Bændablaðið - 03.12.2015, Síða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Fréttir
Bæjarráð Seyðisfjarðar hvetur
stjórnendur Landsbankans að
huga að leiðum til að efla starfsemi
bankans í sveitarfélaginu.
Kynntar hafa verið breytingar á
starfsemi og þjónustu Landsbankans
í bænum og þykir bæjarráði miður
að stjórnendur hans áformi að draga
úr starfsemi bankans á Seyðisfirði.
Störfum fækkar
„Með ákvörðuninni missir starfsfólk
vinnuna og störfum á Seyðisfirði,
þ.e. störfum á vegum ríkisins, fækk-
ar. Það er ekki í samræmi við stefnu
stjórnvalda sem fara með eignarhald
bankans,“ segir í bókun sem gerð
var á fundi bæjarráðs fyrir skömmu.
Vitnað er í lýsingu á starfsemi úti-
búa Landsbankans á heimasíðu hans
í bókun bæjarráðs, en þar segir að
öll útibú bankans veiti hefðbundna
fjármálaþjónustu og ráðgjöf til
einstaklinga, sem og til rekstraraðila
í viðskiptum við bankann. Væntir
bæjarráð þess að sú þjónusta verði
óbreytt á Seyðisfirði.
Bankinn segir kröfur um
hagkvæmni miklar
Í kynningu bankans er rakið að miklar
breytingar hafi orðið á rekstrarum-
hverfi banka á undanförnum árum.
Að yfir 80% allra bankaviðskipta
séu nú orðin rafræn og hlutfallið fari
hækkandi. Þörf fyrir hefðbundin útibú
og afgreiðslur hafi því minnkað. Þá
séu gerðar ríkar kröfur um aukna hag-
kvæmni í rekstri Landsbankans og að
breytingarnar á Seyðisfirði séu liður
í að bregðast við þessu.
Með vísan til samfélagslegrar
ábyrgðar bankans, nýlegra
afkomutalna, sterkrar stöðu og
eignarhalds bankans, hvetur bæjarráð
stjórnendur Landsbankans til að huga
að leiðum til eflingar starfseminnar á
Seyðisfirði. /MÞÞ
Bændagleði Búnaðarsambands
Suður-Þingeyinga var haldin í
Kiðagili í Bárðardal nýlega.
Boðið var upp á mikil og góð
skemmtiatriði eins og t.d. sveitasvar-
ið sívinsæla og „kúadóma“ sem fóru
fram í bundnu máli hagyrðinga úr
héraði.
Hógværð, snyrtimennska og sátt
við umhverfið
Viðurkenningin Þingeyski bóndinn
var afhent á Bændagleðinni í
þriðja sinn og urðu hjónin Bergljót
Þorsteinsdóttir og Ingvar Ketilsson
fyrir valinu að þessu sinni, en
þau reka fyrirmyndarbúskap að
Halldórsstöðum 2 í Bárðardal.
Einkunnarorð viðurkenningarinnar
Þingeyski bóndinn eru hógværð,
snyrtimennska og sátt við umhverf-
ið. Þau fengu viðurkenningarskjal
og málverk eftir Lilju Björk
Þuríðardóttur sem málað er á meira
en 100 ára gamla veggþilju úr húsinu
á Stóruvöllum í Bárðardal.
Styrktaraðilar Bændagleðinnar
voru Norðlenska, MS, N1 og
Bústólpi sem buðu m.a. upp á góm-
sætan veislumat framreiddan af
starfsfólki Kiðagils sem rann ljúf-
lega ofan í gesti sem voru fjölmargir.
Að lokinni skemmtidagskrá upp úr
miðnætti var slegið upp dansleik og
dansað fram eftir nóttu. /MÞÞ
Eggert Kristjánsson hf. sektað vegna villandi umbúðamerkinga á frosnu grænmeti:
Íslenskt meðlæti skorti
upprunamerkingar
Það er alveg óhætt að segja að
hangikjötssalan er þegar farin vel
af stað og við eigum von á mikilli
sölu á hangikjöti nú fyrir jólin,“
segir Ólafur Már Þórisson,
markaðsstjóri hjá Kjarnafæði.
Þar á bæ eru menn í óða önn
að undirbúa kjötsölu fyrir jól og
áramót.
Flestir vilja úrbeinað
Kjarnafæði framleiðir og selur þrjár
tegundir hangikjöts, Kofareykta-,
Taðreykta- og Vopnafjarðar-
hangikjötið. Ólafur segir sölu
undan farinna ára hafa verið góða og
að nokkurn veginn skiptist til helm-
inga úrbeinuð læri og frampartur.
Hangilæri með beini á undir högg
að sækja, æ fleiri kjósa hin síðari
ár að hafa sitt hangikjöt úrbeinað.
„Við bjóðum þó að sjálfsögðu
upp á það með beini enda er það
alltaf góður hópur sem vill sjóða
beinið með til að kalla fram aðeins
öðruvísi og að þeirra mati betra
bragð,“ segir hann.
Húskarlahangikjötið verður vin-
sælla með hverju árinu sem líður,
tvíreykt hangikjöt sem hægt er að
skera niður og borða beint af bein-
inu.
„Það eru alltaf að verða fleiri
og fleiri forstofur eða bílskúrar hér
á landi þar sem hægt er að finna
hálfétið húskarlalæri. Kosturinn
er sá að ekki þarf að geyma það í
kæli eftir að byrjað er á því og það
verður bara betra eftir því sem það
þornar meira.“
Sala fer vel af stað
Ólafur segir að fjölskyldur og
vinahópar haldi gjarnan litlu jól
og þá sé hangikjötið stór partur af
veislunni. Mötuneyti eru fjölmörg
og veitingastaðir taka á móti fyr-
irtækjum í mat, nokkrar vikur séu
síðan farið var að afgreiða hangi-
kjöt til þeirra. Algengt er að fólk
taki hangikjöt með á leið í heim-
sókn til ættingja og vina í útlöndum.
Hann bendir á að hægt sé að grípa
með sér hangikjöt og húskarlalæri
í Leifsstöð þannig að fólk þarf ekki
að burðast með kjötmetið í farangri
sínum í gegnum tollinn. Einnig
megi þar nálgast óreykt og ferskt
lambakjöt.
„Þannig að salan er farin af stað
fyrir þó nokkru en svo fer þunginn
vaxandi eftir því sem líður á des-
ember,“ segir hann.
Ekki sjóða of lengi
Kjötiðnaðarmeistarar Kjarna fæðis
hafa því haft hugann við þessi þjóð-
legu matvæli um skeið. Ólafur segir
þá passa vel upp á að allir fái það
sem fyrirtækið stendur fyrir, sem
sé gæði þegar kemur að reyk- og
saltbragði og að sjálfsögðu að kjöt-
inu sjálfu. Ólafur mælir með því að
fólk hafi í huga við matreiðsluna að
sjóða kjötið ekki of lengi og hafa
lágan hita, þannig haldist kjötsafinn
frekar í kjötinu. Best er að leyfa
kjötinu að kólna í soðinu. /MÞÞ
Húskarlahangikjötið vinsælla
með hverju ári sem líður
Bændagleði Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga:
Hjónin á Halldórsstöðum 2
hlutu viðurkenningu
Í ákvörðun Neytendastofu frá 13.
nóvember síðastliðnum er Eggerti
Kristjánssyni hf. gert að greiða
stjórnvaldssekt að fjárhæð hálfri
milljón króna, vegna ófullnægj-
andi upplýsinga um uppruna
grænmetisins sem merkt er með
vörumerkinu Íslensk Matvæli hf.
Í ákvörðuninni kemur fram að
Neytendastofu hafi borist ábending
vegna merkinga og útlits umbúða
Íslensks meðlætis, sem inniheldur
frosið grænmeti, sem gæfi tilefni
til að ætla að um íslenska ræktun
væri að ræða.
Árið 2009 komst stofnun að þeirri
niðurstöðu að sama fyrirtæki hefði
með sambærilegum hætti gerst brot-
legt gegn ákvæðum um eftirlit með
viðskiptaháttum og markaðssetn-
ingu og í kjölfar var notkun umbúð-
anna bönnuð. Í ákvörðuninni kemur
fram að í kjölfar þeirrar ákvörðun-
ar hafi upplýsingar á umbúðum
vörunnar verið bættar og því ekki
talin ástæða til að grípa til frekari
aðgerða þó enn væri notast við sama
útlit og merkingar á umbúðun-
um. Af ábendingu þeirri sem
Neytendastofu
hafi nú borist
virðast hinar
viðbættu upplýs-
ingar hafa verið
fjarlægðar.
Gáleysi og
þekkingarleysi
frekar en
ásetningur
Í skýringum fyrir-
tækisins á breyting-
um á umbúðunum
kemur fram að fyr-
irtækið hafi verið
selt í millitíðinni.
„Nýjum stjórnendum hafi aldrei
verið kunnugt um fyrri ákvörðun
Neytendastofu og hafi verið í góðri
trú um að allt væri með felldu þegar
haldið hafi verið áfram með pökkun á
grænmeti í umbúðir Íslensks meðlætis
á árinu 2014 og 2015. […] Skýringin
á því að prentun upp-
runalands hafi dottið
út sé fyrst og fremst
af gáleysi og þekk-
ingarleysi frekar en af
ásetningi. Hana megi
rekja til þess að skipt
hafi verið um búnað
við pökkun og þess
ekki gætt að prentun
þessara upplýsinga
fylgdi með við
prentun lotunúm-
ers og best fyrir
dagsetninga, en til
þess sé notaður
sérstakur sprautu-
prentari sem sé
á f a s t u r pökkunarvélinni.
Félagið muni gera ráðstafanir til að
bæta úr þessu í næstu pökkunarlotu
sé þess kostur og sjá til þess að upp-
lýsingar um uppruna innihalds verði
öllum ljósar.“ /smh
Sveinn Ingi Kjartansson, kjötiðnaðarmaður hjá Kjarnafæði, kannar
ástandið á Húskarlahangilærunum en þau eru tvíreykt og njóta vaxandi
vinsælda með hverju árinu sem líður.
Bergljót Þorsteinsdóttir og Ingvar
Ketilsson reka fyrirmyndarbúskap
á Halldórsstöðum 2 í Bárðardal.
Landsbankinn dregur úr þjónustu á Seyðisfirði:
Bæjarráð vill að starf-
semin verði efld
Íslenskar mjólkurafurðir gera það gott í Danmörku:
Skyr frá MS sigrar þriðja árið í röð
Íslenskt skyr var einstaklega sig-
ursælt þegar það vann til fjölda
verðlauna í sérstökum skyrflokki
á mjólkursýningunni í Herning í
Danmörku fyrir skömmu.
Íslenskt skyr vekur athygli
danskra fjölmiðla en þetta er þriðja
árið í röð sem keppt er í sérstökum
skyrflokki og hefur íslenskt skyr frá
MS sigrað í flokknum frá upphafi.
Íslenska skyrið var sérstaklega
sigursælt og atti það m.a. kappi við
skyr frá Arla. Skyr.is og KEA skyr
unnu til 12 verðlauna í flokknum
sem er stærsti einstaki flokkurinn á
sýningunni. Þetta er þriðja árið í röð
sem íslenskt skyr sigrar flokkinn
en Skyr.is með ferskjum og hind-
berjum sigraði flokkinn og hlaut
einkunnina 14,2 af 15 mögulegum.
Árangur íslenska skyrsins hefur
vakið athygli í Danmörku og hefur
verið talsvert fjallað um það, m.a.
á sjónvarpsstöðinni TV2 þar sem
yfirskriftin var „Ísland er enn meist-
arinn“.