Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Þýskir kúabændur bölva landbúnaðarkerfi ESB í glímu við lækkandi mjólkurverð og ótta við gjaldþrot:
Mykja, gasframleiðsla og verktakastarfsemi
heldur þýskum kúabændum gangandi
Þýskir kúabændur eru ekki í
öfundsverðri stöðu þessa dagana.
Mjólkurframleiðslan er nú rekin
með bullandi tapi, en sumir reyna
enn að þrauka með aukinni verk-
takastarfsemi og orkuframleiðslu.
Í mars á þessu ári var kvótakerfi í
mjólkurframleiðslu undir CAP, land-
búnaðarstefnu Evrópusambandsins,
lagt niður. Neikvæðar afleiðingar
þess fóru fljótt að koma í ljós og
nú er svo komið að fjölmargir hafa
þegar gefist upp, aðrir íhuga að hætta
á meðan sumir reyna að strögla og
treysta á tekjur af hliðarbúgreinum
og verktakastarfsemi.
Tvískinnungur í gagnrýni á
styrkjakerfi í landbúnaði
Sameiginleg landbúnaðarstefna
ESB, Common Agricultural Policy,
eða CAP, byggir eins og flest önnur
landbúnaðarkerfi á að beita styrkja-
kerfi til stýringar greinarinnar sem
aftur er nýtt sem hagstjórnartæki rík-
isvaldsins. Þetta er líka stór þáttur
í að tryggja fæðuöryggi sem flest-
um ríkjum heims þykir mikilvægt.
Hefur CAP jafnframt verið stærsti
einstaki útgjaldaliðurinn í fjárlög-
um Evrópusambandsins, eða um
50 milljarðar evra sem samsvarar
um 8,75% hlutfalli af þjóðartekjum
sambandsins í heild. Þar er einkum
beitt styrkjum á hektara og ræktun-
arstyrkjum, en síður í framleiðslu-
styrkjum á gripi eða afurðir eins og
hér er gert. Skiptar skoðanir hafa
verið um hvaða leið sé best í þessum
efnum.
Styrkjakerfi fyrir íslenskan land-
búnað hefur verið harðlega gagn-
rýnt. Samt þykir þeim sem hæst
hafa gagnrýnt íslenska kerfið, ekk-
ert athugavert við að beita óheft-
um niðurgreiddum innflutningi frá
ESB-löndum til höfuðs íslenskum
landbúnaði. Þiggja þar með erlendu
styrkina sem erlendir skattgreiðend-
ur standa þá á bakvið, en leggja ekk-
ert á móti. Til eru tvö gömul og góð
íslensk orð sem skilgreina ágætlega
svona þankagang, en það eru orðin
tvískinnungur og hræsni.
Þýskir bændur berjast nú hart
fyrir tilveru sinni
Fulltrúa Bændablaðsins gafst kostur
á að kynna sér stöðuna á tveim
tiltölulega stórum fjölskyldubú-
um í Þýskalandi á dögunum.
Móttökurnar voru hreint út sagt
frábærar. Eigendur beggja þessara
búa berjast nú á hæl og hnakka við
að upphugsa nýjar leiðir til að reyna
að halda rekstrinum á floti, en með
ólíkum hætti.
Til viðbótar við það að mjólkur-
kvótinn var lagður niður, þá hefur
viðskiptabann ESB og annarra vest-
rænna ríkja við Rússa haft alvarlegar
afleiðingar fyrir evrópskan landbún-
að. Kom þetta líka greinilega fram
í orðum fyrirlesara á landbúnaðar-
sýningunni Agritechnica í Hanover
á dögunum.
Bú Müllersfeðga í Schwabendorf
Fyrra búið sem heimsótt var, Müller
GbR, er bú feðganna Heinrich
Müller og sonar hans, Karsten, í
þorpinu Schwabendorf. Þótt íslensku
bændunum þætti það sérkennilegt,
þá hefur búið sjálft í raun ekkert
annað nafn en fjölskyldunafnið.
Þorpið tilheyrir svo nágrannabæn-
um Rauschenberg í Hessen, mitt á
milli Frankfurt og Hanover. Hessen
er síðan eitt af 16 sambandslýðveld-
um Þýskalands.
Jörðin er í um 260 til 320 metra
hæð yfir sjó og þar er um 680
millimetra úrkoma á ári og 7 gráðu
meðalhiti. Fór undirritaður þangað
í byrjun nóvember í átján manna
hópi íslenskra bænda, fulltrúa
Kraftvéla og Guðbjörns Árnasonar,
viðskiptastjóra hjá fjármögnunarfyr-
irtækinu Ergo. Hann þekkja margir
bændur frá fyrri störfum hans fyrir
Bændasamtökin og eins hefur hann
mikið starfað sem leiðsögumaður.
Kom þýskukunnátta hans og þekk-
ing á þýsku samfélagi sér afar vel
fyrir hópinn. Ekki síst í heimsókn
sem skipulögð var á tvo sveitabæi
í tengslum við ferð hópsins á land-
búnaðarsýninguna Agritechnica í
Hanover.
Þurfti að flytja meginhluta
starfseminnar út fyrir þorpið
Müller-fjölskyldan hefur í gegnum
tíðina búið í þorpinu Schwabendorf
ásamt fleiri bændum. Þorpið hefur
lengi verið þungamiðja svæðisins
og þar voru allir bændurnir áður með
sinn búskap en nýttu svo landið í
kring til að heyja á og undir kornakra.
Þegar fjölskyldan lýsti áhuga á
að stækka búið, var andstaða við að
hún yki við sig í þorpinu sjálfu. Þar
voru þau með 60 kýr. Smám saman
fór afi Karstens og síðan Heinrich
faðir hans að kaupa upp hvert býlið í
þorpinu af öðru ásamt meðfylgjandi
jarðnæði. Árið 1999, þegar Karsten
kom úr námi, var ákveðið að byggja
nýtt fjós og aðstöðu nokkur hundr-
uð metrum norðvestan við þorpið.
Var þá jafnframt hafist handa við
að stækka kúastofninn upp í 70 kýr.
Nytin jókst með stækkandi búi
„Eftir því sem kúnum hefur fjölgað
hefur nytin jafnframt aukist. Þegar
við fluttum fyrst með kýrnar í nýja
fjósið var nytin tæplega 8 þúsund
kg (lítrar) að meðaltali á kú. Nytin
hefur síðan aukist jafnt og þétt í takt
við fjölgunina og nú er meðalnytin
tæplega 11 þúsund kg (lítrar) á kú.
Fituinnihald er 3,83% og prótein-
innihald er 3,32%. Þegar fram-
leiðslan var minni árið 2000 voru
kýrnar 74 og fituinnihaldið var þá
mest í 4,25% á móti 3,41% prótein-
innihaldi,“ sagði Karsten Müller.
Müllers-feðgar eru með mjalta-
gryfju sem þykir henta vel. Karsten
segir að sífellt aukist þó að bændur
fái sér mjaltaþjóna sem ganga þó
ekki nema búin séu að minnsta kosti
með 60–70 kýr. Þýskir bændur horfi
mjög mikið í hagkvæmnina og fari
sér því hægt við að fjölga mjalta-
þjónum sem eru dýrir í innkaupi og
kosta um 160 þúsund evrur stykkið
(22,7 milljónir króna).
Mikið vinnuálag er á Karsten sem
sér sjálfur um allar mjaltir, en hefur
þó einn vinnumann til að hjálpa sér
að koma kúnum að mjaltagryfjunni
og á búinu er líka einn lærlingur. Þá
er einn vinnumaður sem eingöngu
sinnir gasframleiðslunni á bænum.
Hann segir þó að vissulega gæti
hann létt á sér álaginu með því að
fá sér mjaltaþjón. Vel geti verið að
hann neyðist til þess þar sem hann og
faðir hans hafi ekki endalaust úthald.
78 þúsund bændur en meðalbúið
aðeins með 50 kýr
Karsten sagði að 78 þúsund mjólkur-
Átján manna hópur íslenskra bænda, fulltrúa Kraftvéla og fjármögnunarfyrirtækisins Ergo heimsótti tvö kúabú í Þýskalandi í byrjun síðasta mánaðar í tengslum við ferð á landbúnaðarsýninguna
Agritechnica í Hanover. Hér er hópurinn ásamt gestgjöfum á býli Müllers-feðga í Schwabendorf, talið frá vinstri:
-
Myndir /HKr.
Guðbjörn Árnason, viðskiptastjóri hjá Ergo, rýnir hér í tölur kúabúsins í
Schwabendorf, ásamt Heinrich Müller og syni hans, Karsten.