Bændablaðið - 03.12.2015, Qupperneq 4

Bændablaðið - 03.12.2015, Qupperneq 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015 Vöruskipti við útlönd fyrstu 10 mánuði 2015: 20,7 milljarða króna halli Fyrstu tíu mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir 527 milljarða króna en inn fyrir 547,7 milljarða króna fob. Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 20,7 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 3,9 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 16,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. Útflutningur Samkvæmt því sem segir á vef Hagstofu Íslands var verðmæti vöruútflutnings fyrstu tíu mánuði ársins 2015 35,9 milljarðar eða 7,3% hærra, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 10,7% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 42,0% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 7,9% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli. Á móti dróst útflutningur á heilfrystum fiski saman. Innflutningur Fyrstu tíu mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 52,7 milljörðum eða 10,7% hærra, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla. Á móti dróst innflutn- ingur á eldsneyti saman. /VH Fréttir Loftslagsráðstefnan í París: Norðurlöndin leggja áherslu á endurheimt votlendis Mýrlendi þekur einungis um 3% af yfirborði jarðar en geymir í sér um 550 gígatonn af koltvísýringi sem er meira en allir skógar jarðarinnar. Fulltrúar Norðurlandanna á lofts- lagsráðstefnunni í París ætla að vekja athygli á mikilvægi endurheimtunn- ar votlendis í heiminum til að draga úr losun koltvísýrings og hlýnunar jarðar. Þar sem votlendi getur bundið í sér mikið magn koltvísýrings er endur- heimt þess talin ein allra hagkvæm- asta leiðin sem fyrir liggur til að binda hann og draga þannig úr hækkandi lofthita á jörðinni. Framræsla mýra í heimin- um hefur losað gríðarlegt magn á koltvísýringi og öðrum gróður- húsalofttegundum út í andrúms- loftið undanfarna áratugi. Talið er að búið sé að ræsa fram um 45% af öllu votlendi á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum, 60% af öllu votlendi í Evrópu og 16% öllu votlendi jarðar. Umhverfisráðherrar Norður- landanna ætla að leggja sameigin- lega fram yfirlýsingu á loftslagsráð- stefnunni í París þar sem þeir leggja áherslu á mikilvægi votlendisins og endurheimt þess. /VH Höskuldur Jónsson var valinn Íþróttamaður Léttis árið 2015 í hófi sem haldið var nýverið. Fanndís Viðarsdóttir var knapi ársins í ungmennaflokki fjórða árið í röð. Auk Höskuldar voru tilnefnd- ir þeir Baldvin Ari Guðlaugsson, Guðmundur Karl Tryggvason og Viðar Bragason. Allt kunnir knapar innan Léttis. „Svo skemmtilega vill til að þrír þessara kappa urðu 50 ára á árinu, svo segja má að þetta hafi verið ár aldraðra,“ sagði Sigfús Helgason og sló á létta strengi í ræðu sem hann hélt af þessu tilefni. Höskuldur verður fulltrúi Léttis í kjöri á Íþróttamanni Akureyrar í janúar næstkomandi. Gott ræktunarstarf á Sámsstaðabúinu Höskuldur fór mikinn á árinu sem er að líða og að líkindum hefur þetta verið eitt hans besta ár á ferlinum. Nánast öll hross komu úr ræktun hans og Elfu Ágústsdóttur, eigin- konu hans, en þau rækta hross undir nafni Sámsstaðabúsins, þar sem gott ræktunarstarf er unnið. Fanndís valin í fjórða sinn Fanndís Viðarsdóttir var valin knapi ársins í ungmennaflokki, fjórða árið í röð, en hún færist nú í fullorðins- flokk. Fram kom hjá Sigfúsi að ungmennaflokkur Léttis væri skip- aður glæsilegum fulltrúum og væru menn afar stoltir af því unga fólki sem stundaði hestamennsku undir merkjum Léttis. Glæsileiki þeirra væri besti vitnisburðurinn um gott starf og Léttismenn gætu sannarlega borið höfuðið hátt þegar unga fólk- ið kæmi fram. Auk Fanndísar voru þau Ólafur Goran Ólafsson og Þóra Höskuldsdóttir einnig tilnefnd. Ferill Fanndísar hefur verið glæsilegur, en hún var á dögunum tilnefnd í kjöri í ungmennaflokki Landssambands hestamanna. Hún hefur ákveðið að nema hestafræði við Hólaskóla. Úrvalsfólk innan Léttis Sigfús nefndi að það ár sem senn er á enda hefði verið viðburðar- ríkt, m.a. hefðu Léttismenn verið fyrirferðarmiklir á Fjórðungsmóti á Iðavöllum á Héraði á liðnu sumri og eins hefði Unglingalandsmót UMFÍ verið haldið á Akureyri og tekist sérlega vel. Mótshald er stór þáttur í starfi hestamanna, það útheimtir mik- inn mannskap og sagði Sigfús það gleðilegt að Léttismenn hefðu á að skipa úrvalshópi fólks sem hefði brennandi áhuga og vilja til góðra verka þegar að mótshaldi kemur. Hann sagði Léttismenn metnað- arfulla og vel hefði tekist til með allt mótshald, keppni og sýningar á liðnum árum. Heimsóknir til Léttismanna væru iðulega lofaðar í hástert og yljaði það um hjartarætur og hvatti til dáða. Gáfu girðingar Sigfús gat þess að þau Guðmundur og Helga, kennd við Bautann, hefðu af miklum rausnarskap ákveðið að gefa félaginu girðingar sem settar verða upp þegar mót eru haldin í reiðhöll Léttis, en þær eru væntan- legar innan skamms. /MÞÞ Hestamannafélagið Léttir á Akureyri: Höskuldur Jónsson var valinn Íþróttamaður Léttis árið 2015 − Höskuldur og Fanndís knapar ársins Höskuldur Jónsson, Íþróttamaður Léttis 2015, með Elfu Ágústsdóttur, konu sinni. Myndir / MÞÞ Knapar ársins hjá Hestamannafélaginu Létti, Fanndís Viðarsdóttir sem valin var fjórða árið í röð, og Höskuldur Jónsson. Talið er að búið sé að ræsa fram um 45% af öllu votlendi á Norðurlöndun- um og í Eystrasaltslöndunum, 60% af öllu votlendi í Evrópu og 16% öllu votlendi jarðar. Landgræðsla ríkisins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr Landbótasjóði Landgræðslunnar. Sjóðurinn úthlutar árlega til margvíslegra landbótaverkefna til bænda, sveitarfélaga, félaga- samtaka og annarra umráðahafa lands. Við ákvörðun um styrkveitingar er meðal annars lögð áhersla á stöðvun hraðfara jarðvegsrofs og gróðureyðingar. endurheimt gróð- urs, jarðvegs og votlendis og að landnýting verði sjálfbær. Við mat á umsóknum er enn- fremur tekið tillit til þess hvort gerð hafi verið landgræðslu- og landnýtingaráætlun til að minnsta kosti þriggja ára fyrir það svæði sem ætlunin er að vinna með. Sérstök athygli er vakin á að sjóðurinn styrkir aðgerðir til endurheimtar votlendis og land friðað fyrir beit nýtur að öðru jöfnu forgangs við ákvörðun um styrk- veitingar Styrkur til einstakra verkefna getur að hámarki numið 2/3 af áætluðum kostnaði þess að mati Landgræðslunnar. Landgræðslan veitir ráðgjöf við framkvæmd þeirra verkefna sem sjóðurinn styrkir og hefur jafnframt eftirlit með fram- vindu þeirra og metur árangur. Umsóknareyðublöð og úthlutun- arreglur sjóðsins eru á heimasíðu Landgræðslunnar, www.land.is. Einnig er hægt að nálgast gögnin og fá nánari upplýsingar á hér- aðssetrum Landgræðslunnar og á skrifstofu Landgræðslunnar í Gunnarsholti. Umsóknarfrestur er til 22. desember næstkomandi og umsóknir skal senda á netfangið land@land.is eða til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella. Opið fyrir umsóknir: Landbótasjóður Land- græðslunnar árið 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.