Bændablaðið - 03.12.2015, Side 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Þýskar vélar þóttu lengi
með þeim bestu í heimi,
traustar og áreiðanlegar.
Wolkswagen-hneykslið
fyrr á þessu ári hefur
reyndar dregið veru-
lega úr tiltrú margra á
þýskri tækni.
Árið 1904 stofn-
uðu þjóðverjarnir Hugo
Güldner og Carl von
Linde fyrirtæki sem fékk
nafnið Güldner-Motoren
– Gesellschaft mbH og
ætlað var að smíða dísil-
vélar. Reksturinn gekk
þokkalega og á fyrstu árum fyrir-
tækisins smíðaði það dísilvélar af
ýmsum stærðum. Allt frá fáeinum
hestöflum upp í 500 hestöfl.
Á árum fyrri heimsstyrjaldar-
innar framleiddi fyrirtækið aðal-
lega mótora í flugvélar þýska
flughersins.
Fyrsti traktorinn 1938
Fyrsta dráttarvélin sem bar
heitið Güldner var kynnt
1938 og sett á markað 1940.
Traktorinn var með lítilli eins
strokka vél, vatnskældur og
20 hestöfl og ekki ósvipaður
dráttarvélum sem aðrir þýskir
framleiðendur eins og Fahr
framleiddu á sama tíma.
Týpan kallaðist A20 og þótti
einföld og þægileg í notkun.
Reyndar var eitt af aðals-
merkjum Güldner að fyrirtækið
átti strax frá upphafi gott samstarf
við aðra þýska vélaframleiðendur
og hannaði ýmsar tæknilausnir í
samvinnu við þau.
Fyrirtækið
smíðaði mót-
ora fyrir Fahr
á fyrstu árum
seinni heims-
styrjaldarinnar
en verksmiðjur
Güldner voru
jafnaðar við
jörðu í loftárás-
um á Þýskaland
þegar leið á stríðið.
Risið úr rústum
Eftir að styrjöldinni lauk reis
Güldner-drá t t a r vé la f ram-
leiðandinn úr rústunum eins og
fuglinn Fönix úr öskunni. Árið
1948 hóf það hönnun á nýjum
traktor sem kom á markað 1951
og kallaðist AF15.
F-ið í nafninu stóð fyrir Four
Speed eða fjórir gírar. Traktorinn
var með háu og lágu drifi og 16
hestafla fjögurra strokka dísil-
vél.
Breytingar hjá Güldner
voru tíðar á þessum tíma. Árið
1953 var ADN-týpan sett á
markað. Tveggja strokka og
16 hestöfl sem frá 1959 var
fáanleg fimm gíra. Í kjölfarið
fylgdu týpur sem fengu nöfn
eins og AZK og ABN.
Fram til þessa höfðu allar
dráttarvélar frá Güldner verið
grænar að lit en árið 1959 kom
A2B-týpan á markað sem var
rauð og fjórum árum seinna
A3K sem líka var rauð. Báðar
þessar týpur voru 25 hestöfl.
Litaskiptin voru vísbending um
eigendaskipti á fyrirtækinu.
Framleiddir til 1969
Í lok sjötta áratugarins smíðaði
Güldner alla mótora fyrir drátt-
arvélaframleiðandann Farh og
fór svo að lokum að Fahr yfirtók
fyrirtækið árið
1962. Síðustu
t r a k t o r a r n i r
sem var fram-
leiddir voru
undir vöru-
merki Güldner
kölluðust G30,
G35, G40.
F ramle iðs lu
þeirra var hætt
1969.
Varahlutir voru fáanlegir til
1989 þegar Güldner hvarf alfarið
af sjónarsviðinu nema sem forn-
munur eftir samrunna Fahr og
Deutz.
Frá upphafi til endaloka voru
framleiddir um 100.000 dráttar-
vélar undir heiti Güldner. /VH
Güldner – þýsk eðalvél frá því fyrir
tíma koltvísýringsmælinga
Utan úr heimi
Samantekt á hitatölum frá veður-
stöðvum víða um heim benda til að
meðalhiti árið 2015 verði sá hæsti
frá upphafi mælinga.
Mælingarnar sýna að hitastig
síðustu tólf mánaða er hærra en
nokkru sinni áður og að meðalhitinn
á jörðinni hafi hækkað öll árin frá
2011 til 2015. Ástæða hækkunarinnar
er rakin til veðurfyrirbærisins El Nino
og losun gróðurhúsalofttegunda af
mannavöldum sem valda hækkun á
lofthita.
0,73° á Celsíus hærra en í
viðmiðunarárum
Samkvæmt því sem segir í yfirlýsingu
frá Alþjóðaveðurfræðistofnunni var
hiti 2015 við jarðvegsyfirborð 0,73°
á Celsíus hærri en meðaltal áranna
1961 til 1990 og 1° á Celsíus hærri
en meðaltal á Bretlandseyjum árin
1880 til 1899.
Mælingar sýna einnig að magn
koltvísýrings í andrúmslofti hefur náð
nýjum hæðum og að síðastliðið vor
hafi magn þess farið í fyrsta skiptið
yfir 400 hluta úr milljón á norður-
hveli.
Mörg met slegin
Að mati Alþjóðaveðurfræði-
stofnunarinnar er líklegt að fjöldi
ólíkra hitameta verði sleginn árið
2015. Þar á meðal er líklegt að hiti
sjávar verði sá hæsti frá upphafi
mælinga. Samanburður á hitatölum
undanfarinna áratuga þykja sanna
að brennsla á jarðefnaeldsneyti og
losun koltvísýrings vegna þess sé
helsti orsaka valdur hlýnunarinnar.
Auk þess sem hlýnun af völdum El
Nino hefur verið óvenjumikil á yfir-
standandi ári. Spár gera ráð fyrir að
fyrirbærið El Nino muni verða enn
öflugra árið 2016 og að enn eitt hita-
metið verði slegið á næsta ári.
Hitabylgjur verða algengar 2016
Búast má við að hitabylgjur
muni valda vandræðum víða um
heim á næsta ári. Til dæmis í
Evrópu, Norður-Afríku og Mið-
Austurlöndum og að á svæðum á
Indlandi geti hitinn farið yfir 45° á
Celsíus í langan tíma í einu.
Niðurstöðurnar eru birtar í
tengslum við loftslagsráðstefnuna
í París.
/VH
Kínverska fyrirtækið BoyaLife
mun hefja fjöldaframleiðslu á
nautgripum úr fósturvísum um
mitt ár 2016. Forsvarsmenn fyrir-
tækisins segja möguleikana óend-
anlega og til standi í framtíðinni að
klóna leitarhunda, veðhlaupahesta
og dýr í útrýmingarhættu.
BoyaLife er stærsta fyrirtæki
sinnar gerðar í heiminum og fyrsta
verkefni þess verður að setja á mark-
að um eitt hundrað þúsund klónaða
fósturvísa úr úrvals nautgripum.
Klónun af slíkri stærðargráðu hefur
aldrei verið framkvæmd áður.
Vaxandi eftirspurn eftir nautakjöti
Framleiðsla fósturvísanna verður í 14
þúsund fermetra rannsóknarstofu og
er ætlað að koma á móts við vaxandi
eftirspurn eftir nautakjöti í Kína.
Bandaríska matvælaeftirlitið
hefur leyft sölu á kjöti og mjólkur-
afurðum frá klónuðum nautgripum
frá árinu 2008 en magnið er einungis
brot af því sem BoyaLife ætlar að
framleiða.
Heilbrigðiseftirlit Evrópu-
sambandsins hefur gefið út yfir-
lýsingu um að enginn sannanlegur
munur sé á kjöti eða mjólkurafurð-
um klónaðra og annarra nautgripa.
Eftirlitið hefur aftur á móti lýst
áhyggjum sínum af dýravelferð
þegar kemur að eldi klónaðra dýra.
Endalausir möguleikar
Forsvarsmenn BoyaLife segja að
klónun nautgripa sé bara fyrsta skref-
ið því á næstu árum ætli fyrirtækið
að klóna leitarhunda, veðhlaupahesta
og dýr í útrýmingarhættu eins og
pandabirni. Fyrirtækið ætlar einnig
að bjóða gæludýraeigendum upp á
slíka þjónustu ef gæludýrið fellur frá.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
vísindamenn í Kína leggja fyrir sig
klónun því þeir hafa verið að klóna
nautgripi, kindur og svín í tæp tutt-
ugu ár. Stærðargráðan hefur bara
verið minni.
Smáhundar og menn
BoyaLife er rekið í samvinnu við
suður-kórenska líftæknifyrirtækið
Sooam Biotech sem er í eigu manns
sem heitir Hwang Woo-suk en iðu-
lega kallaður konungur klónunar.
Árið 2006 var Hwang Woo-suk
fundinn sekur um svik og alvarleg
brot á siðareglum þegar hann gerði
tilraunir með klónun með fósturvís-
um úr mönnum. Fyrirtæki hans hefur
að hluta til fjármagnað rekstur sinn
og rannsóknir síðan með klónun á
smáhundum og öðrum gæludýrum.
Dvergsvín sem gæludýr
Annað kínverskt fyrirtæki, Beijing
Genomics Institute, hefur með hjálp
erfðatækni framleitt það sem þeir
kalla míkró-svín eða dvergsvín
og er hugmyndin að setja þau á
markað sem gæludýr á næstunni.
Dvergsvínin verða ekki meira en 15
kíló að þyngd og þykja ekki síður
krúttleg en kjölturakkar. /VH
Líftækni:
Stærsta dýraklónaverksmiðja
í heimi reist í Kína
− mun hefja fjöldaframleiðslu á nautgripum úr fósturvísum um mitt ár 2016
Umhverfismál:
Meðalhiti í heiminum 2015 sá
hæsti frá upphafi mælinga
Kínverska fyrirtækið BoyaLife mun hefja fjöldaframleiðslu á nautgripum úr
fósturvísum um mitt ár 2016.
Kínverjar bóða gæludýraeigendum
upp á klónað eintak ef gæludýrið
fellur frá.