Jón á Bægisá - 01.11.2008, Side 129

Jón á Bægisá - 01.11.2008, Side 129
Hœversk uppástunga þeim tíma verða meira en venjulega vegna þess að fjöldi pápískra barna er að minnsta kosti þrjú á móti hverju einu barni annarrar trúar9 í kon- ungdæminu, og því mun þetta úrræði hafa í för með sér þau jákvæðu hliðaráhrif að draga úr fjölda pápista10 á meðal okkar. 14. Eg hef þegar reiknað út að kostnaðurinn við brjóstagjöf handa betl- arabarni (þar með talin börn allra kotbænda, verkamanna, og fjórir fimmtu hlutar allra bænda) sé um tveir skildingar per annum,u þar með taldir fatalarfar; ég tel enn fremur að enginn heldri maður mundi sjá eftir tíu skildingum fyrir krof12 af vel feitu barni, sem mun, eins og ég hef áður sagt, duga í fjóra rétti af framúrskarandi næringarríku kjöti, þegar hann snæðir með einhverjum góðvini sínum eða með fjöl- skyldunni. Þannig mun óðalsbóndinn læra að vera góður húsbóndi og verða vinsæll á meðal leiguliða sinna, móðirin mun fá átta skildinga í hreinan ágóða, og geta unnið þar til hún elur næsta barn. 15. Þeir sem aðsjálli eru (sem ég verð að viðurkenna að ástandið í dag krefst) geta flegið skrokkinn;13 en húðin, ef hún er vel sútuð, er af- bragðsgóð í kvenhanska og sumarstígvél fyrir vandláta heldri menn.14 16. I borginni okkar, Dyflinni,15 má útbúa sláturhús í þessum tilgangi á einhverjum hentugum stöðum og gera má ráð fyrir að slátrara muni ekki skorta; þó mæli ég frekar með því að kaupa börnin lifandi og elda þau strax eftir slátrun, eins og við gerum við steikargrísi. 17. Miklum mektarmanni, sönnum unnanda þessa lands, hvers mann- kosti ég met mikils, þóknaðist nýlega, í samræðum um þetta mál, að leggja fram tillögu til umbóta á áætlun minni. Hann sagði að þar sem margir heldri menn þessa lands hefðu nýlega útrýmt öllum dádýrum af landareignum sínum, þá dytti sér í hug að skortinn á villibráð bætti vel bæta með skrokkum af ungum sveinum og meyjum, ekki eldri en fjórtán vetra og ekki yngri en tólf vetra;16 stórir hópar beggja kynja í öllum löndum rambaði á hungurmörkunum vegna skorts á tilfallandi vinnu og vist, og væri komið undir lifandi foreldrum þeirra að ráð- stafa þeim, en annars nánustu ættingjum. Með fyllstu virðingu fyrir svo prýðilegum félaga og miklum föðurlandsvini, þá get ég ekki verið honum fyllilega sammála; því hvað karlpeninginn varðar, þá fullvissaði hinn ameríski17 vinur minn um að það væri sín reynsla að hold þeirra væri yfirleitt seigt og magurt, eins og hjá skóladrengjum okkar, vegna sífelldrar áreynslu, og bragðið ógeðfellt, og að það borgaði sig ekki að fita þá upp. Hvað kvenpeninginn18 varðar, þá tel ég, í minni hógværu á — Að geta sagt „shit“ fyrir framan dömu 127
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.