Bændablaðið - 28.05.2015, Síða 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015
Góða peysan
PRJÓNAHORNIÐ garn@garn.is
Þessi fallega peysa hentar jafnt
stelpum sem strákum. Tyra garnið
okkar er mjúkt og mjög gott að
prjóna úr því. Garnið er til í
mörgum litum og er á afslætti hjá
okkur núna, 250 kr. dokkan.
STÆRÐ:
(1-2 ára) 3-4 ára (5-6 ára) 7-8 ára.
Yfirvídd: (58) 65 (72) 79 cm.
Lengd á bol að handveg: (23) 27 (31) 37 cm
Lengd á peysu: (38) 43 (49) 56 cm
Ermalengd að handveg: (22) 25 (28) 33 cm
GARN:
Tyra garn frá Garn.is.
Litur 1: AN2138 bleikur eða AN6053 grænblár (150)
200 (250) 300 gr.
Litur 2: AN1122 rjómahvítur eða AF9141 silfurgrár
(100) 100 (150) 150 gr.
Litur 3: AN7054 grænt eða AN3145 ryðrautt 50 gr.
í allar stærðir
Skoðið litaúrvalið fyrir Tyru á http://handverkskunst.
is/voruflokkur/garn/garn-is/tyra/
PRJÓNAR
Hringprjónar 60 cm, nr 3 og 4,5
Sokkaprjónar nr 3 og 4,5
PRJÓNFESTA
21 lykkja og 28 umf slétt prjón = 10x10 cm
Sannreynið prjónafestu og skiptið um prjóna
ef með þarf.
LEIÐBEININGAR
Stroff: 1 slétt og 1 brugðin.
Laskaúrtaka: Fellið af við hvert prjónamerki,
þannig: prjónið þar til 3 lykkjur eru að
prjónamerki takið 1 lykkju óprjónaða eins og
eigi að prjóna hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og
steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 1 lykkju
slétt, flytjið prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt,
2 lykkjur slétt saman = fækkað um 8 lykkjur.
Bolur
Fram- og bakstykki er prjónað í hring, fitjið upp
(128) 144 (160) 176 lykkjur á prjóna nr 3 með lit
1. Tengið í hring og prjónið stroff (4) 4 (4) 5 cm.
Skiptið yfir á hringprjón nr 4,5 og prjónið slétt
þar til bolur mælist (17) 21 (25) 33 cm, mælt
með stroffi. Prjónið munstur 1, eftir að munstri
lýkur prjónið með lit 1 þar til bolur
mælist (23) 27 (31) 39 cm. Setjið (6) 6 (6) 8
lykkjur á aukaþráð/nælu fyrir ermaop og prjónið
(58) 66 (74) 80 lykkjur, setjið aftur (6) 6 (6) 8
lykkjur á aukaþráð/nælu, prjónið (58) 66 (74) 80
lykkjur. Geymið bol og prjónið ermar.
ERMAR
Fitjið upp (40) 42 (44) 44 lykkjur með lit 1 á
sokkaprjóna nr 3. Prjónið stroff (4) 4 (4) 5 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið slétt
prjón í hring. Aukið út undir miðri ermi um 2
lykkjur í 6. hverri umf alls
(5) 5 (7) 8 sinnum = (50) 52 (58) 60 lykkjur.
Prjónið þar til ermi mælist (15) 18 (21) 26 cm og
prjónið munstur 1 og passið að miðjan á einni
rósinni lendi á miðri ermi. Eftir að munstri lýkur
prjónið með lit 1 þar til ermin mælist (22) 25
(28) 33 cm. Setjið (6) 6 (6) 8 lykkjur undir miðri
ermi á aukaþráð/nælu. Prjónið aðra ermi eins.
AXLASTYKKI
Sameinið bol og ermar á hringprjón nr 4,5 =
(204) 224 (252) 264 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki
í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og
erma = 4 prjónamerki. Umferðin byrjar nú á
samskeytum bakstykkis og vinstri ermar. Prjónið
eina umferð slétt með lit 1 og síðan munstur 2.
Laskaúrtaka hefst í upphafi munsturs 2.
Laskaúrtaka: Fellið af við hvert prjónamerki,
þannig: prjónið þar til 3 lykkjur eru að
prjónamerki takið 1 lykkju óprjónaða eins og
eigi að prjóna hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt
og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 1
lykkju slétt, flytjið prjónamerki, prjónið 1 lykkju
slétt, 2 lykkjur slétt saman = fækkað um 8 lykkjur
í umferðinni. Úrtakan er gerð í annarri hvorri
umferð þar til eftir verða ca (76) 78 (80) 84
lykkjur, klippið bandið. Setjið (14) 14 (16) 16
lykkjur á miðju framstykki á aukaþráð/nælu.
Umferðin byrjar nú á á framstykki. Prjónið
fram og til baka 6 umferðir, haldi áfram með
laskaúrtöku en fellið jafnframt af 1 lykku við
hálsmál (eða setjið á aukaþráðin/næluna).
Sameinið nú lykkjurnar af aukaþráð/nælu (og
líka þær lykkjur ef þið hafið fellt þær af ). Skiptið
yfir á hringprjón nr 3 tengið í hring og prjónið
stroff (5) 5 (6) 6 cm. Fellið laust af og saumið
stroffið niður til hálfs frá röngu.
FRÁGANGUR
Lykkið saman undir höndum, gangið frá endum.
Góða skemmtun, Inga Þyri Kjartansdóttir
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
1 3 4
6 8 9
6 7 3
5 1 6 8
9 5 7
9 8
1 6 8
3 7
5
Þyngst
7 8
2 6 9 7
1 4
5 2 1
2 5 6
8 7 9
4 9
9 1
3 8 6
1 3 6 9
4 8 7
7
3 9
6 4 3
7 1
5
4 3 6
9 1 5 4
2 9
6 7
3 8 5
1 8
6 1 4 5 7
6 9
4 8 7
8 1
3 4
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Svífandi myndlistarmaður
og fuglatemjari
Ármann Kristinn hefur gaman af
íþróttum og síðastliðið sumar sveif
hann um á svifdreka. Hann hefur
dálæti á músum og hefur tamið
skógarþröst. Ármann stefnir að
því að verða myndlistarmaður.
Nafn: Ármann Kristinn Björnsson.
Aldur: Ég er 12 ára.
Stjörnumerki: Vog.
Búseta: Túngata 2.
Skóli: Kirkjubæjarskóli á Síðu.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Mús.
Uppáhaldsmatur: Tortillur.
Uppáhaldshljómsveit: One
Direction.
Uppáhaldskvikmynd: Indiana
Jones.
Fyrsta minning þín? Man ekki!
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta, blak og
frjálsar.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Ég ætla að verða
myndlistarmaður.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að temja skógarþröst.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Að flytja svona mikið.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Já, það fór vel. Ég fór til
dæmis á svifdreka.
Munstur 2.
Munstur 1.