og til-
heyrt eldra byggingarskeiði. Einnig er
mögulegt að það sé frá sama tíma en
stungið á öðrum stað. Líklegra þykir
mér þó að um eldra byggingaskeið sé
að ræða. Frá LNL upp í gráa ruslalagið
eru að jafnaði 0,5- 1 cm sem bendir til
að skammur tími hafi liðið frá því að
LNL féll um 870 e.Kr. og þar til
mannvistarlög tóku að myndast að
Hofstöðum.
Athuganir sumarið 1997
Að þessu sinni beindist athyglin eink-
um að þrennu, í fyrsta lagi að finna út
aldur meints hestagerðis suðaustan
rústanna, í öðru lagi að aldursgreina
garð sem liggur sunnan og austan
rústasvæðisins og í þriðja lagi að reyna
að skýra myndun ójafna sem koma
fram í jarðvegssniði við norðanverða
skálatóftina.
Aldur meints hestagerðis tókst að
finna út með allnokkurri nákvæmni
með hjálp gjóskulaga. Snið var mælt í
austanverðu gerðinu í skurði sem ligg-
ur í SV-NA stefnu í því utanverðu (sjá
snið H08). I ljós kom að gjóskulagið
H-1104/1158 er í jarðvegi yfir garðin-
um. A milli gjóskulagsins og torfsins
er þunnt jarðvegslag, 1-2 cm. Undir
116