Bændablaðið - 03.12.2015, Qupperneq 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
SuperCut
FJÖLNOTAVÉL
Tækið sem alla iðnaðarmenn
dreymir um:
Trésmiðinn, píparann,
rafvirkjann, bílasmiðinn,
flísalagningamanninn,
dúkarann, málarann FM 14-180
Steinskurðarvél
ríkulegan ávöxt en fyrsta verkefnið
okkar saman var sultað grænmeti,
Rauðrófugló, sem kom á markað-
inn 2009 og síðar Gulrófugló og
Fennelgló en þeim er ætlað að vera
meðlæti með íslenskum mat svo sem
hangikjöti og villibráð,“ segir Eygló.
„Hrökkvi kom árið 2010 og í
uppskerubrestinum 2011 fórum
við að þróa morgunverðarlínu
með Morgungraut, Brauðblöndu
og Lummur og vöfflur – en þessi
lína af hálf-tilbúnum lausnum á
að gera fólki auðveldara að koma
íslensku heilkorni inn í mataræðið.
Morgunverður sem gestum er boð-
inn í Vallanesi grundvallast auk þess
á vörunum okkar. Við vorum líka
byrjuð að nýta ber og jurtir á þessum
tíma og erum með sex mismunandi
uppskriftir að sultum, þar hefur bæst
við ný tegund árlega. Súrkál kom á
markað 2013 og hefur þróast í að
vera sex tegundir af sýrðu grænmeti.
Við höfum líka einbeitt okkur að því
að vera með bygg í öllum útgáfum
og komið með nýjar útgáfur sem
hafa aukið notkunarmöguleikana.
Byggflögurnar sem við komum með
2012 juku notkunarmöguleika byggs-
ins þar sem þá var kominn valkostur
við hafragrjón í grauta meðal annars
– og Perlubyggið, nýjasta afsprengið í
korninu, er að opna enn aðra vídd með
sínum 15 mínútna suðutíma og léttu
áferð. Við höfum ræktað heilhveiti
síðan 2010 og árgangur 2014 var sér-
lega vel þroskaður og góður. Einnig
höfum við síðastliðin fjögur ár verið
að gera tilraunir með ræktun á repju
og vinnslu repjuolíu. Ennþá er þetta í
litlu magni og fer á valda veitingastaði
sem nota olíuna sem ríkjandi bragð í
ákveðna rétti. Það er alltaf eitthvað í
pípunum en nú förum við okkur hægar
og leggjum mesta áherslu á gæðin og
að halda vel utan um það sem við erum
að gera,“ segir Eygló.
Byggið mikilvægur grundvöllur
starfseminnar
Eymundur segir byggið vera mjög
mikilvægan grundvöll starfseminn-
ar, þegar hann er beðinn um að nefna
dæmi um vörur sem hafa gengið
einkar vel. „Bankabyggið er sú vara
sem hefur mestu dreifingu í verslunum
á landsvísu – og er víða á matseðlum
veitingahúsa. Perlubyggið, sem er
af sama meiði en sérvalið og meira
unnið, hefur fengið mjög góðar við-
tökur. Við erum mjög sátt við við-
tökurnar á vörunum almennt um
þessar mundir, útlitsbreytingar sem
við höfum gert á vörulínunni hafa
heppnast vel og sýrða grænmetið nýtur
mikilla vinsælda þegar fólk áttar sig á
mikilvægi lifandi fæðu og heilbrigði
þarmaflórunnar.“
Gæðavörur sem leggja eitthvað til
hins íslenska eldhúss
Eygló samsinnir því að vörumerki
þeirra hafi byggst upp hægt og bít-
andi. „Það má segja að þetta hafi verið
sígandi lukka. Við höfum farið frekar
rólega í sakirnar þó að listinn af vörum
sé langur á tiltölulega stuttum tíma,
þá höfum við gjarnan komið með
eina vöru í hverri vörulínu í einu, séð
hvernig hún fellur í kramið og svo
bætt við tiltölulega hratt. Við erum auk
þess mjög upptekin af því að vörurn-
ar geti kallast íslenskar, þær verða
að grundvallast á því sem við getum
ræktað hér á landi og að þær leggi
helst eitthvað til íslenska eldhússins.
Svo verða gæðin líka að vera í lagi,
það er mikið smakkað og leitað álits
þar til varan er orðin eins og hún á
að vera og við erum heppin að hafa
góða kokka og matgæðinga í kring-
um okkur,“ segir hún. Eymundur
bætir því við að það þurfi líka að
taka tillit til vottunarmála. „Það er
svo margt sem þarf að koma saman
til að vara geti orðið til hjá okkur; til
dæmis hvort hægt sé að útvega önnur
innihaldsefni með lífrænni vottun og
hvort það sé framkvæmanlegt út af
kostnaði. En við höfum að leiðarljósi
að ekki minna en 50 prósent vörunnar
sé af okkar ökrum. Flestar vörurnar
hafa mun hærra hlutfall og til dæmis
Rauðrófubuffin næstum 100 pró-
sent. Það eru bara kryddin sem eru
aðfengin.“
Regluleg dreifing til Bretlands
„Við erum með mjög fjölþætta starf-
semi en við fókuserum á matvæli úr
jurtaríkinu; korn og grænmeti. Það
hefur sannast hið fornkveðna hjá
okkur, að það er mikilvægt að hafa
ekki öll eggin í sömu körfunni,“
segir Eygló um það hvernig það sé
mögulegt að lifa af í lífrænt vottuð-
um búskap. Við störfum ekki í stýrðu
umhverfi hvað ræktunina varðar því
við ræktum allt utandyra með tilheyr-
andi sveiflum, verandi svo norðarlega.
Það er því mjög mikilvægt að renna
frekari stoðum undir reksturinn til að
skapa reglubundna, heilsársstarfsemi
til að geta boðið fólki föst störf og
þar kemur aukin fullvinnsla sterk
inn. Þetta púslast mjög vel saman
og ekkert eitt sem ber uppi rekstur-
inn í sjálfu sér. Útflutningur er líka á
dagskrá en það færist í vöxt að fólk
pantar hjá okkur á netinu og mjög
líklega eru vörur að fara frá okkur
á allra næstu vikum til reglulegrar
dreifingar í Bretlandi. Hjá okkur starfa
í dag sex til sjö manns á ársgrundvelli
en á sumrin eru störfin aðeins fleiri.
„Nú fetum við líka aðeins inn á
nýjar brautir með því að opna staðinn
meira og byggja upp frekari þjónustu
á staðnum,“ bætir Eymundur við.
„Við ætlum þannig að leyfa gestum,
svo sem ferðamönnum, að skoða og
njóta staðarins með okkur, en á sumrin
kemur fjöldi fólks í Vallanes, annað-
hvort til að gista eða kaupa vörur.
Næsta sumar hyggjumst við byggja
þjónustuhús yfir verslunina okkar og
bjóða upp á léttar veitingar. Húsið
er beinn afrakstur skógræktarinnar
á staðnum og verður reist úr okkar
eigin viði, svo sem ösp og lerki, og
verður þetta fyrsta hús sinnar tegund-
ar á Íslandi sem er byggt alfarið úr
íslenskum viði.“
Nýliðun í lífrænum búskap á
Íslandi er lítil og segja má að stöðnun
ríki í þessum framleiðslugeira. Eygló
segir þó að neytendur kalli eftir líf-
rænt ræktuðum afurðum í vaxandi
mæli. „Það er vaxandi eftirspurn.
Framleiðendur eru fáir og dreifðir en
eftir því sem þeim fjölgaði myndu
aukast tækifæri til margvíslegrar sam-
vinnu. Það hafa orðið til fleiri vottaðir
fullvinnsluaðilar en frumframleiðend-
ur undanfarin ár hér á Íslandi, hvert
eiga þessir fullvinnsluaðilar að sækja
sitt hráefni ef það eru ekki ræktendur
eða frumframleiðendur hér á landi?
Þá kemur auðvitað til innflutnings.
Ísland verður af tækifærum í þessari
stöðu, það tapast gjaldeyrir því flutt
er inn hráefni sem við ættum að geta
ræktað sjálf. Og það tapast tækifæri
á því að það verði til fleiri framleið-
endur hér á landi sem gætu ef til vill
orðið framtíðar útflytjendur eða enn
meiri efniviður fyrir ferðaþjónustuna.
Það er auk þess betra fyrir umhverfið
að lífrænum ræktendum fjölgi. Það er
allt jákvætt og nútímalegt við þetta
ræktunarform þegar kemur að rækt-
un jarðvegs, hreinleika, velferð dýra,
hollustu og svo mætti áfram telja,“
segir Eygló.
„Í mínu tilfelli var þetta spurning
um að vera trúr minni sannfæringu
og láta ekki úrtöluraddir telja úr mér
kjarkinn,“ segir Eymundur um byrj-
unarörðugleikana sem hann glímdi
við. „Þetta er svo bara eins og hver
annar rekstur, það eru hæðir og lægðir
og jafnvel djúpir dalir. Þá er mikil-
vægt að missa ekki sjónar af takmark-
inu, halda sínu striki en líka að hafa
kjark til að endurskoða áætlunina og
breyta ef þarf.“
Matartengd ferðamennska
er spennandi
Þau eru að vonum kát með
Fjöreggið. „Það er bara mjög gaman
að fá slíka viðurkenningu, og þar sem
þessi verðlaun eru þau helstu í matar-
bransanum þá getur það bara gefið
okkur byr undir báða vængi og styrkt
okkur í þeirri trú að við séum á réttri
braut. Bara að vera tilnefnd held ég að
sé mikilvæg viðurkenning fyrir fram-
leiðendur. Við erum á mjög spennandi
tímapunkti núna og við erum að fást
við skemmtilega hluti. Ekki síst að
móta og byggja upp matartengda
þjónustu og upplifun hér á staðnum.
Austurland fær beint flug frá Bretlandi
næsta sumar og allt samfélagið tekur
þátt í að gera svæðið að góðum áfanga-
stað og í stakk búið til að taka vel á
móti þessu fólki. Fyrir okkur er gaman
að geta bætt við af þreyingu og upp-
lifun hér á svæðinu og vonandi fer
fólk héðan innblásið af hugmyndum
um mikilvægi þess að hugsa vel um
umhverfið því þetta er órjúfanleg heild;
umhverfi, hollusta og góður matur,“
segir Eygló um framtíðina. Eymundur
bætir við að matartengd ferðaþjónusta
sé mjög spennandi fyrir þau. „Eins
eru útivistarmöguleikarnir miklir þar
sem við erum að gera göngustíga í
skóginum og meðfram ökrum í skjóli
skjólbelta. Við erum í raun að svara
eftirspurn sem hefur lengi verið.
Hópar og einstaklingar hafa viljað
koma og fræðast um starfsemina
og njóta skjólsins og gróðurfarsins
sem ennþá er nokkuð nýstárlegt á
Íslandi.“ /smh
Perlubyggið, sem er sérvalið og meira unnið, hefur fengið mjög góðar viðtökur.
Mynd / Áslaug Snorradóttir
IS Hurðir I Sími 564 0013 I www.ishurdir.is I ishurdir@ishurdir.is
IÐNAÐARHURÐIR
BÍLSKÚRSHURÐIR
• Íslensk framleiðsla, smíði og samsetning.
• Allar hurðir smíðaðar samkvæmt máli.
• Áratuga reynsla starfsmanna í hurðum.
• Hágæða hráefni.
• Þolir íslenskt veðurfar.
• Sér meðhöndlaðar brautir gegn ryði og álagi.
• Stuttur afgreiðslutími.