Jón á Bægisá - 01.12.2005, Page 75

Jón á Bægisá - 01.12.2005, Page 75
Smalastúlkan ogsótarinn Kínverjann og kiðfætta yfirogundirherráðsliðþjálfann, en hún grét með svo hræðilegum ekkasogum og kyssti litla sótarann sinn, svo hann sá sér ekki annað fært en láta undan, þó það væri rangt. Og svo skriðu þau aftur með miklum þrautum niður um reykháfinn og þau skreiddust gegnum tromluna og hólkinn. sem var hreint ekki notalegt, og síðast stóðu þau í dimmum kolaofninum. Þar stóðu þau á hleri bakvið speldið til fá að vita hvernig ástatt væri í stofunni. Það var dauðahljóð; þau gægðust út - æ, þarna lá gamli Kínverjinn á miðju gólfi, hann hafði dottið niðraf borðinu, þegar hann ætlaði að fylgja þeim, og brotnað í þrennt; bakið hafði losnað frá í einum bút og höfuðið skoppað útí horn. Kiðfætti yfirogundirherráðsliðþjálfinn stóð þarsem hann hafði alla tíð staðið og var í þungum þönkum. „Þetta er skelfilegt!“ sagði litla smalastúlkan. „Afi gamli er brotinn og við eigum sök á því! Þetta lifi ég aldrei af!“ Og svo neri hún saman agnarlitlu höndunum sínum. „Það er enn hægt að spengja hann saman!“ sagði sótarinn. „Það er vel hægt að spengja hann saman! Vertu nú ekki svona áköf! Þegar þeir líma á honum bakið og láta hann fá góða spöng í hnakkann, þá verður hann aftur einsog nýr og getur sagt okkur margt ógeðfellt!" „Heldurðu það?“ sagði hún. Og síðan skriðu þau aftur uppá borðið þarsem þau höfðu áður staðið. 'Sjáðu hversu langt við komumst!“ sagði sótarinn. „Og við hefðum getað sparað okkur alla þá fyrirhöfn!“ „Bara að við fáum afa gamla spengdan!“ sagði smalastúlkan. ,Ædi það sér mjög dýrt?“ Og spengdur var hann. Fjölskyldan lét líma á honum bakið, hann fékk spöng í hálsinn, hann varð aftur einsog nýr, en ekki gat hann kinkað kolli. „Þér eruð vísast orðinn dramblátur síðan þér urðuð fyrir brotinu!" sagði kiðfætti yfirogundirherráðsliðþjálfinn. „Mér finnst samt að það sé ekkert til að hreykja sér afi Hreppi ég hana eða hreppi ég hana ekki?“ Og sótarinn og litla smalastúlkan horfðu klökk á gamla Kínverjann. Þau voru svo hrædd um að hann mundi kinka kolli, en það gat hann ekki, og það var vandræðalegt fyrir hann að segja ókunnugum að hann væri stöðugt með spöng í hnakkanum, og síðan hélt postulínsfólkið hópinn, og það blessaði spöngina hans afa gamla og bjó við gagnkvæma væntumþykju þartil það maskaðist. A frummálinu nefnist œvintýrið „Hyrdinden og Skorsteensfeieren Sigurður A. Magnússon íslenskaði á . jOrrý/tíá — TlL ÞESS ÞARF SKROKK! 73

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.