Jón á Bægisá - 01.11.2008, Blaðsíða 118
Saga frd Dóminíska lýðveldinu — Baldur Óskarsson
- Sjöliti folinn minn, hjálpaðu mér nú, kallaði Nonni.
Og folinn birtist að vörmu spori og spurði hví hann hefði verið svo
seinn til að kalla.
- Það var af því að þú hvarfst mér úr minni, svo örþreyttur var ég,
sagði þá Nonni.
Svo gripu þeir kvenfuglinn og héldu heim.
En drottningu elnaði ástarsóttin og sagði við kónginn að Nonni hefði
sagt að hann ætlaði að sækja dóttur þeirra sem Márarnir höfðu rænt og
hrifsað frá þeim þegar hún var lítil. Kóngurinn tók nú að efast um orð
konu sinnar, en kallaði Nonna fyrir sig og spurði hvort rétt væri að hann
hygðist sækja dóttur þeirra í hendur ræningjanna.
— Það hef ég aldrei sagt, svaraði Nonni, en ef þér viljið, þá skal ég fara
og bjarga henni.
Hann fór svo að finna folann sinn og brast í grát, en folinn sagði:
- Förum, Nonni! Ég skal bera þig þangað sem þú getur fundið þessa
stúlku.
Svo fóru þeir. Þeir flugu og flugu. Yfir hafið og komust á áfangastað.
Þeir flugu þar um í borginni, og þegar stúlkan sá til þeirra varð hún frá sér
numin af folanum:
- Sjáið, pabbi! hrópaði hún, þetta er fallegur foli. Kaupið hann handa
mér, pabbi minn!
Og þessi pabbi sagði að það vild’ann gera ef folinn væri til sölu, eða
þá leigu. En Nonni sagði ekki svo vera. Hann gæti hins vegar, ef pabbinn
vildi, lofað stúlkunni að koma á bak.
Nú var kallað á herinn til að gæta stúlkunnar og sjá til að allt færi vel
fram. Þau stigu svo á bak og folinn tók flugið. Herinn fór að skjóta, og
meira að segja úr fallbyssum, en engin kúla hitti.
Og Nonni varð ástfanginn af stúlkunni og ástin kviknaði í brjósti
hennar. Einhver hringur varð í vegi þeirra, en honum var þeytt í sjóinn. Og
þegar þau komu heim varð drottningin yfirkomin af ást sinni til Nonna.
Hún gekk til konungs og sagði við hann:
- Bóndi minn, nú segir Nonni að hann ætli að færa okkur hringinn
sem fór í sjóinn.
Og þegar kóngurinn sagði Nonna að sækja hringinn, fór hann eins
og vant var að gráta hjá folanum sínum. Og folinn spurði hvað að honum
gengi og Nonni sagði sem var.
- Taktu með þér bönd, höggsverð og teppi, sagði folinn. Drífðu þig á
bak, förum!
Og þegar þeir komu að sjónum, þá sagði folinn við Nonna:
- Nú skaltu deyða mig.
— Hvernig, foli! Hvernig! Hvernig gæti ég gert það?
116
á .ýSapeiiá — Tímarit um i>ýðingar nr. 12 / 2008