Bændablaðið - 28.05.2015, Side 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015
„Það er í rauninni ótrúlegt að
kindurnar séu lifandi, þrjár ær
og tveir hrútar, sem ég hef ekki
séð í tvö ár, hafa verið á útigangi
á Grafningsafrétti allan þennan
tíma, ég trúi þessu varla.
Skepnurnar voru horaðar og
illa haldnar þegar ég fékk þær frá
Villingavatni í Grafningi en þær
eru allar að koma til og munu jafna
sig smátt og smátt,“ segir Páll
Þorláksson, sauðfjárbóndi á Sandhóli
í Ölfusi, sem fékk féð nýlega heim
til sín. Páll furðar sig á hvernig
kindurnar hafi getað verið svona
lengi á afréttinum án þess að nokkur
hafi orðið þeirra var og þrátt fyrir að
þar sé smalað reglulega.
„Ég botna bara ekkert í þessu,
þetta er mál sem þarf að taka á
og fá skýringar á, þetta má ekki
gerast,“ bætir Páll við. Hann vill
að björgunarsveitir á viðkomandi
stöðum sjái um smölun á afréttum
þar sem hugsanlegur útigangur er.
„Já, það er eina vitið, sveitirnar hafa
öll tæki og tól og eru heppilegar í
svona verkefni en að sjálfsögðu
þarf viðkomandi sveitarfélag að
borga fyrir vinnuna,“ segir Páll.
Hann vill nota tækifærið og þakka
Dýralæknaþjónustunni á Stuðlum
í Ölfusi fyrir veitta aðstoð en þar
eru alltaf allir boðnir og búnir til að
hjálpa honum ef eitthvað er að með
féð. Páll er með á þriðja hundrað
fjár en sjálfur verður hann áttræður
á næsta ári. /MHH
Tæknidagur var haldinn í
Háskólanum í Reykjavík
föstudaginn 15. maí. Þar voru
veittar viðurkenningar fyrir bestu
lokaverkefni í tæknifræði.
Ein viðurkenningin lýtur að
verkefni fyrir landbúnaðinn. Hlaut
Þorsteinn Pálsson á Signýjarstöðum
í Borgarfirði þessa viðurkenningu
fyrir mjólkurmæli sem hann
hannaði til að mæla heildarmagn
mjólkur í hverjum mjöltum og setja
það fram á fljótlegan, einfaldan
og grafískan hátt. Þorsteinn fékk
styrk frá Nýsköpunarmiðstöð til
rannsóknanna og leiðbeinandi hans
var Unnsteinn Snorri Snorrason.
Kerfið hefur verið til prófunar
hjá föður Þorsteins, Páli Herberti
Jónassyni á Signýjarstöðum, og er
nú í frekari þróun. /HKr
Fréttir
Tæknidagur í Háskólanum í Reykjavík:
Þorsteinn Pálsson á Signýjarstöðum hlaut
viðurkenningu fyrir mjólkurmæli
Síðastliðinn föstudag, þann 22. maí,
gengu tveir sjúkraflutningsmenn
styrktargöngu á skíðum yfir
þveran Mýrdalsjökul til styrktar
ungum foreldrum drengs sem lést
í hörmulegu dráttarvélaslysi í
Meðallandi þann 6. apríl. Gönguna
nefndu þeir Guðsteinsgöngu.
Drengurinn hét Guðsteinn
Harðarson og var á þriðja ári
þegar hann lést. Þeir sem stóðu
fyrir Guðsteins göngunni eru
sjúkraflutnings mennirnir Sigurður
Bjarni Sveinsson á Hvolsvelli og
Arnar Páll Gíslason á Selfossi.
Gengu Sigurður Bjarni og Arnar
Páll rúmlega 27 km leið yfir jökulinn
sem samsvarar einum kílómetra fyrir
hvern mánuð í lífi Guðsteins.
Ferð þeirra félaga yfir jökul gekk
í alla staði vel, enda eru þeir vanir
fjallaferðum. Voru þeir tíu tíma að
þvera jökulinn á gönguskíðum og
lögðu þeir upp frá norðri.
Yfir þessari ferð hefur
einhver vakað
„Frábær dagur og ótrúlegt veður og
færð. Yfir þessari ferð hefur einhver
vakað og þökkum við fyrir það,“
sögðu þeir félagar á Facebook-síðu
göngunnar að loknu þessu verkefni.
Sigurður Bjarni sagði í samtali
við Bændablaðið að fyrirhugað sé
að söfnunin standi yfir í einn mánuð.
„Hún hófst á styrktargöngu á
föstudaginn þar sem við fórum yfir
að þvera Mýrdalsjökul á einum degi.
Með þessu framtaki ætlum við að
safna fé fyrir fjölskyldu Guðsteins
sem býr í Meðallandi. Öll áheit á
okkur í göngunni munu renna óskipt
til fjölskyldunnar.
Við byrjuðum á því að leita til
fyrirtækja og fengum strax ágætan
stuðning við verkefnið. Við höfum
einnig leitað til einstaklinga og
opnuðum styrktarreikning þar sem
enn er hægt að leggja inn framlag.
Þeir einstaklingar sem styrkja átakið
fá síðan sendar myndir og póstkort
af ferð okkar yfir jökulinn.“
Hægt að kaupa sig inn í
styrktarferðir með þeim félögum
„Fyrir ákveðna upphæð getur fólk
síðan keypt sig inn í ferð með okkur
sem leiðsögumenn á Eyjafjallajökul
eða álíka staði næsta mánuðinn
og rennur það fé einnig beint til
fjölskyldunnar.“
Sigurður Bjarni segir að þeir
hafi fengið mikinn stuðning
ferðaþjónustuaðila í Vík sem komu
þeim upp á jökul og björgunarsveita
sem hafi aðstoða þá líka.
Facebook-síða, bankareikningur
og styrktarsími
Opnuð var á Facebook síða undir
nafninu Guðsteinsgangan, þar sem
sjá má myndir úr göngunni. Þá
hefur fyrirtækjum verið boðið upp
á styrktarpakka; brons sem kostar
20.000 krónur, silfur 50.000, gull
100.000 og platinum 200.000 krónur.
Einstaklingar geta lagt inn á
reikning 317-26-103997, sem er á
kennitölu Arnars Páls 060684-2359,
en verður upphæðin sem þar safnast
færð óskipt til fjölskyldu Guðsteins.
Einnig hafa þeir félagar opnað
símanúmer sem hægt verður að
hringja í. Ef hringt er í síma 903-
1011 þá leggjast 2.000 krónur á
símareikning þess sem hringir og ef
hringt er í númerið 903-1012 þá er
framlagið í söfnunina 5.000 krónur.
Gengu í minningu Guðsteins
Harðarsonar yfir Mýrdalsjökul
– Luku göngunni á tíu klukkustundum
Páll Þorláksson á Sandhóli í Ölfusi:
Heimti þrjár ær og tvo hrúta
eftir tveggja ára útigang
Myndir / MHH